46. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 152. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 13. júní 2022 kl. 10:02


Mætt:

Vilhjálmur Árnason (VilÁ) formaður, kl. 10:02
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG) 1. varaformaður, kl. 10:02
Bjarni Jónsson (BjarnJ) 2. varaformaður, kl. 10:02
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 10:02
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 10:02
Helga Vala Helgadóttir (HVH), kl. 10:02
Ingibjörg Isaksen (IÓI), kl. 10:02
Jakob Frímann Magnússon (JFM), kl. 10:18
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 10:02
Orri Páll Jóhannsson (OPJ), kl. 10:02

Helga Vala Helgadóttir, Ingibjörg Isaksen og Orri Páll Jóhannsson viku af fundi kl. 10:58 vegna annarra þingstarfa.

Nefndarritari: Marta Mirjam Kristinsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 10:02
Dagskrárlið frestað.

2) 571. mál - sveitarstjórnarlög Kl. 10:02
Framsögumaður málsins, Ingibjörg Isaksen, kynnti drög að nefndaráliti með breytingartillögu og ræddi nefndin málið.

Tillaga formanns um að málið yrði afgreitt úr nefndinni til 2. umræðu var samþykkt af Vilhjálmi Árnasyni, Ingibjörgu Isaksen, Bjarna Jónssyni, Höllu Signýju Kristjánsdóttur, Njáli Trausta Friðbertssyni og Orra Pál Jóhannssyni.
Andrés Ingi Jónsson, Helga Vala Helgadóttir og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir sátu hjá við afgreiðslu málsins.

Að nefndaráliti meiri hluta með breytingatillögu standa Vilhjálmur Árnason, Ingibjörg Isaksen, Bjarni Jónsson, Halla Signý Kristjánsdóttir, Njáll Trausti Friðbertsson og Orri Páll Jóhannsson.

Andrés Ingi Jónsson og Helga Vala Helgadóttir boðuðu minnihlutaálit.

3) 563. mál - stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2022--2036 Kl. 10:07
Framsögumaður málsins, Halla Signý Kristjánsdóttir, kynnti drög að nefndaráliti með breytingartillögu og ræddi nefndin málið.

Tillaga formanns um að málið yrði afgreitt úr nefndinni til síðari umræðu var samþykkt af Vilhjálmi Árnasyni, Höllu Signýju Kristjánsdóttur, Bjarna Jónssyni, Helgu Völu Helgadóttur, Ingibjörgu Isaksen, Njáli Trausta Friðbertssyni, Orra Pál Jóhannssyni og Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur.
Andrés Ingi Jónsson sat hjá við afgreiðslu málsins úr nefnd.

Allir viðstaddir nefndarmenn standa að nefndaráliti með breytingartillögu.

4) 185. mál - áhafnir skipa Kl. 10:16
Framsögumaður málsins, Halla Signý Kristjánsdóttir, kynnti drög að nefndaráliti og ræddi nefndin málið.

Tillaga formanns um að málið yrði afgreitt úr nefndinni til 3. umræðu var samþykkt af Vilhjálmi Árnasyni, Höllu Signýju Kristjánsdóttur, Bjarna Jónssyni, Ingibjörgu Isaksen, Njáli Trausta Friðbertssyni og Orra Pál Jóhannssyni.
Andrés Ingi Jónsson, Helga Vala Helgadóttir og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir greiddu atkvæði gegn afgreiðslu málsins.

Að nefndaráliti meiri hluta standa Vilhjálmur Árnason, Halla Signý Kristjánsdóttir, Bjarni Jónsson, Ingibjörg Isaksen, Njáll Trausti Friðbertsson og Orri Páll Jóhannsson.

Andrés Ingi Jónsson boðaði minni hluta álit.

5) 186. mál - loftferðir Kl. 10:47
Framsögumaður málsins, Njáll Trausti Friðbertsson, kynnti drög að nefndaráliti með breytingartillögu og ræddi nefndin málið.

6) Önnur mál Kl. 11:02
Nefndin ræddi starfið framundan.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:04