Tilkynningar

Þingvarsla

11.8.2016

Skrifstofa Alþingis óskar eftir að ráða þingvörð í fullt starf
Skrifstofa Alþingis óskar eftir að ráða í þingvörslu. Þingverðir starfa á rekstrar- og þjónustusviði Alþingis. Unnið er á dagvöktum milli kl. 8.00-20.00 en umsækjendur verða að vera reiðubúnir að vinna yfirvinnu þegar þörf krefur.

Helstu verkefni og ábyrgð
Akstur bifreiða.
Öryggisgæsla.
Eftirlitsferðir.
Utanumhald og eftirlit með skráningum
Móttaka gesta.
Símsvörun.
Útréttingar og sendiferðir.
Önnur tilfallandi verkefni.

Hæfnikröfur
Stúdentspróf, iðnmenntun eða sambærileg menntun.
Færni og lipurð í mannlegum samskiptum.
Mjög góð tölvu- og tæknikunnátta.
Rík þjónustulund.
Snyrtimennska og fáguð framkoma.
Gott líkamlegt ástand.
Góð íslenskukunnátta
Góð tungumálakunnátta, einkum í ensku og Norðurlandamálum.

Frekari upplýsingar um starfið
Um laun starfsmanna Alþingis gildir kjarasamningur milli forseta Alþingis og Félags starfsmanna Alþingis. Áhersla er lögð á símenntun í starfi.

Umsækjandi skal senda umsókn sína rafrænt í gegnum ráðningarkerfi Orra. Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjandi rökstyður hæfni sína í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Skrifstofa Alþingis hvetur karla jafnt sem konur til að sækja um starfið.Tekið skal fram að umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Vakin er athygli á því að Alþingi er reyklaus vinnustaður.

Gildi skrifstofu Alþingis eru
þjónustulund, fagmennska og samvinna.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 29.08.2016

Nánari upplýsingar veitir
Ólöf Þórarinsdóttir - olof@althingi.is - 563 0500
Guðlaugur Ágústsson - gulli@althingi.is - 563 0500

Smelltu hér til að sækja um starfið