Alþingi

Valmynd


Hlusta


Lagasafn.  Íslensk lög 1. september 2026.  Útgáfa 157c.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um stuðning við framkvæmdir sveitarfélaga í fráveitumálum

1995 nr. 53 8. mars


Ferill málsins á Alþingi.    Frumvarp til laga.

Tóku gildi 9. mars 1995. Breytt með: L. 84/2005 (tóku gildi 9. júní 2005). L. 115/2005 (tóku gildi 30. des. 2005). L. 167/2007 (tóku gildi 1. jan. 2008). L. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).

Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra eða umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði.

1. gr.
Markmið laga þessara er að stuðla að framkvæmdum við fráveitur sveitarfélaga með styrkveitingum.
Með fráveitu er í lögum þessum átt við leiðslukerfi og búnað til að meðhöndla skolp sem fullnægir kröfum laga og reglugerða um hreinsun þess áður en því er veitt í viðtaka.
2. gr.
Frumkvæði að gerð áætlana um fráveitur og framkvæmdir í fráveitumálum er í höndum sveitarstjórna og á ábyrgð þeirra.
3. gr.
Framkvæmdir við sniðræsi frá safnkerfum fráveitna, rotþrær, hreinsi- og dælustöðvar og útrásir, sem unnar verða á tímabilinu 1. maí 1995 til [31. desember 2008], 1) geta notið styrks úr ríkissjóði. Enn fremur er heimilt að styrkja úr ríkissjóði önnur skyld mannvirki, svo og framkvæmdir sem snúa að tvöföldun lagna í safnkerfum eldri fráveitna, enda sé sýnt að slíkar framkvæmdir lækki stofnkostnað við styrkhæfar framkvæmdir. [Heimilt er með sama hætti að veita sveitarfélögum styrki til stofnframkvæmda við fráveitur sem fjármagnaðar eru samkvæmt samningum um einkaframkvæmd, hvort sem er á grundvelli eignarleigu- eða rekstrarleigusamnings, enda falli framkvæmdirnar undir ákvæði 1. málsl. og uppfylli að öðru leyti skilyrði til úthlutunar samkvæmt þessari grein. Ráðherra setur, að fengnum tillögum fráveitunefndar, nánari ákvæði um framkvæmdina í reglugerð. Skuldbindingar sem sveitarfélögin taka á sig vegna rekstrarleigu skulu koma fram í ársreikningum þeirra. [Styrkupphæð vegna slíkra einkaframkvæmda getur aldrei verið hærri en sem nemur virðisaukaskatti vegna framkvæmdanna.] 1)] 2)
Undirbúningsrannsóknir, hönnun, kostnaður við útboð, fjármagns- og lántökukostnaður og kaup á löndum og lóðum vegna framkvæmda í fráveitumálum njóta ekki fjárstuðnings samkvæmt lögum þessum. Sama gildir um endurbætur á eldri kerfum og framkvæmdir sem eru umfram það sem krafist er í lögum og reglugerðum um hreinsun fráveituvatns.
    1)L. 115/2005, 1. gr. 2)L. 84/2005, 1. gr.
4. gr.
Fjárhagslegur stuðningur ríkisins vegna framkvæmda sveitarfélaga við fráveitur skv. 3. gr. getur numið allt að 200 m.kr. á ári eftir því sem nánar er kveðið á um í fjárlögum, þó aldrei hærri upphæð en sem nemur 20% af staðfestum heildarraunkostnaði styrkhæfra framkvæmda næstliðins árs.
Heimilt er að ráðstafa allt að fjórðungi styrkupphæðar á hverju ári í þeim tilgangi að jafna svo sem kostur er kostnað einstakra sveitarfélaga við fráveituframkvæmdir þegar miðað er við heildarkostnað á íbúa. Skal fráveitunefnd skv. 5. gr. gera tillögur um beitingu þessa ákvæðis sem ráðherra staðfestir.
