Tilkynningar

Alþingismenn hitta kjósendur á kjördæmadögum

3.10.2018

Kjördæmadagar standa nú sem hæst og eru því engir þingfundir á Alþingi þessa vikuna. Kjördæmadagana nýta þingmenn til að fara út í kjördæmi sín og hitta kjósendur, sveitarstjórnafólk, fulltrúa fyrirtækja og fleiri. Næsti þingfundur verður haldinn þriðjudaginn 9. október samkvæmt starfsáætlun Alþingis.