Framkvæmd fjárlaga 2015
(1501076)
Fjárlaganefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
24.08.2015 | 80. fundur fjárlaganefndar | Framkvæmd fjárlaga 2015 Ríkisendurskoðun: Sveinn Arason og Jón L Björnsson. Farið var yfir framkvæmd fjárlaga fyrstu sex mánuði ársins. Velferðarráðuneyti: Hlynur Hreinsson, Hrönn Ottósdóttir, Dagný Brynjólfsdóttir, Sturlaugur Tómasson og Sveinn Magnússon. Farið var yfir þann hluta af framkvæmd fjárlaga sem heyrir undir ráðuneytið. |
15.06.2015 | 77. fundur fjárlaganefndar | Framkvæmd fjárlaga 2015 Ríkisendurskoðun: Sveinn Arason og Jón L. Björnsson. Bankasýsla ríkisins: Jón Gunnar Jónsson. Farið var yfir sölu á eignarhlut ríkisins í viðskiptabönkum eftir að ríkissjóður stofnaði nýja banka í kjölfar bankahrunsins. Vegagerðin: Hreinn Haraldsson. Atvinnuvegaráðuneytið: Ingvi Már Pálsson og Þórður Reynisson. Farið var yfir aðdraganda að jarðgangaframkvæmd við Bakka á Húsavík og kostnaðaráætlanir. Einnig var farið yfir stöðu framkvæmda við Vaðlaheiðargöng. |
10.06.2015 | 75. fundur fjárlaganefndar | Framkvæmd fjárlaga 2015 Innanríkisráðuneytið: Sigurbergur Björnsson. Lagt fram ódagsett minnisblað ráðuneytisins um skýringar við hækkun kostnaðaráætlunar við gerð vegtengingar milli Húsavíkurhafnar og iðnaðarsvæðisins á Bakka. Sigurbergur fór yfir forsendur og fleira vegna jarðgangna við Bakka, Húsavík. Einnig yfir stöðu framkvæmda við Vaðlaheiðargöng. |
26.05.2015 | 68. fundur fjárlaganefndar | Framkvæmd fjárlaga 2015 Fjármála- og efnahagsráðuneytið: Bjarni Benediktsson og Guðmundur Árnason. Lagt fram minnisblað ráðuneytisins dags. 22. maí 2015 um fjáraukalagafrumvarp 2015, aukaframlög til brýnna framkvæmda á ferðamannastöðum og á vegakerfinu vegna stóraukins ferðamannastraums til landsins. |
04.05.2015 | 60. fundur fjárlaganefndar | Framkvæmd fjárlaga 2015 Velferðarráðuneytið: Sturlaugur Tómasson, Hlynur Hreinsson, Dagný Brynjólfsdóttir og Unnur Ágústsdóttir. Landspítali: María Heimisdóttir. Farið var yfir eftirlit með framkvæmd þeirra fjárlagaliða sem undir ráðuneytið heyra. Einnig var farið yfir fjármál Landspítalans. |
25.03.2015 | 53. fundur fjárlaganefndar | Framkvæmd fjárlaga 2015 Ríkissaksóknari: Sigríður Friðjónsdóttir. Embætti sérstaks saksóknara: Ólafur Þór Hauksson, Björn Þorvaldsson, Sveinn I. Magnússon og Ásdís Ingibjargardóttir Rætt var um rekstur embættanna. |
23.03.2015 | 52. fundur fjárlaganefndar | Framkvæmd fjárlaga 2015 Vegagerðin: Hreinn Haraldsson, Einar Pálmason og Hannes Már Sigurðsson. Rætt var um ábendingar sem fram koma í nýlegu veikleikamati fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Lagt fram yfirlit frá Vegagerðinni yfir framlög á fjárlögum til þjónustu o.fl. |
16.03.2015 | 51. fundur fjárlaganefndar | Framkvæmd fjárlaga 2015 Ríkisendurskoðun: Sveinn Arason og Jón L. Björnsson. Farið var yfir minnisblað Ríkisendurskoðunar dags. 16. mars 2015 um skil og afgreiðslu á rekstraráætlunum stofnana vegna 2015. |
11.03.2015 | 48. fundur fjárlaganefndar | Framkvæmd fjárlaga 2015 Velferðarráðuneytið: Hrönn Ottósdóttir, Dagný Brynjólfsdóttir, Sturlaugur Tómasson, Hlynur Hreinsson og Einar Magnússon. Mennta- og menningarmálaráðuneytið: Gísli Þ. Magnússon og Auður Árnadóttir. Innanríkisráðuneytið: Ragnhildur Hjaltadóttir, Pétur Fenger og Oddur Einarsson. Farið var yfir athugasemdir og ábendingar sem fram koma í minnisblaði frá fjármála- og efnahagsráðuneyti dags. 6. mars 2015. |
09.03.2015 | 46. fundur fjárlaganefndar | Framkvæmd fjárlaga 2015 Fjármála- og efnahagsráðuneyti: Ingþór Karl Eiríksson, Viðar Helgason og Sigurður H. Helgason. Farið var yfir áhættumat ráðuneytisins vegna eftirlits með framkvæmd fjárlaga. |