62. fundur
velferðarnefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í fjarfundur, föstudaginn 17. apríl 2020 kl. 10:00


Mætt:

Helga Vala Helgadóttir (HVH) formaður, kl. 10:00
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) 1. varaformaður, kl. 10:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF) 2. varaformaður, kl. 10:00
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 10:00
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG) fyrir Lilju Rafneyju Magnúsdóttur (LRM), kl. 10:00
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 10:00
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 10:00
Halldóra Mogensen (HallM), kl. 10:00
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 10:00
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 10:00

Nefndarritari: Arnar Kári Axelsson

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 10:00
Frestað.

2) Aðgerðir stjórnvalda vegna heimsfaraldurs kórónuveiru Kl. 10:05
10:05 Nefndin fjallaði um málið og fékk á fund sinn Ölmu D. Möller landlækni, Þórólf Guðnason sóttvarnalækni og Víði Reynisson frá embætti ríkislögreglustjóra. Ásamt þeim var Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis.

11:15 Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra, Birgi Jakobsson og Ástu Valdimarsdóttur frá heilbrigðisráðuneytinu.

3) 664. mál - atvinnuleysistryggingar og Ábyrgðasjóður launa Kl. 12:10
Nefndin ræddi málið.

4) Önnur mál Kl. 12:15
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 12:15