Lagasafn. Íslensk lög 1. maí 1999. Útgáfa 123b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um stjórn fiskveiða
1990 nr. 38 15. maí
I. kafli.
Almenn ákvæði.
1. gr. Nytjastofnar á Íslandsmiðum eru sameign íslensku þjóðarinnar. Markmið laga þessara er að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu þeirra og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu. Úthlutun veiðiheimilda samkvæmt lögum þessum myndar ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir veiðiheimildum.
2. gr. Til nytjastofna samkvæmt lögum þessum teljast sjávardýr, svo og sjávargróður, sem nytjuð eru og kunna að verða nytjuð í íslenskri fiskveiðilandhelgi og sérlög gilda ekki um.

Til fiskveiðilandhelgi Íslands telst hafsvæðið frá fjöruborði að ytri mörkum efnahagslögsögu Íslands eins og hún er skilgreind í
lögum nr. 41 1. júní 1979, um landhelgi, efnahagslögsögu og landgrunn.
3. gr. Sjávarútvegsráðherra skal, að fengnum tillögum Hafrannsóknastofnunarinnar, ákveða með reglugerð þann heildarafla sem veiða má á ákveðnu tímabili eða vertíð úr þeim einstökum nytjastofnum við Ísland sem nauðsynlegt er talið að takmarka veiðar á. Heimildir til veiða samkvæmt lögum þessum skulu miðast við það magn.

Leyfður heildarafli botnfisktegunda skal miðaður við veiðar á 12 mánaða tímabili, frá 1. september ár hvert til 31. ágúst á næsta ári, og nefnist það tímabil fiskveiðiár. Skal heildarafli fyrir komandi fiskveiðiár ákveðinn fyrir 1. ágúst ár hvert. Ráðherra er heimilt innan fiskveiðiársins að auka eða minnka leyfðan heildarafla einstakra botnfisktegunda, …
1) Heildarafli annarra tegunda sjávardýra skal ákveðinn með hæfilegum fyrirvara fyrir upphaf viðkomandi vertíðar eða veiðitímabils og er ráðherra heimilt að auka hann eða minnka á meðan vertíð eða veiðitímabil varir.
1)L. 105/1996, 1. gr.
II. kafli.
Veiðileyfi og aflamark.
4. gr. Enginn má stunda veiðar í atvinnuskyni við Ísland nema hafa fengið til þess almennt veiðileyfi. Veiðileyfi skulu gefin út til árs í senn.

…
1)
1)L. 79/1997, 21. gr.
5. gr. [Við veitingu leyfa til veiða í atvinnuskyni koma aðeins til greina þau fiskiskip sem hafa haffærisskírteini og skrásett eru á skipaskrá Siglingastofnunar Íslands eða sérstaka skrá stofnunarinnar fyrir báta undir 6 metrum. Skulu eigendur þeirra og útgerðir fullnægja skilyrðum til að stunda veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands sem kveðið er á um í lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri og í lögum um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands. Á sama fiskveiðiári er þó aðeins heimilt að veita fiskiskipi eina gerð leyfis til veiða í atvinnuskyni, þ.e. veiðileyfi með almennu aflamarki, veiðileyfi með þorskaflahámarki, sbr. ákvæði til bráðabirgða I í lögum þessum, veiðileyfi með aflamarki sem úthlutað er samkvæmt ákvæði til bráðabirgða II í lögum þessum (krókaaflamarki) eða veiðileyfi með sóknardögum.]
1)
1)L. 1/1999, 1. gr.
6. gr. [Bátar sem fá leyfi til handfæraveiða með dagatakmörkunum skulu frá og með 1. september 2000 stunda veiðar samkvæmt ákvæðum þessarar greinar.

Þessum bátum er einungis heimilt að stunda veiðar á tímabilinu 1. apríl til [31. október]
1) ár hvert. Þeim er einungis heimilt að stunda veiðar með handfærum. Þó er sjávarútvegsráðherra heimilt að veita þeim leyfi til að stunda veiðar á botndýrum og háffiskum með sérhæfðum veiðarfærum og til hrognkelsaveiða í net.

Sameiginlegur hámarksþorskafli þeirra báta sem stunda veiðar samkvæmt þessari grein skal á hverju fiskveiðiári vera sama hlutfall af 13,75% af heildarþorskafla hvers fiskveiðiárs og nam samanlagðri hlutdeild þessara báta í 21.000 lestum miðað við reiknað þorskaflahámark skv.
2. gr. laga nr. 83/1995, auk aflaheimilda sem úthlutað er samkvæmt ákvæði til bráðabirgða II í [
lögum nr. 1/1999].
1) Fjöldi sóknardaga skal ákveðinn fyrir hvert fiskveiðiár, í fyrsta sinn fyrir fiskveiðiárið sem hefst 1. september 2000, með því að reikna meðalþorskafla á hvern leyfðan sóknardag næstliðins fiskveiðiárs og deila þeirri tölu í hámarksþorskafla þessara báta á fiskveiðiárinu. Sóknardögum skal fækka eða fjölga um heila daga og sleppa broti. Sóknardögum skal þó aldrei fækka um meira en [10%]
1) milli fiskveiðiára.

Sóknardagur telst vera allt að 24 klst. frá upphafi veiðiferðar. Sóknardegi telst lokið þegar bátur landar afla. Ráðherra skal með reglugerð kveða nánar á um fyrirkomulag sóknardaga og eftirlit með þeim. Utan sóknardaga eru allar veiðar bannaðar. Ráðherra getur þó heimilað að veiðar samkvæmt lokamálslið 2. mgr. séu utan sóknardaga.

