Tilkynningar

Laust starf í mötuneyti

11.9.2014

Starfsmaður í mötuneyti


Skrifstofa Alþingis auglýsir eftir starfsmanni í mötuneyti í fullt starf. Ráðningin er tímabundin til eins árs með möguleika á framhaldsráðningu um eitt ár.


Helstu verkefni og ábyrgð


Matseld, bakstur og annar matarundirbúningur.

Uppþvottur og þrif.

Aðstoð við innkaup.

Undirbúningur og vinna við móttökur og fundi.

Önnur verkefni í mötuneyti.

Hæfnikröfur


Góð kunnátta í matargerð og bakstri.

Marktæk reynsla af vinnu í mötuneyti eða sambærilegu starfi.

Ástríða fyrir matargerð og vilji til að bæta við þekkingu.

Lipurð í mannlegum samskiptum og góð þjónustulund.

Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.

Snyrtimennska og stundvísi.

Frekari upplýsingar um starfið

Um laun starfsmanna Alþingis gildir kjarasamningur milli forseta Alþingis og Félags starfsmanna Alþingis.

Mötuneytið er í Skála Alþingis við Kirkjustræti. Þar borða daglega 100-140 manns. Lögð er áhersla á hollan og góðan hádegisverð sem eldaður er frá grunni. Einnig er útbúinn matur fyrir kvöldfundi Alþingis, aðra fundi og móttökur. Um er að ræða nýtt starf vegna breytinga, verða starfsmenn mötuneytis fjórir og vinna í teymi. Starfsmaður þarf að vera tilbúinn til að vinna óreglulega yfirvinnu. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Alþingi er reyklaus vinnustaður.

Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um stöðuna.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 29.09.2014

Nánari upplýsingar veitir

Ólöf Þórarinsdóttir - olof@althingi.is - 563 0500

Smelltu hér til að sækja um starfið.