Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Bryndís Haraldsdóttir
6. þm. SV, S, BHar
Bryndís Haraldsdóttir

   
Björt Ólafsdóttir

Björt Ólafsdóttir

Fædd á Torfastöðum, Biskupstungum, 2. mars 1983. Foreldrar: Ólafur Einarsson (fæddur 13. maí 1952) bóndi og barna- og fjölskyldumeðferðaraðili og Drífa Kristjánsdóttir (fædd 31. október 1950) oddviti, bóndi og barna- og fjölskyldumeðferðaraðili. Maki: Birgir Viðarsson (fæddur 7. september 1981) verkfræðingur. Foreldrar: Viðar Birgisson og Unnur Jónsdóttir. Börn: Garpur (2009), Fylkir (2015), Folda (2015).

Stúdentspróf MH 2003. BA-próf í sálfræði og kynjafræði HÍ 2007. M.Sc.-próf í mannauðsstjórnun frá Háskólanum í Lundi 2008.

Meðferðarfulltrúi við Meðferðarheimilið Torfastöðum 1997-2004. Stuðningsfulltrúi og verkefnastjóri á geðdeildum Landspítalans með námi 2006-2009. Starfaði við viðskiptaþróun og mannauðsmál á ráðgjafar- og þjónustumiðstöðinni Vinun 2010-2011. Mannauðs- og stjórnunarráðgjafi hjá Capacent 2011-2013. Umhverfis- og auðlindaráðherra 11. janúar til 30. nóvember 2017.

Formaður Geðhjálpar 2011-2013.

Alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis norður 2013-2017 (Björt framtíð).

Umhverfis- og auðlindaráðherra 2017.

6. varaforseti Alþingis 2016-2017.

Formaður þingflokks Bjartrar framtíðar 2016-2017.

Atvinnuveganefnd 2013-2016, velferðarnefnd 2013-2015, efnahags- og viðskiptanefnd 2016-2017, kjörbréfanefnd 2016-2017.



Síðast breytt 30.11.2017.





Þingmenn í stafrófsröð

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.