Opinn fundur efnahags- og viðskiptanefndar um skýrslu peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands
Efnahags- og viðskiptanefnd heldur opinn fund fimmtudaginn 6. febrúar kl. 9:00. Efni fundarins er skýrsla peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis fyrir seinni hluta ársins 2019. Gestur fundarins verður Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8–10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.
Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone.
Að loknum fundi má nálgast upptöku af fundinum hér.
Fundurinn verður haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis.