Tilkynningar

Skoðunarferðir í Alþingishúsinu sumarið 2015

2.7.2015

Í sumar verða skoðunarferðir um Alþingishúsið kl. 14 á þriðjudögum og fimmtudögum (7. júlí til 25. ágúst). Hægt verður að sjá sýningu sem sett var upp í tilefni 100 ára afmælis kosningarréttar kvenna og er tileinkuð konum á Alþingi og kosningarrétti kvenna. Panta þarf fyrir fram í síma 563 0500 eða senda póst á netfangið heimsoknir@althingi.is.