Framkvæmdasjóður aldraðra
(1702120)
Fjárlaganefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
12.03.2018 | 25. fundur fjárlaganefndar | Framkvæmdasjóður aldraðra Samþykkt af Willum Þór Þórssyni, Haraldi Benediktssyni, Birgi Þórarinssyni, Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur, Njáli Trausta Friðbertssyni og Páli Magnússyni að tilnefna Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur og Njál Trausta Friðbertsson í stjórn sjóðsins. Ólafur Ísleifsson og Ágúst Ólafur Ágústsson sátu hjá. Björn Leví Gunnarsson greiddi atkvæði gegn tilnefningunni og bókar eftirfarandi: „Það samræmist ekki lögum og reglum að alþingismenn taki sæti í nefndum sem starfa undir starfsreglum ráðherra. Það stríðir gegn því eftirlitshlutverki sem þingmaður á að sinna. Ég vísa í starfreglur um opinberar framkvæmdir, lög um skipan opinberra framkvæmda, siðareglur þingmanna, siðareglur um innri endurskoðun, og laga um endurskoðendur. Athugasemdir og spurningar voru lagðar fram en ekki svarað nema með vísun í hefðir. Hvorki af meiri hluta né í lögfræðilegu áliti sem nefndin fékk.“ |
26.02.2018 | 20. fundur fjárlaganefndar | Framkvæmdasjóður aldraðra Eftirfarandi bókun var lögð fram af formanni og samþykkt án mótatkvæða: „Ítrekaðar umræður hafa orðið í fjárlaganefnd vegna hæfis nefndarmanna til setu m.a. í stjórn framkvæmdsjóðs aldraða, í samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir og stjórn Fjarskiptasjóðs. Lagt til að forseti þingsins úrskurði um málið.“ |
19.02.2018 | 18. fundur fjárlaganefndar | Framkvæmdasjóður aldraðra Afgreiðslu málsins var frestað. |
27.02.2017 | 29. fundur fjárlaganefndar | Tilnefning í stjórn framkvæmdasjóðs aldraðra Afgreiðslu málsins var frestað. |