[Heimilt er að ráðstafa allt að 10 millj. kr. ár hvert til rannsókna á viðtökum fráveitu með það að markmiði að þær leiði til lækkunar kostnaðar við fráveituframkvæmdir á síðari stigum.] 1)
    1)L. 115/2005, 2. gr.
5. gr.
[Ráðherra] 1) skipar fráveitunefnd sér til ráðuneytis um fráveitumál sveitarfélaga. Í fráveitunefnd skulu eiga sæti þrír fulltrúar skipaðir til fjögurra ára í senn. Einn skal skipaður samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga, annar samkvæmt tilnefningu [þess ráðherra er fer með sveitarstjórnarmál] 1) og sá þriðji skal skipaður án tilnefningar og skal hann jafnframt vera formaður nefndarinnar. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti.
Kostnaður af störfum nefndarinnar greiðist úr ríkissjóði.
    1)L. 126/2011, 209. gr.
6. gr.
Fráveitunefnd fjallar um styrkumsóknir og framkvæmda- og kostnaðaráætlanir sveitarfélaga vegna framkvæmda í fráveitumálum á yfirstandandi ári og áætlar styrkhæfni hverrar áætlaðrar framkvæmdar.
Í samræmi við mat á styrkumsóknum sveitarfélaga skal fráveitunefnd gera tillögu til [ráðherra] 1) um framlag til fráveitumála sveitarfélaga á fjárlögum næsta árs.
Fráveitunefnd fjallar um upplýsingar sveitarfélaga um raunkostnað við framkvæmdir í fráveitumálum á næstliðnu ári. Nefndin skal meta og staðfesta kostnað við styrkhæfa framkvæmd í hverju sveitarfélagi fyrir sig. Á grundvelli þeirrar staðfestingar gerir fráveitunefnd tillögur til [ráðherra] 1) um styrkveitingu til hvers sveitarfélags vegna framkvæmda í fráveitumálum.
Fráveitunefnd er heimilt að leita sérfræðilegrar ráðgjafar í störfum sínum.
    1)L. 126/2011, 209. gr.
7. gr.
Sveitarfélög skulu fyrir 1. maí ár hvert senda fráveitunefnd [ráðuneytisins] 1) umsókn um styrk vegna fráveituframkvæmda á yfirstandandi ári. Með umsókninni fylgi heildaráætlun um fráveituframkvæmdir í sveitarfélaginu sem fyrirhugað er að sækja um styrk fyrir og sérstök áætlun um þann áfanga sem áætlað er að vinna á yfirstandandi ári. Einnig fylgi með umsókninni tæknilegar upplýsingar um framkvæmdina ásamt teikningum og sundurliðaðri kostnaðaráætlun. Skilyrði fyrir fjárstuðningi er að framkvæmdin sé áfangi í heildarlausn á fráveitumálum sveitarfélags.
    1)L. 126/2011, 209. gr.
8. gr.
Sveitarfélög, sem fengið hafa úthlutað fjárstuðningi vegna fráveituframkvæmda, skulu fyrir 1. mars ár hvert senda fráveitunefnd [ráðuneytisins] 1) upplýsingar um raunkostnað sveitarfélagsins vegna framkvæmda við fráveitumál á næstliðnu ári í samræmi við áður senda áætlun.
    1)L. 126/2011, 209. gr.
9. gr.
Styrkir til sveitarfélaga vegna framkvæmda í fráveitumálum á næstliðnu ári skulu greiddir sveitarfélögunum fyrir 1. maí ár hvert.
10. gr.
[Ráðherra] 1) hefur á hendi yfirstjórn fjárhagslegs stuðnings ríkissjóðs við framkvæmdir sveitarfélaga í fráveitumálum og tekur endanlegar ákvarðanir um úthlutun styrkja að fengnum tillögum fráveitunefndar.
    1)L. 126/2011, 209. gr.
11. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Þú ert hér: Forsíða > Lagasafn > Lög

