Opinn fundur um skýrslu peningastefnunefndar - bein útsending
Gert er ráð fyrir opnum fundi hjá efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis með peningastefnunefnd Seðlabankans miðvikudaginn 22. febrúar kl. 9:00.
Á fundinum verður rætt um skýrslu peningastefnunefndar. Gestir fundarins: |
Kl. 9:00 Peningastefnunefnd, Már Guðmundsson, Arnór Sighvatsson og Katrín Ólafsdóttir. Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir. Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone. Fundurinn verður haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis. |