28. fundur
velferðarnefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 23. janúar 2019 kl. 09:00


Mættir:

Halldóra Mogensen (HallM) formaður, kl. 09:00
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) 1. varaformaður, kl. 09:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF) 2. varaformaður, kl. 09:00
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 09:00
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 09:00
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 09:30
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 09:00
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:00
Una María Óskarsdóttir (UMÓ) fyrir Önnu Kolbrúnu Árnadóttur (AKÁ), kl. 09:00
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:30

Ásmundur Friðriksson vék af fundi kl. 09:30.
Vilhjálmur Árnason vék af fundi kl. 10:19.

Nefndarritari: Arnar Kári Axelsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Dagskrárlið frestað.

2) Sjúkratryggingar, fæðingarþjónusta Kl. 09:00
Á fund nefndarinnar mættu Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, Helga Björg Ragnarsdóttir og Elsa B. Friðfinnsdóttir frá heilbrigðisráðuneytinu. Fjölluðu þær um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) Ábending umboðsmanns Alþingis um meinbugi á lögum um almannatryggingar, útreikningur á búsetutíma varðandi örorkulífeyri Kl. 10:00
Á fund nefndarinnar mættu Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, Ágúst Þór Sigurðsson, Hildur Sverrisdóttir Röed og Gissur Pétursson frá félagsmálaráðuneytinu. Fjölluðu þau um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) Önnur mál Kl. 11:00
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:00