62. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 140. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 7. júní 2012 kl. 13:00


Mættir:

Björgvin G. Sigurðsson (BjörgvS) formaður, kl. 13:00
Birgitta Jónsdóttir (BirgJ), kl. 13:00
Eygló Harðardóttir (EyH), kl. 13:00
Jónína Rós Guðmundsdóttir (JRG), kl. 13:00
Ragnheiður Ríkharðsdóttir (RR), kl. 13:00
Skúli Helgason (SkH), kl. 13:00
Þorgerður K. Gunnarsdóttir (ÞKG), kl. 13:00
Þráinn Bertelsson (ÞrB), kl. 13:00
Þuríður Backman (ÞBack), kl. 13:00

Nefndarritari: Selma Hafliðadóttir

Bókað:

1) 599. mál - fjölmiðlar Kl. 13:00
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og fékk á sinn fund Elfu Ýr Gylfadóttur fyrir hönd fjölmiðlanefndar. Málið var afgreitt frá nefndinni af meiri hluta nefndarinnar með breytingartillögu. Að nefndaráliti meiri hlutans standa: BjörgvS, SkH, ÞrB (með fyrirvara), ÞBack, JRG, BJ (með fyrirvara).

2) Önnur mál. Kl. 13:25
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 13:25