Gunnar Bragi Sveinsson Fæddur á Sauðárkróki 9. júní 1968. Foreldrar: Sveinn Margeir Friðvinsson (fæddur 19. september 1938, dáinn 25. júní 2017) og Ingibjörg Gunnhildur Jósafatsdóttir (fædd 13. maí 1940). Maki 1: Elva Björk Guðmundsdóttir (fædd 1. apríl 1969) húsmóðir. Þau skildu. Foreldrar: Guðmundur Frímannsson og Sigurlaug Guðmundsdóttir. Synir: Sveinn Rúnar (1993), Ingi Sigþór (2000), Róbert Smári (2000). Stjúpsynir, synir Elvu Bjarkar: Arnar Þór Sigurðsson (1988), Frímann Viktor Sigurðsson (1989). Maki 2: Sunna Gunnars Marteinsdóttir (fædd 25. júní 1984) stjórnmálafulltrúi. Foreldrar: Helga Björnsdóttir og Marteinn Magnússon. Stjúpdóttir, dóttir Sunnu: Guðrún Margrét Sigurbjörnsdóttir (2011). Stúdentspróf FNV á Sauðárkróki 1989. Nám í atvinnulífsfélagsfræði við HÍ. Verslunarstjóri Ábæjar 1989-1990 og 1991-1995. Verkamaður og gæslumaður í Steinullarverksmiðjunni 1989-1991. Ritstjóri héraðsfréttablaðsins Einherja 1991-1992. Sölu- og verslunarstjóri hjá Skeljungi hf. 1996-1997. Aðstoðarmaður félagsmálaráðherra 1997-1999. Markaðsráðgjafi hjá Íslensku auglýsingastofunni 1999. Starfaði á verslunarsviði Kaupfélags Skagfirðinga 2000-2002. Framkvæmdastjóri Ábæjar 2002-2003. Framkvæmdastjóri Ábæjar-veitinga ehf. 2004-2007. Utanríkisráðherra 23. maí 2013 til 7. apríl 2016. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 7. apríl 2016 til 11. janúar 2017. 1. varaformaður Miðflokksins síðan apríl 2018. Í stjórn Húsnæðissamvinnufélags Skagafjarðar og í stjórn Brynju, hússjóðs Öryrkjabandalags Íslands, 1998-2000. Formaður stjórnar varasjóðs viðbótarlána 1998-2002. Formaður Félags ungra Framsóknarmanna í Skagafirði. Varaformaður kjördæmissambands Framsóknarflokksins í Norðurlandskjördæmi vestra. Annar varaforseti sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2002-2006, varaforseti 2006-2009. Formaður byggðaráðs Skagafjarðar 2006-2009. Varaformaður atvinnu- og ferðamálanefndar Skagafjarðar 2006-2009. Formaður Gagnaveitu Skagafjarðar 2006-2009. Formaður stjórnar Norðurár bs., sorpsamlags, 2006-2009. Formaður stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra 2006-2009. Í stjórn Hátækniseturs Íslands ses. 2007-2009. Í menningarráði Norðurlands vestra 2008-2009. Alþingismaður Norðvesturkjördæmis 2009-2017 (Framsóknarflokkur) og Suðvesturkjördæmis 2017-2021 (Miðflokkurinn). Utanríkisráðherra 2013-2016, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 2016-2017. Formaður þingflokks Framsóknarmanna 2009-2013. Formaður þingflokks Miðflokksins 2017-2021. Iðnaðarnefnd 2009-2011, þingskapanefnd 2011-2013, utanríkismálanefnd 2011-2013 og 2017-2021, umhverfis- og samgöngunefnd 2017. Íslandsdeild þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu 2017 (formaður 2017) og 2017-2021 (formaður 2017-2021), þingmannanefnd Íslands og ESB 2018-2021. |