Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. janúar 2016. Útgáfa 145a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um Seðlabanka Íslands
2001 nr. 36 22. maí
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 23. maí 2001. Breytt með l. 129/2004 (tóku gildi 31. des. 2005), l. 5/2009 (tóku gildi 27. febr. 2009), l. 87/2009 (tóku gildi 20. ágúst 2009), l. 98/2009 (tóku gildi 1. okt. 2009 nema 69. og 70. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2010), l. 84/2011 (tóku gildi 30. júní 2011 nema 1. gr. og c-liður 14. gr. sem tóku gildi 1. sept. 2012), l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011), l. 127/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011), l. 92/2013 (tóku gildi 18. júlí 2013), l. 122/2014 (tóku gildi 31. des. 2014) og l. 59/2015 (tóku gildi 17. júlí 2015).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við fjármála- og efnahagsráðherra eða fjármála- og efnahagsráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
I. kafli. Staða, markmið og verkefni.
1. gr. Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins. Um stjórn hans fer samkvæmt lögum þessum.
Ríkissjóður ber ábyrgð á öllum skuldbindingum Seðlabankans.
2. gr. Aðsetur og varnarþing Seðlabanka Íslands er í Reykjavík.
3. gr. Meginmarkmið Seðlabanka Íslands er að stuðla að stöðugu verðlagi. Með samþykki [ráðherra] 1) er Seðlabankanum heimilt að lýsa yfir tölulegu markmiði um verðbólgu.
Seðlabankinn skal stuðla að framgangi stefnu ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum, enda telji hann það ekki ganga gegn meginmarkmiði sínu skv. 1. mgr.
1)L. 98/2009, 46. gr.
4. gr. [Seðlabanki Íslands skal stuðla að fjármálastöðugleika.] 1)
Seðlabanki Íslands skal sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjaldeyrisvarasjóð og að stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi, þ.m.t. greiðslukerfi í landinu og við útlönd.
1)L. 92/2013, 1. gr.
II. kafli. Útgáfa seðla og myntar.
5. gr. Seðlabanki Íslands hefur einkarétt til þess að gefa út peningaseðla og láta slá og gefa út mynt eða annan gjaldmiðil sem geti gengið manna á milli í stað peningaseðla eða löglegrar myntar.
Seðlar og mynt sem Seðlabankinn gefur út skulu vera lögeyrir til allra greiðslna með fullu ákvæðisverði.
Tilefnismynt sem Seðlabankinn gefur út skal vera lögeyrir til allra greiðslna með fullu ákvæðisverði. Seðlabankanum er heimilt að ákveða að tilefnismynt sé seld með álagi á ákvæðisverð hennar. Ágóða af sölu tilefnismyntar skal varið til lista, menningar eða vísinda samkvæmt ákvörðun [ráðherra]. 1)
[Ráðherra] 1) ákveður að fengnum tillögum Seðlabankans lögun, útlit og fjárhæð seðla þeirra og myntar sem bankinn gefur út og lætur birta auglýsingu um það efni.
1)L. 98/2009, 46. gr.
III. kafli. Innlend viðskipti.
6. gr. Seðlabanki Íslands tekur við innlánum frá innlánsstofnunum en til þeirra teljast viðskiptabankar, sparisjóðir, útibú erlendra innlánsstofnana og aðrar stofnanir og félög sem heimilt er lögum samkvæmt að taka við innlánum frá almenningi til geymslu og ávöxtunar. Honum er einnig heimilt að taka við innlánum frá öðrum lánastofnunum og fyrirtækjum í verðbréfaþjónustu.
Seðlabankinn setur nánari reglur 1) um viðskipti sín samkvæmt þessari grein, þar á meðal hvaða lánastofnunum öðrum en innlánsstofnunum er heimilt að eiga innstæður í bankanum.
1) Rgl. 540/2007.
7. gr. Seðlabanki Íslands getur veitt lánastofnunum, sem geta átt innlánsviðskipti við bankann, sbr. 6. gr., lán með kaupum á verðbréfum eða á annan hátt gegn tryggingum sem bankinn metur gildar. Lánsviðskipti þessi geta verið í innlendri eða erlendri mynt. Bankinn setur nánari reglur 1) um viðskipti sín samkvæmt þessari málsgrein.
Þegar sérstaklega stendur á og Seðlabankinn telur þess þörf til að varðveita traust á fjármálakerfi landsins getur hann veitt lánastofnunum í lausafjárvanda ábyrgðir eða önnur lán en um ræðir í 1. mgr. á sérstökum kjörum og gegn öðrum tryggingum en um getur í 1. mgr. eða öðrum skilyrðum sem bankinn setur.
1) Rgl. 553/2009.
8. gr. Til að ná markmiðum sínum skv. 3. gr. kaupir Seðlabanki Íslands og selur ríkistryggð verðbréf og önnur trygg innlend verðbréf á verðbréfamarkaði eða í beinum viðskiptum við lánastofnanir.
