Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Teitur Björn Einarsson
5. þm. NV, S, TBE
Teitur Björn Einarsson

   
Svandís Svavarsdóttir

Svandís Svavarsdóttir

Fædd á Selfossi 24. ágúst 1964. Foreldrar: Svavar Gestsson (fæddur 26. júní 1944, dáinn 18. janúar 2021) alþingismaður, ráðherra og sendiherra og Jónína Benediktsdóttir (fædd 5. október 1943, dáin 29. maí 2005) skrifstofumaður. Maki 1: Ástráður Haraldsson (fæddur 27. ágúst 1961) lögmaður. Þau skildu. Foreldrar: Haraldur Þorsteinsson og Aðalheiður Sigurðardóttir. Maki 2: Torfi Hjartarson (fæddur 27. maí 1961) lektor. Foreldrar: Hjörtur Torfason og Nanna Þorláksdóttir. Börn Svandísar og Ástráðs: Oddur (1984), Auður (1986). Börn Svandísar og Torfa: Tumi (1996), Una (2000).

Stúdentspróf MH 1983. BA-próf í almennum málvísindum og íslensku HÍ 1989. Stundaði framhaldsnám í íslenskri málfræði við HÍ 1989-1993.

Leiðbeinandi við Grunnskólann í Hrísey og kennari við Tónlistarskólann í Hrísey 1982-1984. Stundakennari í almennum málvísindum og íslensku við Háskóla Íslands 1990-1994. Starfaði hjá Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra við rannsóknir á íslenska táknmálinu 1992-1994 og við rannsóknir, ráðgjöf og stjórnun 1998-2005. Kennslustjóri í táknmálsfræði og táknmálstúlkun við Háskóla Íslands 1994-1998. Framkvæmdastjóri Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs 2005-2006. Borgarfulltrúi í Reykjavík 2006-2009. Umhverfisráðherra 10. maí 2009 til 1. september 2012. Fór með menntamálaráðuneytið í fæðingarorlofi Katrínar Jakobsdóttur 31. maí til 31. október 2011. Umhverfis- og auðlindaráðherra 1. september 2012, lausn 28. apríl 2013 en gegndi störfum til 23. maí 2013. Heilbrigðisráðherra 30. nóvember 2017 til 27. nóvember 2021. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 28. nóvember 2021 til 31. janúar 2022. Matvælaráðherra 1. febrúar 2022 til 9. apríl 2024. Innviðaráðherra síðan 9. apríl 2024.

Formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavík 2003-2005. Varafulltrúi í menntaráði Reykjavíkurborgar 2004-2006. Í stjórn ÍTR 2005-2006. Í menntaráði og leikskólaráði Reykjavíkur 2006-2007. Í skipulagsráði Reykjavíkur 2006-2009. Fulltrúi í Jafnréttisráði 2007-2009. Varaformaður Sambands íslenskra sveitarfélaga 2007-2009. Í borgarráði Reykjavíkur 2007-2009. Í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur og í stjórnkerfisnefnd Reykjavíkur 2007-2009. Í Þingvallanefnd 2013-2017.

Alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis suður síðan 2009 (Vinstrihreyfingin – grænt framboð).

Umhverfisráðherra 2009-2012. Umhverfis- og auðlindaráðherra 2012-2013. Heilbrigðisráðherra 2017-2021. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 2021-2022. Matvælaráðherra 2022-2024. Innviðaráðherra síðan 2024.

Formaður þingflokks Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs 2013-2017.

Allsherjar- og menntamálanefnd 2013-2014 og 2016-2017, þingskapanefnd 2014-2016, umhverfis- og samgöngunefnd 2014-2016, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd 2017, undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kjörbréfa 2021, kjörbréfanefnd 2021.

Íslandsdeild þingmannanefnda EFTA og EES 2017. Þingmannanefnd Íslands og ESB 2017.



Síðast breytt 10.04.2024.


Twitter
Facebook

Símanúmer

Á lögheimili: 551-0007
Farsími: 845-5558

Þingstörf
2. þm. RS , Vinstri-gr., SSv

Embætti:

Innviðaráðherra


Hagsmunaskráning

Curriculum Vitae in English




Þingmenn í stafrófsröð

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.