Lagasafn

  • Kaflar lagasafns
  • Lög samþykkt á Alþingi
  • Brottfallin lög
  • Nýlega samþykkt lög
  • Um lagasafn
  • Leiðbeiningar
  • Hvernig á að tengja í lög?
  • Zip-skrá af lagasafni

  • Þingfundir og mál
    • Tilkynningar
    • Þingmálalistar
      • Laga­frumvörp
      • Þings­ályktunar­tillögur
      • Fyrirspurnir
      • Skýrslur, álit og beiðnir
      • Sérstakar umræður
      • Staða mála
      • Þingmál eftir efnis­flokkum
      • Samantektir um þingmál
    • Leit að þingmálum
      • Leit í málaskrám
      • Ítarleit að þingskjölum
      • Einföld orðaleit í skjala­texta
      • Orðaleit í umsögnum
      • Atkvæðagreiðslur
      • Efnisyfirlit
    • Þingfundir og ræður
      • Fundar­gerðir og upp­tökur
      • Dagskrá þingfundar
      • Nýyfirlesnar ræður
      • Einföld orðaleit í ræðum
      • Ítarleit í ræðum
      • Ræður eftir þingum
      • Reglur um ræðutíma
      • Starfs­áætlun Alþingis
      • Mælendaskrá
    • Yfirlit og úttektir
      • Þingsköp
      • Alþingistíðindi
      • Alþingismál 1845-1913
      • Þingmálaskrá ríkisstjórnar
      • Breytingar á stjórnarskrá frá 1944
      • Leiðbeiningar um þingskjöl
      • Efni um stjórnarskrármál
      • Vantrauststillögur
      • Umsókn um aðild að ESB
      • Efni um Icesave
      • Fjármálastefna, fjármálaáætlun og fjárlög
      • Úttektir rannsókna- og upplýsingaþjónustu
    • Viltu senda umsögn?
    • Lög samþykkt á Alþingi
    • Nýjar þingsályktanir
  • Þingmenn
    • Alþingismenn
      • Alþingismenn
      • Sitjandi aðal- og vara­þing­menn
      • Netföng og símanúmer
      • Heimasíður þingmanna
      • Varamenn sem sitja á Alþingi
      • Varamenn sem hafa tekið sæti
      • Sætaskipun þingmanna
      • Aðstoðarmenn
      • Mögulegir varaþingmenn
    • Þingflokkar
      • Um þingflokka
      • Formenn þingflokka
      • Flokkur fólksins
      • Framsóknarflokkur
      • Miðflokkurinn
      • Samfylkingin
      • Sjálfstæðisflokkur
      • Viðreisn
      • Utan þingflokka
      • Starfsfólk þingflokka
      • Fyrri þingflokkar
    • Kjördæmi
      • Um kjördæmi
      • Reykjavík norður
      • Reykjavík suður
      • Suðvesturkjördæmi
      • Suðurkjördæmi
      • Norðausturkjördæmi
      • Norðvesturkjördæmi
    • Forsetar Alþingis
      • Forseti Alþingis
      • Forsætisnefnd - varaforsetar
      • Forsetatal
    • Ráðherrar - ríkisstjórn
      • Ráðherrar - ríkisstjórn
      • Ráðherrar og ráðuneyti frá 1904
      • Ráðherrar frá 1904
      • Lengstur starfs­aldur í ríkis­stjórn
    • Sögulegur fróðleikur
      • Elstir manna á Alþingi
      • Formenn fastanefnda Alþingis
      • Fulltrúar á Þjóðfundinum 1851
      • Kjörnir fulltrúar sem tóku aldrei sæti á Alþingi
      • Konungsfulltrúar
      • Landshöfðingjar
      • Lengstur starfs­aldur þing­manna á Alþingi
      • Skrifstofustjórar Alþingis
      • Yngstir kjörinna alþingismanna
      • Yngstu vara­menn á Alþingi