9. gr. Seðlabanka Íslands er heimilt að gefa út framseljanleg verðbréf í innlendri eða erlendri mynt til að selja lánastofnunum sem geta átt innlánsviðskipti við hann, sbr. 6. gr.
10. gr. Seðlabanki Íslands ákveður vexti af innlánum við bankann, af lánum sem hann veitir og af verðbréfum sem hann gefur út.
11. gr. Seðlabanka Íslands er heimilt að ákveða að lánastofnanir skuli eiga fé á bundnum reikningi í bankanum. Honum er einnig heimilt að ákveða að tiltekinn hluti aukningar innlána eða ráðstöfunarfjár við hverja stofnun skuli bundinn á reikningi í bankanum, enda fari heildarfjárhæð sem viðkomandi stofnun er skylt að eiga í Seðlabankanum ekki fram úr því hámarki sem sett er skv. 1. málsl. þessarar málsgreinar. Enn fremur er Seðlabankanum heimilt að ákveða að verðbréfasjóðir skuli eiga fé á bundnum reikningi í bankanum.
Seðlabankinn setur nánari reglur 1) um grundvöll og framkvæmd bindingar samkvæmt þessari grein, þar á meðal til hvaða lánastofnana hún tekur. Í þeim má ákveða að bindihlutfall sé mismunandi eftir eðli lánastofnana og verðbréfasjóða og flokkum innlána og annarra skuldbindinga sem bindingin nær til. Gæta skal jafnræðis við ákvörðun bindiskyldu þannig að hún valdi ekki röskun á samkeppnisstöðu á milli þeirra innlendu fyrirtækja sem sæta innlánsbindingu.
1) Rgl. 870/2015.
12. gr. Seðlabanka Íslands er heimilt að setja reglur 1) um lágmark eða meðaltal lauss fjár lánastofnana [í íslenskum krónum og erlendum gjaldmiðlum] 2) sem þeim ber ætíð að hafa yfir að ráða í þeim tilgangi að mæta fyrirsjáanlegum og hugsanlegum greiðsluskuldbindingum á tilteknu tímabili, sbr. 4. gr. Í þeim má ákveða að mismunandi ákvæði gildi um einstaka flokka lánastofnana.
[Seðlabanka Íslands er heimilt að setja reglur 3) um lágmark stöðugrar fjármögnunar lánastofnana í íslenskum krónum og erlendum gjaldmiðlum, sbr. 4. gr. Í þeim má ákveða að mismunandi ákvæði gildi um einstaka flokka lánastofnana.] 2)
1) Rgl. 1031/2014. 2)L. 92/2013, 2. gr. 3) Rgl. 1032/2014, sbr. rgl. 336/2015.
13. gr. Seðlabanka Íslands er heimilt að setja lánastofnunum reglur 1) um gjaldeyrisjöfnuð. [Seðlabankinn skilgreinir hvaða eignir og skuldir skuli telja til gjaldeyrisjafnaðar, sundurliðun þeirra og vægi. Til slíks jafnaðar er heimilt að telja skuldbindingar og kröfur sem tengdar eru erlendum gjaldmiðlum utan efnahags, svo sem framvirka samninga og valréttarsamninga. Í reglum um gjaldeyrisjöfnuð má ákveða að mismunandi ákvæði gildi um einstaka flokka lánastofnana.] 2)
1) Rgl. 950/2010, sbr. rgl. 1171/2012 og rgl. 1138/2013. 2)L. 92/2013, 3. gr.
14. gr. Seðlabanki Íslands annast hvers konar bankaþjónustu fyrir ríkissjóð aðra en lánafyrirgreiðslu, sbr. 16. gr. Innstæður ríkissjóðs skulu varðveittar á reikningum í Seðlabankanum nema sérstakar aðstæður gefi tilefni til annars.
Seðlabankinn skal vera ríkisstjórn til ráðuneytis um allt sem varðar gjaldeyrismál, þar á meðal erlendar lántökur, og taka að sér framkvæmd í þeim efnum eftir því sem um verður samið.
15. gr. Stjórnvöld veita Seðlabanka Íslands þær upplýsingar um efnahagsmál almennt og um ríkisfjármál, lántökur og greiðsluáætlanir ríkissjóðs sem nauðsynlegar eru fyrir starfsemi bankans.
16. gr. Seðlabanka Íslands er óheimilt að veita ríkissjóði, sveitarfélögum og ríkisstofnunum öðrum en lánastofnunum lán.
Verðbréf, sem skráð eru í opinberri kauphöll og gefin eru út af þeim aðilum sem um ræðir í 1. mgr. og Seðlabankinn kaupir á verðbréfamarkaði eða af lánastofnunum til að ná markmiðum sínum í peningamálum, skulu ekki teljast lán samkvæmt ákvæðum þessarar greinar.
