40. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 12. mars 2015
kl. 15:35
Mættir:
Höskuldur Þórhallsson (HöskÞ) formaður, kl. 15:35Katrín Júlíusdóttir (KaJúl) 1. varaformaður, kl. 15:35
Haraldur Einarsson (HE) 2. varaformaður, kl. 15:35
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 16:20
Róbert Marshall (RM), kl. 15:35
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 15:35
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 15:45
Vilhjálmur Árnason vék af fundi kl. 15:55 og kom aftur kl. 16:45.
Elín Hirst og Jón Þór Ólafsson voru fjarverandi.
Nefndarritari: Heimir Skarphéðinsson
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 15:35
Fundargerðir síðustu sex funda voru samþykktar.
2) 503. mál - farmflutningar á landi Kl. 15:35
Á fund nefndarinnar komu Sigurbergur Björnsson og Marta Jónsdóttir frá innanríkisráðuneyti. Kynntu þau efni frumvarpsins og svöruðu spurningum nefndarmanna.
3) 504. mál - farþegaflutningar á landi í atvinnuskyni Kl. 15:55
Á fund nefndarinnar komu Sigurbergur Björnsson og Marta Jónsdóttir frá innanríkisráðuneyti. Kynntu þau efni frumvarpsins og svöruðu spurningum nefndarmanna.
4) 427. mál - uppbygging innviða fyrir ferðamenn til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum Kl. 16:50
Á fund nefndarinnar komu Jón Geir Pétursson, Sigríður Svana Helgadóttir og Björgvin Valdimarsson frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti.
5) Frumvarp til laga um náttúruvernd. Kl. 17:40
Umfjöllun málsins var frestað.
6) Önnur mál Kl. 17:40
Nefndin ákvað að senda 101. og 166. mál til umsagnar með fresti til 30. mars.
Afgreidd var umsögn minni hluta nefndarinnar um 244. mál til atvinnuveganefndar.
Fundi slitið kl. 17:45