Tilkynningar

Útiþrautaleikur um Alþingi á Barnamenningarhátíð

21.4.2021

Framlag skrifstofu Alþingis til Barnamenningarhátíðar í Reykjavík í ár er sumarlegur útiþrautaleikur. Í honum geta börn og fjölskyldur þeirra spreytt sig á ýmsum spurningum og þrautum sem tengjast Alþingishúsinu og umhverfi þess.

Leiknum má hlaða niður af vef Alþingis, af vef Barnamenningarhátíðar og nálgast útprentuð eintök í Ráðhúsi Reykjavíkur. 

Barnamenningarhátíð hófst 20. apríl og til stendur til 14. júní 2021.

Althingi_sumar