17. gr. Seðlabanki Íslands stundar önnur banka- og verðbréfaviðskipti sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka. Í því skyni er bankanum meðal annars heimilt að eiga aðild að og hlut í fyrirtækjum og stofnunum á sviði kauphallarstarfsemi, verðbréfaskráningar og greiðslukerfa.
Seðlabankanum er óheimilt að annast viðskipti við einstaklinga og fyrirtæki sem samkvæmt lögum, venju eða eðli máls teljast verkefni annarra. Honum er þó heimilt að annast frumsölu og innlausn verðbréfa sem ríkissjóður hefur gefið út.
IV. kafli. Gengismál, gjaldeyrismarkaður og erlend viðskipti.
18. gr. Seðlabanki Íslands verslar með erlendan gjaldeyri, hefur milligöngu um gjaldeyrisviðskipti og stundar önnur erlend viðskipti sem samrýmast markmiðum og hlutverki bankans.
Að fengnu samþykki [ráðherra] 1) ákveður Seðlabankinn hvaða stefna skuli gilda um ákvörðun á verðgildi íslensku krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum.
Seðlabankinn setur reglur 2) um starfsemi skipulegra gjaldeyrismarkaða eftir því sem kveðið er á um í lögum um gjaldeyrismál. Þegar sérstaklega stendur á getur Seðlabankinn tímabundið takmarkað eða stöðvað viðskipti á skipulegum gjaldeyrismörkuðum.
1)L. 98/2009, 46. gr. 2) Rgl. 187/2002. Rgl. 1098/2008.
19. gr. Hvern virkan dag sem skipulegir gjaldeyrismarkaðir eru almennt starfandi skal Seðlabanki Íslands skrá gengi krónunnar gagnvart helstu gjaldmiðlum. Það gengi skal notað til viðmiðunar í opinberum samningum, dómsmálum og öðrum samningum milli aðila þegar önnur gengisviðmiðun er ekki sérstaklega tiltekin. Enn fremur getur Seðlabankinn ákveðið að skrá gengi krónunnar á þeim dögum sem skipulegir gjaldeyrismarkaðir eru almennt ekki starfandi. Þegar sérstaklega stendur á getur Seðlabankinn tímabundið fellt niður skráningu á gengi krónunnar.
20. gr. Seðlabanki Íslands varðveitir gjaldeyrisvarasjóð í samræmi við markmið og hlutverk bankans. [Seðlabankastjóri] 1) setur starfsreglur um varðveislu gjaldeyrisvarasjóðsins sem bankaráð staðfestir, sbr. 28. gr.
Seðlabankanum er heimilt að taka lán til að efla gjaldeyrisvarasjóðinn. Honum er jafnframt heimilt að taka þátt í samstarfi erlendra seðlabanka og alþjóðlegra banka- eða fjármálastofnana um lánveitingar til að efla gjaldeyrisvarasjóð þátttakenda.
1)L. 5/2009, 1. gr.
21. gr. Seðlabanki Íslands annast samskipti og viðskipti við alþjóðlegar stofnanir á starfssviði sínu í umboði ríkisstjórnarinnar eða eftir því sem honum er falið með lögum.
Seðlabankinn fer með fjárhagsleg tengsl við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn fyrir hönd ríkisins. [Ráðherra] 1) skipar einn mann og annan til vara til fimm ára í senn til þess að taka sæti í sjóðsráði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Seðlabankanum er jafnframt heimilt að eiga aðild að öðrum alþjóðlegum stofnunum, enda samrýmist það hlutverki hans sem seðlabanka.
1)L. 98/2009, 46. gr.
V. kafli. Stjórnskipulag.
22. gr. Yfirstjórn Seðlabanka Íslands er í höndum [ráðherra] 1) og bankaráðs svo sem fyrir er mælt í lögum þessum. [Ákvarðanir um beitingu stjórntækja bankans í peningamálum eru teknar af peningastefnunefnd, sbr. 24. gr. Stjórn bankans er að öðru leyti í höndum seðlabankastjóra.] 2)
1)L. 126/2011, 321. gr. 2)L. 5/2009, 2. gr.
23. gr. [[Ráðherra] 1) skipar seðlabankastjóra og aðstoðarseðlabankastjóra til fimm ára í senn. Seðlabankastjóri og aðstoðarseðlabankastjóri skulu hafa lokið háskólaprófi í hagfræði eða tengdum greinum og búa yfir víðtækri reynslu og þekkingu á fjármálastarfsemi og efnahags- og peningamálum. Aðeins er hægt að skipa sama mann seðlabankastjóra eða aðstoðarseðlabankastjóra tvisvar sinnum. Seðlabankastjóri ber ábyrgð á rekstri bankans og fer með ákvörðunarvald í öllum málefnum hans sem ekki eru falin öðrum með lögum þessum. Aðstoðarseðlabankastjóri er staðgengill seðlabankastjóra.
