Tilkynningar
Nefndadagur föstudaginn 21. maí
Föstudaginn 21. maí er nefndadagur samkvæmt starfsáætlun Alþingis. Þá gildir sérstök fundatafla og er samkvæmt venju fundað bæði fyrir og eftir hádegi í nefndum. Við ákvörðun fundartíma á nefndadögum er reynt að gæta samræmis og mið tekið af stöðu mála í nefndum og fundaþörf nefnda.
Fundatafla
- Kl. 9–12: Fjárlaganefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, utanríkismálanefnd og velferðarnefnd.
- Kl. 13–16: Allsherjar- og menntamálanefnd, atvinnuveganefnd, efnahags- og viðskiptanefnd og umhverfis- og samgöngunefnd.
Endanlegir fundartímar og dagskrár funda birtast venju samkvæmt á vef Alþingis.