Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 3. maí 2019. Útgáfa 149b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um bókasafnsfræðinga
1984 nr. 97 28. maí
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 13. júní 1984. Breytt með l. 21/2001 (tóku gildi 16. maí 2001), l. 88/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009 nema brbákv. VII sem tók gildi 21. júní 2008) og l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við mennta- og menningarmálaráðherra eða mennta- og menningarmálaráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
1. gr.
Rétt til að kalla sig [bókasafns- og upplýsingafræðing] 1) og starfa sem slíkur hér á landi hefur sá einn sem til þess hefur leyfi [ráðherra]. 2)
1)L. 21/2001, 1. gr. 2)L. 126/2011, 104. gr.
2. gr.
Leyfi samkvæmt 1. gr. má aðeins veita:
1. [þeim sem lokið hafa BA-prófi frá Háskóla Íslands með bókasafns- og upplýsingafræði sem aðalgrein er jafngildir a.m.k. 60 námseiningum]; 1)
2. þeim sem tekið hafa lokapróf frá háskóla og a.m.k. 60 einingar í [bókasafns- og upplýsingafræði] 1) við Háskóla Íslands;
3. þeim sem lokið hafa hliðstæðu prófi erlendis sé námið viðurkennt sem slíkt af yfirvöldum þess lands þar sem námið er stundað;
4. [þeim sem tekið hafa lokapróf frá háskóla og framhaldsgráðu í bókasafns- og upplýsingafræði til viðbótar, þ.e. MA, MLS eða sambærilega háskólagráðu]. 1)
[Áður en leyfi er veitt skv. 3. og 4. lið skal leita umsagnar Upplýsingar – félags bókasafns- og upplýsingafræða, Stéttarfélags bókasafns- og upplýsingafræðinga og bókasafns- og upplýsingafræðiskorar við félagsvísindadeild Háskóla Íslands.] 1)
1)L. 21/2001, 2. gr.
3. gr.
[Bókasafns- og upplýsingafræðingi] 1) ber að starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um bókasöfn sem í gildi eru á hverjum tíma.
1)L. 21/2001, 3. gr.
4. gr.
Brot á lögum þessum varða sektum. … 1)
1)L. 88/2008, 233. gr.
5. gr.
[Ráðherra] 1) getur sett nánari ákvæði í reglugerð um framkvæmd laga þessara.
1)L. 126/2011, 104. gr.
6. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.