Fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar 17. apríl opinn fréttamönnum
Fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis 17. apríl kl. 9.00 verður opinn fréttamönnum meðan rætt verður um skýrslu um lífeyrissjóðina, gestir verða frá úttektarnefnd lífeyrissjóðanna og Landssamtökum lífeyrissjóða.
Dagskrá fundarins.
Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fjölmiðlamönnum meðan húsrúm leyfir. Fundurinn er opinn fréttamönnum en er hvorki tekinn upp né sent beint út frá honum á vegum Alþingis.
Fundurinn verður haldinn með stoð í nýju ákvæði 2. mgr. 19. gr. laga um þingsköp Alþingis.