Við skipun í embætti seðlabankastjóra og aðstoðarseðlabankastjóra skal [ráðherra] 1) skipa þriggja manna nefnd er hafi það hlutverk að leggja mat á hæfni umsækjenda. Skal einn nefndarmaður skipaður samkvæmt tilnefningu samstarfsnefndar háskólastigsins, einn samkvæmt tilnefningu bankaráðs Seðlabanka Íslands og einn án tilnefningar og skal hann vera formaður nefndarinnar.
Forfallist seðlabankastjóri eða aðstoðarseðlabankastjóri getur [ráðherra] 1) sett menn tímabundið í stöður þeirra.
Seðlabankastjóri setur reglur um umboð starfsmanna og aðstoðarseðlabankastjóra til að skuldbinda bankann með undirskrift sinni og skulu reglurnar staðfestar af bankaráði, sbr. 28. gr.] 2)
1)L. 98/2009, 46. gr. 2)L. 5/2009, 3. gr.
24. gr. [Ákvarðanir um beitingu stjórntækja bankans í peningamálum eru teknar af peningastefnunefnd. Stjórntæki bankans teljast í þessu sambandi vera vaxtaákvarðanir hans, viðskipti við lánastofnanir önnur en tilgreind eru í 2. mgr. 7. gr., ákvörðun bindiskyldu skv. 11. gr. og viðskipti á gjaldeyrismarkaði skv. 18. gr. sem hafa það að markmiði að hafa áhrif á gengi krónunnar. Ákvarðanir peningastefnunefndar skulu grundvallast á markmiðum bankans og vönduðu mati á ástandi og horfum í efnahags- og peningamálum og fjármálastöðugleika.
Í peningastefnunefnd situr seðlabankastjóri, aðstoðarseðlabankastjóri, einn af yfirmönnum bankans á sviði mótunar eða stefnu í peningamálum og tveir sérfræðingar á sviði efnahags- og peningamála sem [ráðherra] 1) skipar til fimm ára í senn. Seðlabankastjóri er jafnframt formaður peningastefnunefndar. Peningastefnunefnd er ályktunarhæf ef fjórir af fimm nefndarmönnum sitja fund nefndarinnar. Ákvarðanir peningastefnunefndar skulu teknar með einföldum meiri hluta, en falli atkvæði jöfn ræður atkvæði formanns eða staðgengils hans. Peningastefnunefnd skal halda fundi að minnsta kosti átta sinnum á ári. Auk þess getur peningastefnunefnd haldið fund ef formaður ákveður eða þrír nefndarmenn krefjast þess. Peningastefnunefnd setur sér starfsreglur sem bankaráð staðfestir um undirbúning, rökstuðning og kynningu ákvarðana sinna í peningamálum. Opinberlega skal birta fundargerðir peningastefnunefndar og gera grein fyrir ákvörðunum nefndarinnar og forsendum þeirra. Ef peningastefnunefnd metur það svo að alvarleg hættumerki séu til staðar sem ógna fjármálakerfinu skal hún opinberlega gefa út viðvaranir þegar tilefni er til. Peningastefnunefnd getur þó ákveðið að skýra ekki frá ákvörðunum um viðskipti á gjaldeyrismarkaði skv. 18. gr.
Peningastefnunefnd skal gefa Alþingi skýrslu um störf sín tvisvar á ári. [Skal ræða skýrsluna í þeirri þingnefnd sem þingforseti ákveður.] 2)] 3)
1)L. 98/2009, 46. gr. 2)L. 84/2011, 42. gr. 3)L. 5/2009, 4. gr.
25. gr. [Seðlabankastjóra og aðstoðarseðlabankastjóra er óheimilt að sitja í stjórnum stofnana og atvinnufyrirtækja utan bankans eða taka þátt í atvinnurekstri að öðru leyti nema slíkt sé boðið í lögum eða um sé að ræða stofnun eða atvinnufyrirtæki sem bankinn á aðild að. [Ráðherra] 1) hefur úrskurðarvald ef ágreiningur rís um beitingu þessa ákvæðis.
Um þátttöku annarra starfsmanna Seðlabanka Íslands í stjórnum stofnana og atvinnufyrirtækja skal seðlabankastjóri setja reglur sem bankaráð staðfestir, sbr. 28. gr.
Nefndarmönnum í peningastefnunefnd sem [ráðherra] 1) skipar er óheimilt að sinna störfum utan bankans sem geta verið til þess fallin að draga óhlutdrægni þeirra í efa. [Ráðherra] 1) hefur úrskurðarvald ef ágreiningur rís um beitingu þessa ákvæðis. [Ráðherra] 1) getur með reglugerð kveðið nánar á um hæfisskilyrði nefndarmanna í peningastefnunefnd.] 2)
1)L. 98/2009, 46. gr. 2)L. 5/2009, 5. gr.
