Tilkynningar

Skönnun Alþingismála lokið

3.10.2022

Síðastliðið ár hefur staðið yfir skráning og myndun á Alþingismálum (dagbókum Alþingis), í samstarfi skrifstofu Alþingis og Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns. Bækurnar hafa að geyma gríðarmiklar og fjölbreyttar heimildir um starfsemi Alþingis og þau erindi er því bárust, allt frá endurreisn þess árið 1845 og til og með 1913. 

Heimildirnar varpa nýju ljósi á störf Alþingis því þar er að finna bænaskrár, áskoranir, styrkbeiðnir og margt annað frá almenningi í landinu sem voru alla jafna ekki birt í Alþingistíðindum, heldur einungis umræður þingmanna um þau. Nú má kynnast því sem fólki lá á hjarta, t.d. undirskriftir þúsunda kvenna um bann við innflutningi áfengis árið 1895, beiðni um „Vitfirringaspítala“ árið 1897, ósk Katrínar Þorvaldsdóttur, ekkju Jóns Árnasonar þjóðsagnasafnara, um framfærslustyrk árið 1891 og margt fleira. Þessum erindum fylgdu oft uppdrættir, teikningar, rökstuðningur, greinargerðir, undirskriftalistar og annað sem fróðlegt er að skoða. Í bókunum er einnig að finna heimildir um innra starf þingsins, því þar má sjá umsóknir um störf þingsveina, beiðnir þingmanna um greiðslu á þingfararkaupi, lóðagjald af Alþingishúsinu, vottorð vegna fjarveru einstakra þingmanna og margt fleira.

Nú er verkinu lokið og allar bækurnar eru aðgengilegar á vef Alþingis og á Handrit.is.

Althingismal_1867_I-1310-Spine