Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. febrúar 2011. Útgáfa 139a. Prenta í tveimur dálkum.
[Lög um flugmálaáætlun og fjáröflun til flugmála]1)
1987 nr. 31 27. mars
1)L. 73/2002, 8. gr.
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 1. júlí 1987. Breytt með l. 94/1992 (tóku gildi 3. des. 1992), l. 148/1994 (tóku gildi 1. jan. 1995), l. 144/1995 (tóku gildi 1. jan. 1996; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 59. gr.), l. 140/1996 (tóku gildi 1. jan. 1997), l. 130/1997 (tóku gildi 1. jan. 1998 nema 12. gr. sem tók gildi 30. des. 1997), l. 56/1998 (tóku gildi 1. júní 1998), l. 73/2002 (tóku gildi 1. jan. 2003 nema ákvæði til bráðabirgða sem tók gildi 17. maí 2002), l. 73/2002 (tóku gildi 4. nóv. 2002, sbr. l. 111/2002) og l. 95/2004 (tóku gildi 1. okt. 2004).
I. kafli. Flugmálaáætlun.
1. gr. [Flugmálaáætlun skal gerð samkvæmt lögum um samgönguáætlun. Með flugmálaáætlun samkvæmt lögum þessum er átt við flugmálaáætlunarkafla samgönguáætlunar, sbr. lög um samgönguáætlun.
Í flugmálaáætlun skal gerð grein fyrir allri fjáröflun til flugmála og útgjöld sundurliðuð eftir helstu rekstrar- og framkvæmdaflokkum. Sé fé veitt á annan hátt til framkvæmda í flugmálum skal farið með það innan flugmálaáætlunar.] 1)
1)L. 73/2002, 3. gr.
2. gr. Í flugmálaáætlun skulu taldir allir flugvellir, nýbyggingar flugvalla og búnaður fyrir flugleiðsögu og flugumferðarstjórn á gildistíma áætlunarinnar. Enn fremur áætlaður kostnaður við viðhald flugvalla og annar kostnaður flugmálastjórnar á sama tímabili.
… 1)
1)L. 73/2002, 4. gr.
3. gr. [Verkefnum skal skipað í flokka samkvæmt nánari skilgreiningu í samgönguáætlun.] 1)
1)L. 73/2002, 5. gr.
4. gr. … 1)
1)L. 73/2002, 6. gr.
II. kafli. [Fjáröflun til flugmála.]1)
1)L. 73/2002, 7. gr.
[5. gr.]1) [Greiða skal sérstakan skatt, flugvallaskatt, vegna hvers manns sem ferðast með loftfari í flutningaflugi innan lands eða frá Íslandi til annarra landa. Flugvallaskattur skal vera 382 kr. fyrir hvern farþega.
Undanþegin skattskyldu eru börn innan tveggja ára aldurs, skráðar áhafnir loftfara, þeir sem viðkomu hafa á Íslandi samkvæmt farseðli eða ígildi hans milli annarra Evrópulanda og Norður-Ameríku og þeir sem ferðast með loftförum varnarliðs Bandaríkja Norður-Ameríku hér á landi. Fyrir farþega á aldrinum tveggja til tólf ára skal greiða helming skattsins.
Einungis skal greitt eitt gjald þó að millilent sé milli brottfararstaðar og ákvörðunarstaðar vegna flugáætlunar innan lands, enda vari viðdvöl samkvæmt áætluninni ekki lengur en sex klukkustundir.] 2)
1)L. 56/1998, 1. gr. 2)L. 95/2004, 1. gr.
[6. gr.]1) [Til að fjármagna viðbótarkostnað vegna rekstrar og viðhalds alþjóðlegra varaflugvalla á Íslandi skal greiða sérstakt gjald, varaflugvallagjald, vegna hvers manns sem ferðast með loftfari í flutningaflugi frá Íslandi til annarra landa. Varaflugvallagjald skal vera 598 kr. fyrir hvern farþega.
Undanþegin gjaldskyldu eru börn innan tveggja ára aldurs, skráðar áhafnir loftfara, þeir sem viðkomu hafa á Íslandi samkvæmt farseðli eða ígildi hans milli annarra Evrópulanda og Norður-Ameríku og þeir sem ferðast með loftförum varnarliðs Bandaríkja Norður-Ameríku hér á landi. Fyrir farþega á aldrinum tveggja til tólf ára skal greiða hálft gjald.] 2)
1)L. 56/1998, 1. gr. 2)L. 95/2004, 2. gr.
