7. fundur
á 152. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 15. október 2021 kl. 09:35


Mætt:

Birgir Ármannsson (BÁ) formaður, kl. 09:35
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:35
Diljá Mist Einarsdóttir (DiljE), kl. 09:35
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 10:30
Inga Sæland (IngS), kl. 09:35
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 09:35
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 09:35
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 09:35
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:35
Þórunn Sveinbjarnardóttir (ÞSv), kl. 09:35

Nefndarritarar:
Elisabeth Patriarca Kruger
Þórhallur Vilhjálmsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:35
Fundargerð 6. fundar var samþykkt.

2) Undirbúningur fyrir rannsókn kjörbréfa Kl. 09:35
Nefndin fjallaði um verkefni nefndarinnar og málsmeðferð.

Lagt var fram minnisblað dómsmálaráðuneytis um reglur um uppkosningar.

Þá fjallaði nefndin um minnisblað skrifstofunnar um mögulegar leiðir til þess að leiða í ljós staðreyndir málsins. Nefndin ræddi að nýta mismunandi leiðir, þ. á m. að undirbúningur rannsóknar verði milliliðalaus og að leita utanaðkomandi ráðgjafar.

3) Verkefni nefndarinnar og málsmeðferð Kl. 10:00
Nefndin fékk á sinn fund Finn Þór Vilhjálmsson saksóknara til að veita nefndinni ráðgjöf um mögulegar leiðir til að leiða í ljós staðreyndir málsins.

4) Störf nefndarinnar Kl. 10:40
Hlé var gert á fundi kl. 10:40-12:45.

Nefndin ræddi fyrirkomulag næstu funda.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 13:15