Tilkynningar

Laust starf í alþjóðadeild skrifstofu Alþingis

12.9.2022

Ertu ferðalangur með áhuga á alþjóðamálum?

Skrifstofa Alþingis auglýsir eftir öflugum sérfræðingi til starfa í alþjóðadeild þingsins. Sérfræðingar deildarinnar veita utanríkismálanefnd og alþjóðanefndum faglega aðstoð og ráðgjöf, m.a. á sviði alþjóðamála, við undirbúning fyrir þátttöku í alþjóðlegum fundum, gagna- og upplýsingaöflun og undirbúning fyrir alþjóðlega þingmannafundi sem haldnir eru á Íslandi. Starfið er fjölbreytt og krefjandi í lifandi starfsumhverfi og því fylgja umtalsverð ferðalög.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með starfi alþjóðanefnda
  • Fagleg ráðgjöf á sviði alþjóðamála
  • Upplýsinga- og greiningarvinna, svo sem ritun minnisblaða og talpunkta
  • Skipulag alþjóðlegra funda og ráðstefna hérlendis
  • Skipulag þátttöku í fundum og ráðstefnum erlendis
  • Gerð þingmála

Hæfniskröfur

  • Meistarapróf á sviði alþjóðastjórnmála
  • Góð þekking á alþjóðamálum
  • Starfsreynsla á sviði alþjóðlegs samstarfs er kostur
  • Reynsla af skipulagningu funda og ráðstefna er kostur
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og sveigjanleiki
  • Frumkvæði, sjálfstæði, jákvæðni og skipulagshæfni
  • Framúrskarandi færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku
  • Góð kunnátta í dönsku eða öðru Norðurlandamáli

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem forseti Alþingis og Félag starfsmanna Alþingis hafa gert.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem umsækjandi rökstyður hæfni sína í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Starfið hentar öllum kynjum og áhugasöm eru hvött til að sækja um. Umsóknir gilda í sex mánuði frá auglýsingu þessari.

Gildi skrifstofu Alþingis eru fagmennska, virðing og framsækni.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 26.09.2022.

Nánari upplýsingar veitir

Hildur Eva Sigurðardóttir, forstöðumaður nefndasviðs – 563 0500

Smelltu hér til að sækja um starfið