26. gr. Kjósa skal bankaráð Seðlabanka Íslands að loknum kosningum til Alþingis. Bankaráð skipa sjö fulltrúar kjörnir hlutbundinni kosningu af Alþingi ásamt jafnmörgum til vara. Eigi má kjósa stjórnendur eða starfsmenn lánastofnana eða annarra fjármálastofnana sem eiga viðskipti við bankann til setu í bankaráði. Umboð bankaráðs gildir þar til nýtt bankaráð hefur verið kjörið. Láti bankaráðsmaður af störfum tekur varamaður sæti hans þar til Alþingi hefur kosið nýjan aðalmann til loka kjörtímabils bankaráðsins.
Bankaráð velur formann og varaformann úr eigin röðum. Ráðherra ákveður þóknun bankaráðs sem greidd er af Seðlabankanum.
27. gr. Formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands kallar bankaráð saman til fundar. Ætíð skal þó halda bankaráðsfund þegar tveir bankaráðsmenn óska þess. Fundur bankaráðs er ályktunarhæfur ef meiri hluti bankaráðs situr fund. Afl atkvæða ræður úrslitum við afgreiðslu mála. Falli atkvæði jafnt ræður atkvæði formanns. Á fundum bankaráðs skal halda gerðabók.
[Seðlabankastjóri situr fundi bankaráðs og hefur þar tillögurétt og tekur þátt í umræðum. Hann skal þó víkja af fundi ef bankaráð ákveður.] 1)
1)L. 5/2009, 6. gr.
28. gr. Bankaráð hefur eftirlit með því að Seðlabanki Íslands starfi í samræmi við lög sem um starfsemina gilda. [Seðlabankastjóri] 1) skal jafnan upplýsa bankaráð um helstu þætti í stefnu bankans og um reglur sem hann setur. Að öðru leyti skal bankaráð sérstaklega sinna eftirtöldum verkefnum:
a. Staðfesta tillögur [seðlabankastjóra] 1) um höfuðþætti í stjórnskipulagi bankans.
b. [Ákveða laun og önnur starfskjör aðstoðarseðlabankastjóra og fulltrúa í peningastefnunefnd, þ.m.t. rétt til biðlauna og eftirlauna. Kjararáð ákveður laun og önnur starfskjör seðlabankastjóra önnur en rétt til biðlauna og eftirlauna og önnur atriði sem varða fjárhagslega hagsmuni hans sem bankaráðið ákveður.] 2)
c. Hafa umsjón með innri endurskoðun við bankann og ráða aðalendurskoðanda.
d. Staðfesta starfsreglur sem [peningastefnunefnd] 1) setur um undirbúning, rökstuðning og kynningu ákvarðana í peningamálum, sbr. 24. gr.
[e. Fylgjast með framkvæmd starfsreglna og starfsháttum peningastefnunefndar.
f. Staðfesta val yfirmanna í peningastefnunefnd að fenginni tillögu seðlabankastjóra.] 1)
[g. ] 1) [Staðfesta reglur sem seðlabankastjóri setur um umboð starfsmanna bankans og aðstoðarseðlabankastjóra til þess að skuldbinda bankann, sbr. 23. gr.] 1)
[h. ] 1) Staðfesta kjarasamninga við starfsmenn bankans, fjalla um reglur um lífeyrissjóð þeirra og staðfesta skipun fulltrúa í stjórn hans þegar svo ber undir.
[i. ] 1) Staðfesta tillögu Seðlabankans til [ráðherra] 3) um reglur um reikningsskil og ársreikning bankans, sbr. 32. gr.
[j. ] 1) Veita [ráðherra] 3) umsögn um reglugerð um framkvæmd einstakra þátta laga þessara þegar svo ber undir, sbr. 39. gr.
[k. ] 1) Staðfesta ársreikning bankans, sbr. 32. gr.
[l. Staðfesta ákvörðun bankans um eiginfjármarkmið og ákvörðun um ráðstöfun hagnaðar, sbr. 34. gr.] 4)
[m. ] 4) Staðfesta áætlun um rekstrarkostnað bankans sem [seðlabankastjóri] 1) leggur fram í upphafi hvers starfsárs.
[n. ] 4) Hafa eftirlit með eignum og rekstri bankans og staðfesta ákvarðanir um meiri háttar fjárfestingar.
[o. ] 4) Staðfesta reglur sem [seðlabankastjóri] 1) setur um viðurlög í formi dagsekta, sbr. 37. gr.
[p. ] 4) Staðfesta reglur sem [seðlabankastjóri] 1) setur um heimild starfsmanna bankans til setu í stjórnum stofnana og atvinnufyrirtækja utan bankans, sbr. 25. gr.
[q. ] 4) Staðfesta starfsreglur sem [seðlabankastjóri] 1) setur um varðveislu gjaldeyrisforðans, sbr. 20. gr.
