 Vilhjálmur Bjarnason Fæddur í Reykjavík 20. apríl 1952. Stúdentspróf MH 1972. Próf í bóklegu atvinnuflugi og blindflugi hjá Flugmálastjórn 1973. Cand.oecon.-próf frá HÍ 1977. MBA-próf frá Rutgers University, New Jersey 1997. Starfaði á reiknistofu Raunvísindastofnunar Háskóla Íslands 1972-1973. Vann með námi hjá Seðlabanka Íslands 1974-1976 og 1995-1996. Starfaði hjá Útvegsbanka Íslands, m.a. í hagdeild og sem eftirlitsmaður útibúa 1977-1987, útibússtjóri bankans í Vestmannaeyjum 1980-1987. Starfsmaður Kaupþings hf. 1987–1988. Kennari við Iðnskólann í Reykjavík 1989–1995. Forstöðumaður verðbréfamarkaðar Fjárfestingafélagsins 1991–1993. Sérfræðingur hjá Þjóðhagsstofnun og síðar Hagstofu Íslands 2000-2007. Framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta 2007-2014. Í stjórn Samtaka fjárfesta 2000-2014, formaður 2000–2007, í varastjórn Samtaka sparifjáreigenda 2014-2016 og í stjórn frá 2016. Í nefndum á vegum viðskiptaráðuneytisins um endurskoðun laga um fjármálafyrirtæki og verðbréfasjóði frá 2009. Félagskjörinn skoðunarmaður Hins íslenska biblíufélags 2011-2016. Alþingismaður Suðvesturkjördæmis 2013-2017 (Sjálfstæðisflokkur). Varaþingmaður Suðvesturkjördæmis júní 2020 (Sjálfstæðisflokkur). Efnahags- og viðskiptanefnd 2013-2017, utanríkismálanefnd 2013-2016 og 2017. Íslandsdeild þingmannanefnda EFTA og EES 2013-2016 og 2017, þingmannanefnd Íslands og ESB 2013–2016.
Hefur birt nokkrar greinar um fjármál og málefni fjármálamarkaða í innlendum og erlendum fræðiritum. |