Tilkynningar

Starf þingvarðar á rekstrar- og þjónustusviði Alþingis

23.8.2012

Skrifstofa Alþingis óskar að ráða þingvörð í framtíðarstarf. Um er að ræða fullt starf. Þingverðir starfa á rekstrar- og þjónustusviði Alþingis. Unnið er á dag- og helgarvöktum milli kl. 8.00-20.00. Viðkomandi verður að vera reiðubúinn að vinna yfirvinnu þegar þörf krefur.

Helstu verkefni:

  • Öryggisgæsla.
  • Móttaka gesta.
  • Eftirlitsferðir.
  • Akstur bifreiða.
  • Útréttingar og sendiferðir.
  • Skráning.
  • Önnur verkefni.

 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Stúdentspróf eða sambærileg menntun.
  • Rík þjónustulund.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Snyrtimennska og fáguð framkoma.
  • Gott líkamlegt ástand.
  • Góð tungumálakunnátta.

 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Félags starfsmanna Alþingis. Upphaf ráðningar er samkvæmt samkomulagi.

Nánari upplýsingar veitir Ólöf Þórarinsdóttir, forstöðumaður rekstrar- og þjónustusviðs, í síma 5630500.

Umsóknarfrestur rennur út mánudaginn 10. september. Umsóknir ásamt greinargóðum upplýsingum um reynslu og fyrri störf óskast sendar á netfangið: starfsmannahald@althingi.is.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsóknir gilda í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests. Alþingi er reyklaus vinnustaður.

Gildi skrifstofu Alþingis eru:
Þjónustulund. Fagmennska. Samvinna.