1)L. 5/2009, 7. gr. 2)L. 87/2009, 6. gr. 3)L. 98/2009, 46. gr. 4)L. 122/2014, 1. gr.
VI. kafli. Öflun upplýsinga, rannsóknir og skýrslugerð.
29. gr. Til þess að sinna hlutverki sínu skv. 3. og 4. gr. [og fullnægja eftirliti með reglum sem settar eru samkvæmt lögum þessum] 1) getur Seðlabanki Íslands milliliðalaust aflað upplýsinga frá þeim sem eru í viðskiptum við bankann skv. 6. gr., sbr. 7. gr., auk fyrirtækja í greiðslumiðlun og annarra fyrirtækja eða aðila sem lúta opinberu eftirliti með starfsemi sinni, sbr. lög um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. [Skylt er, að viðlögðum viðurlögum skv. 37. gr., að láta Seðlabankanum í té allar upplýsingar og gögn sem bankinn telur nauðsynleg. Lagaákvæði um þagnarskyldu takmarka ekki skyldu til þess að veita upplýsingar og aðgang að gögnum.] 1)
Skylt skal öllum að láta Seðlabankanum í té þær upplýsingar sem hann þarf á að halda til hagskýrslugerðar að viðlögðum viðurlögum skv. 37. gr.
1)L. 92/2013, 4. gr.
30. gr. Seðlabanki Íslands gerir skýrslur og áætlanir um peningamál, greiðslujöfnuð, gengis- og gjaldeyrismál og annað sem hlutverk og stefnu bankans varðar. Seðlabankinn skal eigi sjaldnar en ársfjórðungslega gera opinberlega grein fyrir stefnu sinni í peningamálum og fyrir þróun peningamála, gengis- og gjaldeyrismála og aðgerðum sínum á þeim sviðum. Þá skal Seðlabankinn gefa út ársskýrslu þar sem hann gerir ítarlega grein fyrir starfsemi sinni.
31. gr. Seðlabanki Íslands stundar hagrannsóknir sem lúta að viðfangsefnum bankans á sviði peningamála og fjármálakerfis. Jafnframt er bankanum heimilt að stuðla að rannsóknum annarra á þessum sviðum.
VII. kafli. Reikningsskil og ráðstöfun hagnaðar.
32. gr. Reikningsár Seðlabanka Íslands er almanaksárið. Fyrir hvert reikningsár skal gera ársreikning og skal gerð hans lokið innan þriggja mánaða frá lokum reikningsárs. [Um gerð ársreiknings fer, eftir því sem við á, eftir lögum um ársreikninga, lögum um bókhald og reglum settum á grundvelli þeirra laga.] 1)
[Eigið fé sem er innkallanlegt, sbr. 3. mgr. 34. gr., en ekki innborgað skal sýna meðal eiginfjárreikninga. Jafnframt skal dreginn frá sá hluti sem er óinnborgaður.
Við reikningsskil Seðlabankans er heimilt að halda sérstaka reikninga meðal eiginfjárreikninga sem taka til óinnleystra tekna og gjalda.] 1)
[Ráðherra] 2) setur nánari reglur 3) um reikningsskil og ársreikning að fengnum tillögum Seðlabankans, sbr. 28. gr.
1)L. 122/2014, 2. gr. 2)L. 98/2009, 46. gr. 3) Rgl. 1088/2005, sbr. rgl. 428/2013.
33. gr. Innri endurskoðun í Seðlabanka Íslands er í höndum aðalendurskoðanda, sbr. 28. gr. Auk þess skal Ríkisendurskoðun annast endurskoðun hjá Seðlabankanum.
Að lokinni endurskoðun á ársreikningi bankans skal hann undirritaður af [seðlabankastjóra] 1) og staðfestur af bankaráði, sbr. 28. gr. Hafi bankaráðsmaður fram að færa athugasemdir við ársreikning skal hann undirritaður með fyrirvara og koma skal fram hvers eðlis fyrirvarinn er.
Endurskoðaður reikningur skal lagður fyrir [ráðherra] 2) til áritunar eigi síðar en þremur mánuðum eftir lok reikningsárs.
Ársreikning Seðlabankans skal birta í ársskýrslu bankans, sbr. 30. gr. Enn fremur skal bankinn birta mánaðarlegt efnahagsyfirlit.
1)L. 5/2009, 8. gr. 2)L. 98/2009, 46. gr.
34. gr. [Seðlabanki Íslands skal búa yfir fjárhagslegum styrk sem geri honum kleift að rækja lögbundið hlutverk sitt. Í því skyni skal Seðlabankinn á hverju ári ákveða eiginfjármarkmið fyrir bankann. Eiginfjármarkmiðið endurspeglar þörf bankans fyrir eigið fé og vaxtaberandi eignir og skal það taka mið af kostnaði af rekstri bankans og þeirri áhættu og óvissu sem bankinn stendur frammi fyrir á hverjum tíma. Ákvörðun um eiginfjármarkmið, staðfest af bankaráði, skal birt í ársskýrslu bankans, sbr. 30. gr.
