12. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 9. nóvember 2023 kl. 09:10


Mætt:

Bryndís Haraldsdóttir (BHar) formaður, kl. 09:25
Eyjólfur Ármannsson (EÁ) 1. varaformaður, kl. 09:10
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 09:10
Dagbjört Hákonardóttir (DagH), kl. 09:10
Halldóra Mogensen (HallM), kl. 09:10
Jódís Skúladóttir (JSkúl), kl. 09:10
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 09:10

Bergþór Ólason og Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir voru fjarverandi.

Nefndarritari: Inga Valgerður Stefánsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:10
Fundargerð 11. fundar var samþykkt.

2) 238. mál - Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Kl. 09:11
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Magnús Þór Jónsson frá Kennarasambandi Íslands, Guðjón Hrein Hauksson frá Félagi framhaldsskólakennara, Mjöll Matthíasdóttur frá Félagi grunnskólakennara og Kolbrúnu Guðmundsdóttur frá Skólamálanefnd Félags grunnskólakennara.

3) 240. mál - breyting á ýmsum lögum í þágu barna Kl. 10:00
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Magnús Þór Jónsson frá Kennarasambandi Íslands, Guðjón Hrein Hauksson frá Félagi framhaldsskólakennara, Mjöll Matthíasdóttur frá Félagi grunnskólakennara og Kolbrúnu Guðmundsdóttur frá Skólamálanefnd Félags grunnskólakennara.

4) 349. mál - vopnalög Kl. 10:17
Nefndin samþykkti að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti.
Tillaga um að Birgir Þórarinsson verði framsögumaður málsins var samþykkt.

5) 72. mál - fjarnám á háskólastigi Kl. 10:18
Nefndin samþykkti að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti.
Tillaga um að Líneik Anna Sævarsdóttir verði framsögumaður málsins var samþykkt.

6) 50. mál - brottfall laga um heiðurslaun listamanna Kl. 10:18
Tillaga um að Bryndís Haraldsdóttir verði framsögumaður málsins var samþykkt.

7) 57. mál - kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla Kl. 10:18
Tillaga um að Bryndís Haraldsdóttir verði framsögumaður málsins var samþykkt.

8) Önnur mál Kl. 10:18
Nefndin ræddi starfið framundan.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:18