      • Fyrsta þing þingmanna
    • Hagsmunaskrá og hátterni
      • Um skráningu hagsmuna
      • Hagsmunaskrá
      • Siðareglur
      • Brot á siðareglum
      • Viðbragðsáætlun gegn einelti og áreitni þingmanna
      • Trúnaðarmenn þingflokka
    • Alþingismannatal
      • Kosningarréttur og konur á Alþingi
      • Æviágrip þingmanna frá 1845
      • Leit í alþingismannatali
      • Ýmsar skammstafanir
      • Félag fyrrverandi alþingismanna
      • Raddsýnishorn
    • Starfskjör alþingismanna
      • Laun og kostnaðargreiðslur þingmanna
      • Starfskjör þingmanna
      • Þingfararkaup - laun þingmanna
      • Þingfararkostnaður
      • Árnessjóðurinn - orlofssjóður
      • Ýmis eyðublöð
      • Aðstoðarfólk þingmanna
    • Þingtímabil
      • Númer löggjafar­þinga og tímabil
      • Kjördagar
      • Þingrof
      • Þing­setu­tími - númer ráð­gjafar­þinga 1845-1873
      • Tími frá alþingiskosningum til stjórnarskipta frá 1946
    • Tilkynningar
    • Alþingiskosningar
      • Almennar upplýsingar
      • Kosningar og kosningaúrslit
  • Nefndir
    • Dagskrá nefndarfunda
    • Viltu senda umsögn?
      • Leiðbeiningar um umsagnir um þingmál
      • RSS-áskrift að málum í umsagnarferli
    • Tilkynningar
    • Fastanefndir
      • Allsherjar- og menntamálanefnd
      • Atvinnuveganefnd
      • Efnahags- og viðskiptanefnd
      • Fjárlaganefnd
      • Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
      • Umhverfis- og samgöngunefnd
      • Utanríkismálanefnd
      • Velferðarnefnd
    • Aðrar nefndir
      • Alþjóðanefndir
      • Forsætisnefnd
      • Framtíðarnefnd 2021–2025
      • Undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kosninga
      • Kjörbréfanefnd
      • Sérnefndir
      • Þingskapanefnd
      • Stjórnir, nefndir og ráð kosin af Alþingi
      • Nefndir skipaðar af forseta og forsætisnefnd Alþingis
      • Endurskoðun kosningalaga
      • Sérnefnd til að íhuga viðbrögð Alþingis við dómi Mannréttindadómstóls Evrópu frá 16. apríl 2024 um alþingiskosningarnar í Norðvesturkjördæmi 25. september 2021
    • Nefndastörf
      • Starfsreglur fastanefnda Alþingis
      • Störf fastanefnda
      • Reglur um meðferð EES-mála
      • Fundargerðir nefnda
      • Upptökur af opnum fundum nefnda
      • Fundartímar fastanefnda
      • Skipan nefnda
      • Sögulegt yfirlit
      • Þingmál til umfjöllunar í þingnefndum
      • EES mál
      • Önnur mál nefnda
    • Rannsóknir
      • Rannsóknarnefndir Alþingis
      • Íbúðalánasjóður
      • Sparisjóðir
      • Fall íslensku bankanna
      • Greinar­gerð um rannsóknar­nefndir
      • Saksóknarnefnd og saksóknari Alþingis
    • Leitarvalmyndir
      • Orðaleit í erindum og umsögnum
      • Orðaleit í fundargerðum nefnda
      • Leit að skipan í nefndum
    • Erindi og umsagnir
      • Leiðbeiningar um ritun umsagna
      • Erindi
      • Viðtakendur umsagnabeiðna
      • Sendendur erinda
  • Alþjóðastarf
