129. FUNDUR
miðvikudaginn 24. apríl,
kl. 8 síðdegis.
Almennar stjórnmálaumræður.
Umræðurnar skiptust í þrjár umferðir, 10 mínútur í fyrstu umferð og 6 mínútur í annarri og síðustu umferð.
Röð flokkanna var þessi í öllum umferðum: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin -- grænt framboð, Framsóknarflokkur og Frjálslyndi flokkurinn.
Fyrir Samfylkinguna talaði í fyrstu umferð Bryndís Hlöðversdóttir, 9. þm. Reykv., í annarri umferð Guðrún Ögmundsdóttir, 11. þm. Reykv., en í þriðju umferð talaði Guðmundur Árni Stefánsson, 6. þm. Reykn.
Fyrir Sjálfstæðisflokk talaði í fyrstu umferð Geir H. Haarde fjmrh., í annarri Tómas Ingi Olrich menntmrh. en í þeirri þriðju Sigríður Ingvarsdóttir, 4. þm. Norðurl. v.
Ræðumenn Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs voru í fyrstu umferð Árni Steinar Jóhannsson, 6. þm. Norðurl. e., í annarri umferð Þuríður Backman, 5. þm. Austurl., en Ögmundur Jónasson, 13. þm. Reykv., í þriðju umferð.
Fyrir Framsóknarflokk talaði Páll Pétursson félmrh. í fyrstu umferð, í annarri Hjálmar Árnason, 10. þm. Reykn., en í þriðju umferð Valgerður Sverrisdóttir, iðn.- og viðskrh.
Fyrir Frjálslynda flokkinn talaði í fyrstu umferð Guðjón A. Kristjánsson, 4. þm. Vestf., en Sverrir Hermannsson, 18. þm. Reykv., í annarri og í þriðju umferð.
[21:59]
Fundi slitið kl. 22:00.
---------------