74. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 28. maí 2019 kl. 09:15


Mættir:

Jón Gunnarsson (JónG) formaður, kl. 09:15
Ari Trausti Guðmundsson (ATG) 1. varaformaður, kl. 09:15
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 2. varaformaður, kl. 09:15
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:15
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:22
Helga Vala Helgadóttir (HVH), kl. 09:15
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:22

Rósa Björk Brynjólfsdóttir boðaði forföll vegna þingstarfa erlendis.
Karl Gauti Hjaltason og Bergþór Ólason boðuðu forföll.

Hanna Katrín Friðriksson vék af fundi kl. 10:03

Nefndarritari: Inga Skarphéðinsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:15
Frestað.

2) 759. mál - efnalög Kl. 09:15
Framsögumaður málsins, Ari Trausti Guðmundsson, kynnti drög að nefndaráliti.

Tillaga um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt af öllum viðstöddum nefndarmönnum.

Að nefndaráliti standa Jón Gunnarsson, Ari Trausti Guðmundsson, Helga Vala Helgadóttir, Hanna Katrín Friðriksson, Líneik Anna Sævarsdóttir og Vilhjálmur Árnason. Að auki skrifar Rósa Björk Brynjólfsdóttir undir álitið skv. heimild í 4. mgr. 18.gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis.

3) 416. mál - öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða Kl. 09:23
Framsögumaður málsins, Líneik Anna Sævarsdóttir, kynnti drög að nefndaráliti.

Nefndin ræddi málið.

4) 758. mál - loftslagsmál Kl. 10:17
Frestað.

5) Önnur mál Kl. 10:18
Nefndin ræddi starfið framundan. Samþykkt var að funda miðvikudaginn 29. maí og/eða föstudaginn 31. maí.
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:20