51. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 17. apríl 2023 kl. 09:32


Mætt:

Þórunn Sveinbjarnardóttir (ÞSv) formaður, kl. 09:32
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ) 1. varaformaður, kl. 09:32
Sigmar Guðmundsson (SGuðm) 2. varaformaður, kl. 09:32
Ásthildur Lóa Þórsdóttir (ÁLÞ), kl. 09:32
Berglind Ósk Guðmundsdóttir (BGuðm), kl. 09:32
Bergþór Ólason (BergÓ), kl. 09:32
Friðjón R. Friðjónsson (FRF), kl. 09:32
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 09:32
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir (LRS), kl. 09:38
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ), kl. 09:36

Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:32
Fundargerðir 49. og 50. fundar voru samþykktar.

2) Lindarhvoll ehf. Framkvæmd samnings við umsýslu, fullnustu og sölu á stöðugleikaeignum. Skýrsla til Alþingis Kl. 09:32
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Guðmund Björgvin Helgason ríkisendurskoðanda og Jarþrúði Hönnu Jóhannsdóttur frá Ríkisendurskoðun.

3) Könnun á kosningu varaþingmanns og kjörgengi Kl. 10:55
Nefndin kannaði tilkynningu landskjörstjórnar um kosningu og kjörgengi Ástrósar Rutar Sigurðardóttur, sem hlaut kosningu sem 3. varaþingmanns á lista Viðreisnar í Suðvesturkjördæmi í alþingiskosningunum 25. september 2021. Tilkynningin var gefin út í samræmi við 113. gr. kosningalaga nr. 112/2021. Ekki voru gerðar athugasemdir við tilkynninguna og var nefndin einhuga um að mæla með staðfestingu kosningar Ástrósar Rutar Sigurðardóttur.

4) Önnur mál Kl. 10:56
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:58