    • Íslandsdeildir
      • Alþjóða­þingmanna­sambandið
      • Evrópuráðs­þingið
      • Þingmanna­nefndir EFTA og EES
      • NATO-þingið
      • Norðurlandaráð
      • Vestnorræna ráðið
      • Þingmanna­ráðstefnan um norðurskauts­mál
      • Þing Öryggis- og samvinnu­stofnunar Evrópu
    • Tilkynningar
    • Yfirlit og starfsreglur
      • Markmið alþjóðastarfsins
      • Þátttaka í alþjóðastarfi
      • Frásagnir af alþjóðastarfi
      • Starfsreglur
      • Yfirlit yfir Íslands­deildir
    • Annað alþjóðastarf
      • Alþjóðastarf forseta Alþingis
      • Annað alþjóðastarf sem heyrir undir forseta Alþingis
      • Sameiginleg þingmanna­nefnd Íslands og Evrópu­sambandsins
  • Lagasafn
    • Kaflar lagasafns
    • Lög samþykkt á Alþingi
    • Brottfallin lög
      • 1990-1995
    • Nýlega samþykkt lög
    • Um lagasafn
    • Leiðbeiningar
    • Hvernig á að tengja í lög?
    • Zip-skrá af lagasafni
  • Ályktanir Alþingis
    • Ályktanir eftir efnisflokkum
    • Skýrslur vegna ályktana
  • Um Alþingi
    • Skrifstofa Alþingis
      • Skipurit og hlutverk
      • Netföng og símanúmer
      • Mannauðsmál
      • Laus störf
      • Rekstraryfirlit
      • Jafnlaunavottun
    • Upplýsingar um Alþingi
      • Um hlutverk Alþingis
      • Hvernig getur þú haft áhrif?
      • Þingsköp
      • Reglur settar af forsætis­nefnd
      • Upplýs­ingar um þing­störfin
      • Áskrift að efni á vef Alþingis
      • Um vef Alþingis
      • Alþingi á samfélagsmiðlum
      • Rannsóknaþjónusta
      • Merki Alþingis og hönnunarstaðall
    • Fræðslu- og kynningarefni
      • Um Alþingis­húsið
      • Nýbygging á Alþingisreit
      • Skólaþing
      • Ungmennavefur
      • Kynning og saga
      • 100 ára fullveldi 2018
      • Alþingi kynningar­bæklingur
      • Háttvirtur þingmaður - handbók
      • Orðskýringar
    • Stofnanir, stjórnir og nefndir
      • Stjórnir, nefndir og ráð kosin af Alþingi
      • Nefndir skipaðar af forseta og forsætisnefnd Alþingis
      • Ríkis­endurskoðun
      • Umboðs­maður Alþingis
      • Jónshús
      • Rannsóknar­nefndir Alþingis
      • Mannréttindastofnun Íslands
    • Útgefið efni
      • Handbækur Alþingis
      • Ársskýrslur Alþingis
      • Skýrsla um eftirlit Alþingis með framkvæmdar­valdinu
      • Skýrsla um traust til Alþingis
      • Með leyfi forseta
    • Heimsóknir í Alþingishúsið
      • Heimsóknir hópa
      • Aðgengi að Alþingishúsi og Smiðju
      • Fjölmiðlafólk í Alþingis­húsinu
      • Útiþrautaleikur um Alþingishúsið

  • Dansk
  • English

Leita á vefnum


  • Veftré
  • Orðskýringar
  • Alþingistíðindi
  • Skólaþing
  • Ungmennavefur

  • Rafrænir reikningar
  • Umsagnagátt
  • Hakið
  • Vefpóstur
  • Þingmannagátt

Skrifstofa Alþingis - Hafa samband, 101 Reykjavík, Sjá á korti , Kt. 420169-3889 ,[email protected]
Sími 563 0500, Skiptiborðið er opið kl. 9–16 mánudaga til föstudaga.

Persónuverndarstefna


Þetta vefsvæði byggir á Eplica