Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. október 2000. Útgáfa 125b. Prenta í tveimur dálkum.
[Lög um skattskyldu lánastofnana]1)
1982 nr. 65 19. maí
1)L. 56/1994, 4. gr.
1. gr. [[[Lánastofnanir aðrar en eignarleigufyrirtæki], 1) sbr. þó 2. gr., skulu með þeim takmörkunum, er síðar greinir, skyld til að greiða tekjuskatt af öllum tekjum sínum hvar sem þeirra er aflað og eignarskatt af öllum eignum sínum hvar sem þær eru, í samræmi við ákvæði laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum.
… 1)
Lögbundin framlög, sem opinberir fjárfestingarlánasjóðir skv. 1. mgr. fá frá ríkissjóði eða sveitarfélögum, sem og lögbundnar tekjur þeirra aðrar, teljast ekki til tekjuskattsstofns viðkomandi sjóðs.] 2)
Skattskyldan tekur til þessara aðila sem lögaðila skv. 2. gr. laga nr. 75/1981 þrátt fyrir undanþáguákvæði 4. gr. sömu laga eða ákvæði annarra laga sem kunna að hafa undanþegið einstakar stofnanir opinberum gjöldum og sköttum.] 3)
1)L. 56/1994, 1. gr. 2)L. 48/1992, 1. gr. 3)L. 99/1988, 1. gr.
2. gr. [[Til skattskyldra tekna og eigna skv. 1. gr. teljast þó ekki tekjur og eignir Byggðastofnunar, Byggingarsjóðs ríkisins, Byggingarsjóðs verkamanna, Framkvæmdasjóðs Íslands, Framkvæmdasjóðs fatlaðra, Framkvæmdasjóðs aldraðra, Framleiðnisjóðs landbúnaðarins, Lánasjóðs sveitarfélaga og Lánasjóðs Vestur-Norðurlanda.] 1) Séu sjóðir þessir hluti af eða tengdir annarri skattskyldri starfsemi samkvæmt lögum þessum skal fjárhagur þeirra greinilega aðskilinn.] 2)
1)L. 48/1992, 2. gr. 2)L. 99/1988, 2. gr.
3. gr. [Heimildir til niðurfærslu viðskiptaskulda í 2. málsl. 3. tölul. 1. mgr. 31. gr. og 2. og 3. málsl. 5. tölul. 74. gr. laga um tekjuskatt og eignarskatt gilda ekki um skattskylda aðila samkvæmt lögum þessum.
Frá tekjum aðila sem skattskyldir eru samkvæmt lögum þessum má draga þau almennu og sérstöku framlög í afskriftareikning útlána sem gjaldfærð eru í rekstrarreikningi í samræmi við gildandi reglur um ársreikning þessara aðila. Staða afskriftareiknings útlána í árslok dregst frá við uppgjör á eignarskattsstofni.
Færsla á tillögum í afskriftareikning innan eigin fjár er ekki heimilt að draga frá tekjum. Þessi eiginfjárreikningur skal ekki dreginn frá við uppgjör á eignarskattsstofni.] 1)
1)L. 56/1994, 2. gr.
4. gr. Sé sparisjóði slitið, þannig að hann sé algjörlega sameinaður öðrum sparisjóði, ríkisstofnun eða hlutafélagi þá skulu slitin sjálf ekki hafa í för með sér skattskyldar tekjur fyrir þann aðila sem við tekur og heldur ekki fyrir þann sem slitið var. Við slíkan samruna skal sá aðili, er við tekur, taka við öllum skattaréttarlegum skyldum og réttindum þess sparisjóðs sem slitið var.
5. gr. [Innlánsstofnanir með lægri heildarinnlán en 50 millj. kr. í lok næsta árs á undan tekjuári skulu undanþegnar skattgreiðslum samkvæmt lögum þessum, en skulu engu að síður framtalsskyldar.
Undanþága skv. 1. mgr. miðast við heildarinnlán 31. desember 1982 og skal viðmiðunarfjárhæð síðan breytast árlega í samræmi við útreikning verðbreytingarstuðuls samkvæmt 26. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, í fyrsta sinn miðað við 31. desember 1983 vegna skattlagningar tekna og eigna ársins 1984.
Verði aðili, sem myndað hefur skattalegan varasjóð eða fengið frestað skattlagningu söluhagnaðar meðan hann er skattskyldur samkvæmt lögum þessum, síðar undanþeginn skattgreiðslu skv. 1. mgr. skal varasjóður og frestaður söluhagnaður, framreiknaður skv. 26. gr. laga nr. 75/1981, teljast til skattskyldra tekna síðasta skattskylduárs án viðurlaga. Hafi aðili myndað fjárfestingarsjóð skal hann einnig teljast til tekna á síðasta skattskylduári framreiknaður en án viðurlaga.] 1)
1)L. 51/1984, 3. gr.
6. gr. [Lánastofnanir skulu undanþegnar stimpilgjaldi af fjárskuldbindingum sem þær kunna að taka á sig.] 1)
1)L. 56/1994, 3. gr.
[7. gr.]1) Ráðherra er heimilt að kveða nánar á um framkvæmd laga þessara með reglugerð.
1)L. 48/1992, 3. gr.
[8. gr.]1) Lög þessi öðlast þegar gildi … 2)
1)L. 48/1992, 3. gr. 2)Sjá þó l. 143/1995, um gildistöku laganna gagnvart Iðnþróunarsjóði.
Ákvæði til bráðabirgða. …
[Á því ári þegar lög þessi öðlast gildi skulu viðskiptabankar og sparisjóðir samkvæmt þeim leysa upp og færa til skattskyldra tekna þá upphæð sem stendur á afskriftareikningi útlána sem byggist á ákvæði 3. gr. laga nr. 65/1982, sbr. 2. gr. laga nr. 51/1984. Miða skal tekjufærslu við stöðu reikningsins 31. desember [1994]. 1) Ákvæði 1. gr. laga þessara skulu síðan gilda um skattaleg reikningsskil viðkomandi skattaðila frá því tímamarki.] 2)
1)L. 153/1994, 1. gr. 2)L. 56/1994, brbákv.