75. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn mánudaginn 7. júní 2021 kl. 13:04


Mætt:

Bergþór Ólason (BergÓ) formaður, kl. 13:04
Ari Trausti Guðmundsson (ATG) 2. varaformaður, kl. 13:04
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 13:04
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 13:04
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 13:04
Karl Gauti Hjaltason (KGH), kl. 13:04
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 13:04
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 13:04
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 13:04

Jón Gunnarsson var fjarverandi.

Nefndarritari: Inga Skarphéðinsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 13:04
Fundargerðir 71. - 74. fundar voru samþykktar.

2) 708. mál - hollustuhættir og mengunarvarnir o.fl. Kl. 13:04
Nefndin ræddi málið.

Tillaga um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt af öllum viðstöddum nefndarmönnum.

Að nefndaráliti meiri hluta með breytingartillögu standa Ari Trausti Guðmundsson, Líneik Anna Sævarsdóttir, Kolbeinn Óttarsson Proppé, Vilhjálmur Árnason. Guðjón S. Brjánsson og Hanna Katrín Friðriksson skrifa undir álitið með fyrirvara sem þau gera grein fyrir í ræðu.

3) 712. mál - umhverfismat framkvæmda og áætlana Kl. 13:14
Framsögumaður málsins, Kolbeinn Óttarsson Proppé, kynnti drög að nefndaráliti.

Nefndin ræddi málið.

Tillaga um að afgreiða málið var samþykkt af öllum viðstöddum nefndarmönnum.

Að nefndaráliti með breytingartillögu standa allir viðstaddir nefndarmenn. Bergþór Ólason skrifar undir álitið með fyrirvara sem hann gerir grein fyrir í ræðu.

4) 711. mál - loftslagsmál Kl. 13:39
Framsögumaður málsins, Ari Trausti Guðmundsson, kynnti drög að nefndaráliti.

Nefndin ræddi málið.

Tillaga um að afgreiða málið úr nefndinni var samþykkt af öllum viðstöddum nefndarmönnum.

Að nefndaráliti meiri hluta með breytingartillögu standa Ari Trausti Guðmundsson, Kolbeinn Óttarsson Proppé, Líneik Anna Sævarsdóttir, Vilhjálmur Árnason, Hanna Katrín Friðriksson. Guðjón S. Brjánsson skrifar undir álitið með fyrirvara sem hann gerir grein fyrir í ræðu. Karl Gauti Hjaltason skrifar undir álitið með fyrirvara sem fram kemur í nefndaráliti.

5) Önnur mál Kl. 14:01
Nefndin ræddi starfið framundan.
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 14:12