Tilkynningar

Aðalfundur Hins íslenska þjóðvinafélags

18.3.2008

Aðalfundur Hins íslenska þjóðvinafélags var haldinn í Alþingishúsinu, fundarsal Alþingis, fimmtudaginn 13. mars 2008. Félagið var stofnað af alþingismönnum 19. ágúst 1871. Í lögum félagsins er það ákvæði að aðalfundir þess skuli haldnir á Alþingi annað hvert ár. Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, setti fundinn og stjórnaði honum. Þuríður Backman alþingismaður var fundarritari.

Ólafur Ásgeirsson þjóðskjalavörður, forseti Hins íslenska þjóðvinafélags, sat fundinn af hálfu forstöðumanna þess. Hann skýrði í stuttu máli frá störfum félagsins frá síðasta aðalfundi og gerði grein fyrir reikningum þess.

Að lokum fór fram kosning stjórnar félagsins og endurskoðenda þess. Ólafur Ásgeirsson þjóðskjalavörður var endurkosinn forseti félagsins, dr. Jónas Kristjánsson var endurkjörinn varaforseti, dr. Guðrún Kvaran orðabókarritstjóri, Heimir Þorleifsson sagnfræðingur og Gunnar Stefánsson dagskrárgerðarmaður voru endurkjörin meðstjórnendur. Endurskoðendur voru kjörnir Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi og Friðrik Ólafsson fyrrv. skrifstofustjóri Alþingis.

Þjóðvinafélagið gefur út ársritin Almanak og Andvara svo sem það hefur gert um 125 ár. Sögufélag annast afgreiðslu bóka og rita Þjóðvinafélagsins.