Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
8. þm. RN, V, ÞorbG
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir

   
Willum Þór Þórsson

Willum Þór Þórsson

Fæddur í Reykjavík 17. mars 1963. Foreldrar: Þór Guðmundsson (fæddur 16. janúar 1940) sjómaður og Ágústa Þyrí Andersen (fædd 20. ágúst 1941, dáin 16. mars 2006) ritari. Maki: Ása Brynjólfsdóttir (fædd 2. október 1967) lyfjafræðingur. Foreldrar: Brynjólfur Guttormsson og Ljósbjörg Alfreðsdóttir. Börn: Willum Þór (1998), Brynjólfur Darri (2000), Þyrí Ljósbjörg (2003), Ágústa Þyrí Andersen (2007), Þór Andersen (2009).

Stúdentspróf VÍ 1983. Cand. oecon. próf HÍ 1987. Cand. merc. próf frá Verslunarháskólanum í Kaupmannahöfn 1996. B.Ed.-próf HÍ 2003. Atvinnuþjálfararéttindi, UEFA Prolicence, frá enska knattspyrnusambandinu 2010.

Handknattleiksþjálfari 1986-1995. Kennari við MK 1986-2013. Starfaði hjá Samvinnuferðum-Landsýn 1988-1995. Kennari við Ferðamálaskólann 1993-2001. Knattspyrnuþjálfari 1997-2013. Í stjórn Sparisjóðs Kópavogs 2000-2007, varaformaður 2006-2007. Aðjúnkt við HR 2007-2010, stundakennari 2010-2013. Heilbrigðisráðherra síðan 28. nóvember 2021.

Í miðstjórn Framsóknarflokksins frá 2012.

Alþingismaður Suðvesturkjördæmis 2013-2016 og síðan 2017 (Framsóknarflokkur).

Varaþingmaður Suðvesturkjördæmis febrúar og maí-júní 2017 (Framsóknarflokkur).

Heilbrigðisráðherra síðan 2021.

4. varaforseti Alþingis 2019-2021.

Efnahags- og viðskiptanefnd 2013-2016 og 2020-2021, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd 2013-2016, fjárlaganefnd 2017-2021 (formaður 2017-2021), allsherjar- og menntamálanefnd 2013 og 2017-2019, þingskapanefnd 2019-2021.

Íslandsdeild þingmannanefnda EFTA og EES 2013-2016, þingmannanefnd Íslands og ESB 2013–2016, Íslandsdeild NATO-þingsins 2017-2021.



Síðast breytt 20.01.2022.


Twitter
Facebook

Símanúmer

Farsími: 8634572

Þingstörf
3. þm. SV , Framsfl., WÞÞ

Embætti:

Heilbrigðisráðherra


Velferðarráðuneyti
Hagsmunaskráning

Curriculum Vitae in English




Þingmenn í stafrófsröð

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.