Árlegur hagnaður Seðlabankans á liðnu rekstrarári, að teknu tilliti til óinnleystra reiknaðra tekna og gjalda, sbr. 3. mgr. 32. gr., skal renna í ríkissjóð svo fremi sem honum er ekki ráðstafað til að efla eigið fé bankans. Greiðsla fer fram eigi síðar en 30. apríl hvert ár. Ákveði bankinn að ráðstafa hagnaði til eflingar á eigin fé, að hluta eða í heild, skal það gert til að uppfylla eiginfjármarkmið, sbr. 1. mgr., og að fenginni umsögn ráðherra. Skal bankinn þá kynna ráðherra mat sitt á eiginfjármarkmiði og ráðstöfun hagnaðar til næstu þriggja ára.
Ríkissjóður skuldbindur sig, á grundvelli heimildar í fjárlögum, til að leggja Seðlabankanum til eigið fé í formi markaðshæfra eigna samkvæmt innköllun bankans þar að lútandi, enda telji bankinn það nauðsynlegt í þeim tilgangi að uppfylla lágmarkskröfur um innborgað eigið fé. Heildarfjárhæð innkallanlegs eigin fjár samkvæmt þessari málsgrein er 52 milljarðar kr. Eftirstöðvar innkallanlegs eigin fjár færast upp við hver áramót með hækkun vísitölu neysluverðs. Í fjárlögum skal miða gildi vísitölunnar við 1. janúar á því ári þegar frumvarp til þeirra laga er lagt fram. Heimilt er ráðherra, f.h. hönd ríkissjóðs, og Seðlabanka Íslands að gera með sér samkomulag um nánari framkvæmd þessa ákvæðis.] 1)
1)L. 122/2014, 3. gr.
VIII. kafli. Ýmis ákvæði.
35. gr. Bankaráðsmenn, [seðlabankastjóri, aðstoðarseðlabankastjóri, nefndarmenn í peningastefnunefnd] 1) og aðrir starfsmenn Seðlabanka Íslands eru bundnir þagnarskyldu um allt það sem varðar hagi viðskiptamanna bankans og málefni bankans sjálfs, svo og um önnur atriði sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt skulu fara samkvæmt lögum eða eðli máls, nema dómari úrskurði að upplýsingar sé skylt að veita fyrir dómi eða til lögreglu eða skylt sé að veita upplýsingar lögum samkvæmt. Þagnarskyldan helst þótt látið sé af starfi.
Bankaráðsmönnum, [seðlabankastjóra, aðstoðarseðlabankastjóra, nefndarmönnum í peningastefnunefnd] 1) og öðrum starfsmönnum Seðlabankans er óheimilt að nýta sér trúnaðarupplýsingar, sem þeir komast yfir vegna starfs síns í bankanum, í þeim tilgangi að hagnast eða forðast fjárhagslegt tjón í viðskiptum.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er Seðlabankanum heimilt að eiga gagnkvæm upplýsingaskipti við opinbera aðila erlendis um atriði sem lög þessi taka til að því tilskildu að sá sem óskar upplýsinga sé háður samsvarandi þagnarskyldu.
Seðlabanki Íslands skal veita Fjármálaeftirlitinu allar upplýsingar sem bankinn býr yfir og nýtast kunna í starfsemi Fjármálaeftirlitsins. Upplýsingar sem veittar eru samkvæmt þessari grein eru háðar þagnarskyldu samkvæmt lögum þessum og lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið skulu gera með sér samstarfssamning þar sem m.a. er kveðið nánar á um samskipti stofnananna.
1)L. 5/2009, 9. gr.
36. gr. Seðlabanki Íslands er undanþeginn [tekjuskatti] 1) samkvæmt lögum um [tekjuskatt] 1) eins og þau eru á hverjum tíma.
Hvers konar skuldbindingar, sem gefnar eru út af bankanum og í nafni hans, svo og skuldbindingar sem veita bankanum handveðsrétt, arðmiðar af skuldabréfum bankans og framsöl þeirra skulu undanþegin stimpilgjaldi.
1)L. 129/2004, 140. gr.
37. gr. Fyrir brot á lögum þessum skal refsa með sektum eða fangelsi liggi ekki þyngri refsing við broti samkvæmt öðrum lögum. Tilraun og hlutdeild í brotum á lögum þessum er refsiverð eftir því sem segir í almennum hegningarlögum.
