Útboð á ríkisstyrktum flugleiðum
Frumkvæðismál (2006101)
Umhverfis- og samgöngunefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
23.11.2020 | 13. fundur umhverfis- og samgöngunefndar | Útboð á ríkisstyrktum flugleiðum Dagskrárlið frestað. |
16.11.2020 | 10. fundur umhverfis- og samgöngunefndar | Útboð á ríkisstyrktum flugleiðum Á fund nefndarinnar mætti Páll Ágúst Ólafsson lögmaður af hálfu Flugfélags Austurlands, gerði grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna. Þá mættu Arnar Friðriksson, Friðrik Adólfsson og Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson frá Norlandair. Gerðu þeir grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna. |
12.11.2020 | 9. fundur umhverfis- og samgöngunefndar | Útboð á ríkisstyrktum flugleiðum Á fund nefndarinnar mætti Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra ásamt Ragnhildi Hjaltadóttur, Sigurbergi Björnssyni og Ólafi Kr. Hjörleifssyni frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna. |
09.11.2020 | 6. fundur umhverfis- og samgöngunefndar | Útboð á ríkisstyrktum flugleiðum Nefndin ákvað að fresta umfjöllun um málið. |
05.11.2020 | 5. fundur umhverfis- og samgöngunefndar | Útboð á ríkisstyrktum flugleiðum Á fund nefndarinnar mættu Hörður Guðmundsson og Kristján L. Möller frá Flugfélaginu Erni, reifuðu sjónarmið félagsins um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna. Þá mættu á fundinn Bergþóra Þorkelsdóttir, Bergþóra Kristinsdóttir og Ólafur Þór Leifsson frá Vegagerðinni ásamt Daniel Isebarn Ágústssyni lögmanni. Fóru þau yfir sjónarmið Vegagerðarinnar um málið og svörðuð spurningum nefndarmanna. |
12.06.2020 | 70. fundur umhverfis- og samgöngunefndar | Útboð á ríkisstyrktum flugleiðum Nefndin ræddi málið við Ólaf Kr. Hjörleifsson frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu og Bergþóru Þorkelsdóttur, Bergþóru Kristinsdóttur og Pétur Matthíasson frá Vegagerðinni. Gestir svöruðu spurningum nefndarmanna. |