[7. gr.]1) [Ábyrgð á innheimtu flugvallaskatts og varaflugvallagjalds hvílir á skráðum umráðendum í loftfaraskrá að íslenskum loftförum og á eigendum erlendra loftfara.
Flugvallaskatts og varaflugvallagjalds skal getið í verði farseðils eða í skriflegri yfirlýsingu sé farsamningur rafrænn.] 2)
1)L. 56/1998, 1. gr. 2)L. 95/2004, 3. gr.
[8. gr.]1) [Flugvallaskatt og varaflugvallagjald vegna farþega sem fluttir eru með loftförum sem skráð eru erlendis og allra loftfara sem ekki er flogið á áætlunarleiðum skal greiða fulltrúum Flugmálastjórnar fyrir brottför loftfars um leið og afhent er skrá yfir farþega með því og hverjir eru gjaldfrjálsir skv. 2. mgr. 5. gr. og 2. mgr. 6. gr. eða greiða hálft gjald samkvæmt sömu ákvæðum. Skrá þessi skal undirrituð af flugstjóra eða umboðsmanni flugfélags á flugvelli. Heimilt skal að afhenda skrána á rafrænu formi.] 2)
1)L. 56/1998, 1. gr. 2)L. 95/2004, 4. gr.
[9. gr.]1) [Flugvallaskatt og varaflugvallagjald vegna farþega sem ferðast með áætlunarflugi á viðurkenndum áætlunarleiðum skal greiða Flugmálastjórn eigi síðar en 15. dag næsta almanaksmánaðar eftir brottför. Ákvæði 8. gr. um afhendingu skrár yfir fjölda farþega gilda einnig um áætlunarflug samkvæmt þessari grein.] 2)
1)L. 56/1998, 1. gr. 2)L. 95/2004, 5. gr.
[10. gr.]1) … 2)
1)L. 56/1998, 1. gr. 2)L. 95/2004, 6. gr.
[11. gr.]1) Sé [flugvallaskatti og varaflugvallagjaldi] 2) ekki skilað á réttum gjalddaga skal sá sem gjaldinu ber að skila greiða af því viðurlög er nemi 1% fyrir hverja byrjaða viku frá gjalddaga. Nú er skrifstofa flugmálastjórnar lokuð 15. dag mánaðar og telst þá gjalddagi vera næsti dagur þar á eftir sem skrifstofan er opin til almennrar afgreiðslu.
[Flugvallaskatti og varaflugvallagjaldi] 2) fylgir lögtaksréttur.
Heimilt er innheimtumanni að láta lögreglu stöðva atvinnurekstur þess er eigi gerir skil á réttum gjalddaga þar til skil eru gerð, m.a. með því að setja skrifstofur, starfsstofur og flutningstæki hans undir innsigli.
1)L. 56/1998, 1. gr. 2)L. 95/2004, 7. gr.
[12. gr.]1) [Flugvallaskatti skal varið til framkvæmda í flugmálum, reksturs flugvalla, rannsókna og sérstakra tímabundinna verkefna í flugöryggismálum samkvæmt samgönguáætlun. Varaflugvallagjaldi skal varið til að fjármagna viðbótarkostnað sem fellur til við rekstur og viðhald alþjóðlegra varaflugvalla á Íslandi.] 2)
1)L. 56/1998, 1. gr. 2)L. 93/2004, 8. gr.
[13. gr.]1) [Fjárhæð varaflugvallagjalds skv. 6. gr. skal endurskoða á tveggja ára fresti til þess að gjaldið endurspegli raunkostnað við rekstur og viðhald alþjóðlegra varaflugvalla. Einnig skal á sama tíma endurskoða grundvöll gjaldtökunnar með hliðsjón m.a. af breytingum sem kunna að hafa orðið á innlendu og alþjóðlegu lagaumhverfi flugmála og breytingum á gjaldtöku í samkeppnislöndum Íslands.] 2)
1)L. 56/1998, 1. gr. 2)L. 95/2004, 9. gr.
[14. gr.]1) Til greiðslu kostnaðar samkvæmt flugmálaáætlun skal auk þeirra tekna sem aflað verður samkvæmt ákvæðum laga þessara veita sérstakt framlag á fjárlögum.
Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara.
1)L. 56/1998, 1. gr.
[15. gr.]1) Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 1987. …
1)L. 56/1998, 1. gr.
Ákvæði til bráðabirgða. …