[Seðlabanka Íslands er heimilt að beita lánastofnanir og verðbréfasjóði viðurlögum í formi dagsekta sem ákveðnar eru samkvæmt reglum 1) sem settar eru af seðlabankastjóra og staðfestar af bankaráði, sbr. 28. gr., hlíti þær ekki reglum bankans um bindiskyldu, laust fé og gjaldeyrisjöfnuð.] 2)
Seðlabankanum er heimilt að beita þá aðila viðurlögum í formi dagsekta sem vanrækja að veita bankanum upplýsingar, sem hann á rétt á samkvæmt lögum þessum, eða veita bankanum vísvitandi rangar upplýsingar. [Seðlabankastjóri] 3) setur reglur 1) um þessi viðurlög sem skulu staðfestar af bankaráði, [sbr. 28. gr.] 2)
[Sé mál höfðað til ógildingar ákvörðun skv. 2. og 3. mgr. innan 14 daga frá því að viðkomandi aðila var tilkynnt um hana og óski hann jafnframt eftir að málið hljóti flýtimeðferð er ekki heimilt að innheimta dagsektir fyrr en dómur hefur fallið. Þrátt fyrir málshöfðun til ógildingar ákvörðun leggjast dagsektir áfram á viðkomandi aðila.
Óinnheimtar dagsektir falla ekki niður þótt aðilar verði síðar við kröfum Seðlabankans nema seðlabankastjóri ákveði það sérstaklega.
Dagsektir sem ákveðnar eru samkvæmt þessari grein má innheimta með aðför, án undangengins dóms. Innheimtar dagsektir samkvæmt þessari grein skulu renna að 3/ 4 hlutum til ríkissjóðs og skulu þær greiddar 1. júní ár hvert fyrir næstliðið ár.] 2)
1) Rgl. 389/2002. 2)L. 92/2013, 5. gr. 3)L. 5/2009, 10. gr.
38. gr. Seðlabanka Íslands er heimilt að setja reglur 1) um viðfangsefni sín samkvæmt lögum þessum eftir því sem ástæða verður talin til. Seðlabankinn birtir reglur sem hann setur samkvæmt lögum þessum þannig að þær séu aðgengilegar almenningi.
1) Rgl. 831/2002, sbr. rgl. 118/2012. Rgl. 540/2007. Rgl. 553/2009. Rgl. 703/2009, sbr. rgl. 366/2010. Rgl. 704/2009, sbr. rgl. 367/2010. Rgl. 805/2009. Rgl. 31/2011.
IX. kafli. Gildistaka o.fl.
39. gr. [Ráðherra] 1) getur, að fengnu áliti bankaráðs, sett með reglugerð 2) nánari ákvæði um framkvæmd einstakra ákvæða laga þessara.
1)L. 98/2009, 46. gr. 2)Rg. 470/1986, sbr. 136/1989, 111/1995 og 640/1999 (um Seðlabanka Íslands).
40. gr. Lög þessi öðlast gildi nú þegar. …
Ákvæði til bráðabirgða.
I. Við gildistöku laga þessara kýs Alþingi sjö fulltrúa í bankaráð Seðlabanka Íslands og jafnmarga til vara. Frá sama tíma fellur niður umboð þeirra er þá sitja í bankaráðinu.
II. Bankastjórar Seðlabanka Íslands við gildistöku laga þessara halda störfum sínum til loka skipunartíma síns. Ákvæði 2. mgr. 23. gr. um skipun bankastjóra gildir frá og með fyrstu skipun í embætti bankastjóra eftir gildistöku laganna. Við gildistöku laganna skipar forsætisráðherra formann bankastjórnar úr röðum bankastjóra til sama tíma og skipun hans í embætti bankastjóra varir.
[III. Þrátt fyrir 2. mgr. 17. gr. er Seðlabankanum heimilt … 1) að annast viðskipti við einstaklinga og fyrirtæki, enda sé um að ræða viðskipti sem Seðlabankinn metur nauðsynleg til þess að hægt sé að losa um takmarkanir sem settar hafa verið á fjármagnshreyfingar og gjaldeyrisviðskipti. [Þá er Seðlabankanum heimilt, í þeim tilgangi að draga úr, koma í veg fyrir eða gera kleift að bregðast við neikvæðum áhrifum á stöðugleika í gengis- og peningamálum, að taka á móti hvers kyns fjárhagslegum verðmætum, þ.m.t. kröfuréttindum, fjármálagerningum og eignarhlutum í félögum og öðrum réttindum yfir þeim í tengslum við áætlanir um losun fjármagnshafta. Þau verðmæti sem Seðlabankinn veitir viðtöku á grundvelli 2. málsl. renna í ríkissjóð og skulu vera hjá bankanum til varðveislu. Meðferð og ráðstöfun verðmætanna skal hagað í samræmi við 2. mgr. 1. gr. laga um stöðugleikaskatt. Laust fé skal varðveitt á sérstökum reikningum ríkissjóðs í Seðlabanka Íslands en ráðherra er heimilt að fela sérhæfðum aðila sem starfar í umboði bankans að annast varðveislu annarra verðmæta og umsýslu með þau.] 2)] 3)
1)L. 92/2013, 6. gr. 2)L. 59/2015, 5. gr. 3)L. 127/2011, 9. gr.