Ástandið í Úkraínu.
(1402081)
Utanríkismálanefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
24.03.2015 | 29. fundur utanríkismálanefndar | Ástandið í Úkraínu. Á fund nefndarinnar komu Kristján Andri Stefánsson og Pétur Gunnar Thorsteinsson frá laga- og stjórnsýsluskrifstofu, Estrid Brekkan og Arnór Sigurjónsson frá alþjóða- og öryggisskrifstofu og Bergþór Magnússon frá viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytis. Gestirnir fjölluðu um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna. |
13.11.2014 | 13. fundur utanríkismálanefndar | Ástandið í Úkraínu. Á fund nefndarinnar komu Stefán Haukur Jóhannesson og Estrid Brekkan frá utanríkisráðuneyti. Gestirnir gerðu grein fyrir ástandi mála í Úkraínu og svöruðu spurningum nefndarmanna. |
30.07.2014 | 60. fundur utanríkismálanefndar | Ástandið í Úkraínu. Á fundinn kom Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra ásamt Sunnu Gunnars Marteinsdóttur aðstoðarmanni ráðherra, Pétri G. Thorsteinssyni sendifulltrúa og Estrid Brekkan deildarstjóra alþjóða- og öryggisskrifstofu utanríkisráðuneytis. Ráðherra gerði grein fyrir stöðu málsins og heimsókn sinni til Úkraínu ásamt því að svara spurningum nefndarmanna. |
24.07.2014 | 59. fundur utanríkismálanefndar | Ástandið í Úkraínu. Á fund nefndarinnar komu Hermann Ingólfsson, Estrid Brekkan, Kristján Andri Stefánsson, Pálína Björk Matthíasdóttir og Pétur G. Thorsteinsson. Gestirnir fóru yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna. Umfjöllun nefndarinnar var bundin trúnaði skv. 24. gr. þingskapa. |
02.05.2014 | 47. fundur utanríkismálanefndar | Ástandið í Úkraínu. Á fund nefndarinnar komu Hermann Ingólfsson, Estrid Brekkan og Jónas Allansson frá utanríkisráðuneyti. Gerðu þau grein fyrir málinu og svöruðu spurningum nefndarmanna. |
18.03.2014 | 37. fundur utanríkismálanefndar | Ástandið í Úkraínu. Á fund nefndarinnar kom Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra. Einnig Hermann Örn Ingólfsson, Bergdís Ellertsdóttir, Sunna Gunnars Marteinsdóttir, Jónas G. Allansson, Axel Nikulásson og Pétur Gunnar Thorsteinsson frá utanríkisráðuneyti. Gerði utanríkisráðherra grein fyrir ástandinu í Úkraínu og svaraði spurningum nefndarmanna. Umræðan var bundin trúnaði sbr. 24. gr. þingskapa. |
04.03.2014 | 32. fundur utanríkismálanefndar | Ástandið í Úkraínu. Fyrst kom á fund nefndarinnar Jón Ólafsson prófessor. Gerði hann grein fyrir sjónarmiðum til ástandsins til Úkraínu og svaraði spurningum nefndarmanna. Næst komu á fund nefndarinnar Estrid Brekkan og Jónas G. Allansson frá utanríkisráðuneyti. Gerðu þau grein fyrir ástandinu í Úkraínu og svöruðu spurningum nefndarmanna. |
03.03.2014 | 30. fundur utanríkismálanefndar | Ástandið í Úkraínu. Á fund nefndarinnar komu Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra, Hermann Ingólfsson, skrifstofustjóri alþjóða- og öryggisskrifstofu, Jónas G. Allansson, deildarstjóri öryggis- og varnarmála, og Sunna Gunnars Marteinsdóttir, aðstoðarmaður utanríkisráðherra. Gestirnir fóru yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna. |
21.02.2014 | 28. fundur utanríkismálanefndar | Ástandið í Úkraínu. Á fund nefndarinnar komu Estrid Brekkan og Jónas G. Allansson frá utanríkisráðuneyti. Gerðu gestirnir grein fyrir ástandinu í Úkraínu og svöruðu spurningum nefndarmanna. |