Heimilt er að flytja sóknardaga innan hvers fiskveiðiárs eða varanlega milli báta sem hafa leyfi til handfæraveiða með dagatakmörkunum. Sé sá bátur sem sóknardagar eru fluttir til stærri, í brúttótonnum talið, en sá sem sóknardagar eru fluttir frá skal skerða flutta sóknardaga í hlutfalli við stærðarmun bátanna og sleppa broti. Þá skal með sama hætti fjölga sóknardögum sem fluttir eru til minni báts. Á sama hátt skal skerða sóknardagafjölda báts sem er stækkaður. Miða skal við stærð báta 1. janúar 1999. Óheimilt er að flytja hlutfallslega fleiri sóknardaga frá báti, umfram þá daga sem fluttir hafa verið til báts, en nemur hlutfallslegri nýtingu bátsins á úthlutuðum sóknardögum á fiskveiðiárunum 1996/1997 og 1997/1998. Í því sambandi skal miðað við meðaltal af sóknardaganýtingu fiskveiðiáranna. Séu sóknardagar fluttir frá báti skulu þeir sóknardagar sem báturinn hefur eftir flutninginn vera mismunur þess fjölda sóknardaga sem heimilt er að flytja frá bátnum og þeirra sóknardaga sem fluttir hafa verið, að teknu tilliti til sóknardaga sem fluttir hafa verið til bátsins. Tilkynna skal Fiskistofu fyrir fram um flutning sóknardaga milli báta og öðlast flutningurinn ekki gildi fyrr en Fiskistofa hefur staðfest hann.

Óheimilt er að veita bátum 6 brúttótonn eða stærri, sem ekki hafa haft leyfi til handfæraveiða með dagatakmörkunum, leyfi til að stunda veiðar samkvæmt þessari grein. Þá er óheimilt að stækka bát sem hefur leyfi til handfæraveiða með dagatakmörkunum þannig að hann verði 6 brúttótonn eða stærri.]
2)
1)L. 9/1999, 1. gr. 2)L. 1/1999, 2. gr.
[6. gr. a. Heimilt er án sérstaks leyfis að stunda fiskveiðar í tómstundum til eigin neyslu. Slíkar veiðar er einungis heimilt að stunda með handfærum án sjálfvirknibúnaðar. Afla, sem veiddur er samkvæmt heimild í þessari málsgrein, er óheimilt að selja eða fénýta á annan hátt.

Ráðherra er heimilt að ákveða árlega að á tilteknum fjölda opinberra sjóstangaveiðimóta teljist afli ekki til aflamarks [eða krókaaflamarks]
1) og veiðidagar ekki til sóknardaga, enda sé aflinn einungis fénýttur til að standa straum af kostnaði við mótshaldið.]
2)
1)L. 1/1999, 3. gr. 2)L. 105/1996, 4. gr.
7. gr. Veiðar á þeim tegundum sjávardýra, sem ekki sæta takmörkun á leyfilegum heildarafla skv. 3. gr., eru frjálsar öllum þeim skipum, sem leyfi fá til veiða í atvinnuskyni skv. 4. gr., með þeim takmörkunum sem leiðir af almennum reglum um veiðisvæði, veiðarfæri, veiðitíma og reglum settum skv. 2. mgr. 4. gr.

Veiðiheimildum á þeim tegundum, sem heildarafli er takmarkaður af, skal úthlutað til einstakra skipa. Skal hverju skipi úthlutað tiltekinni hlutdeild af leyfðum heildarafla tegundarinnar. Nefnist það aflahlutdeild skips og helst hún óbreytt milli ára, sbr. þó 4. málsl. þessarar málsgreinar.

[Áður en leyfðum heildarafla er skipt á grundvelli aflahlutdeildar skal draga eftirtalinn afla frá:
1. [Áætlaðan afla báta sem stunda veiðar með dagatakmörkunum.]
1)
2. …
2)
3. Aflaheimildir sem nota skal til jöfnunar, sbr. 9. gr.]
3)

Aflamark skips á hverju veiðitímabili eða vertíð ræðst af leyfðum heildarafla viðkomandi tegundar og hlutdeild skipsins í þeim heildarafla skv. 2. mgr., sbr. þó ákvæði 9. gr. Skal [Fiskistofa]
4) senda sérstaka tilkynningu vegna hvers skips um aflamark þess í upphafi veiðitímabils eða vertíðar.
1)L. 1/1999, 4. gr. 2)L. 105/1996, 5. gr. 3)L. 87/1994, 3. gr. 4)L. 36/1992, 6. gr.
8. gr. Verði veiðar takmarkaðar skv. 3. gr. á tegundum sjávardýra sem samfelld veiðireynsla er á, en ekki hafa áður verið bundnar ákvæðum um leyfðan heildarafla, skal aflahlutdeild úthlutað á grundvelli aflareynslu síðustu þriggja veiðitímabila.

Ef ekki er fyrir hendi samfelld veiðireynsla á viðkomandi tegund skal ráðherra ákveða aflahlutdeild einstakra skipa. Getur hann við þá ákvörðun tekið mið af fyrri veiðum, stærð eða gerð skips. Getur ráðherra bundið úthlutun samkvæmt þessari málsgrein því skilyrði að skip afsali sér heimildum til veiða á öðrum tegundum.
9. gr. [Á hverju fiskveiðiári skulu aflaheimildir af botnfiski, er nema 12.000 þorskígildum í lestum talið, vera til ráðstöfunar til að mæta áföllum sem fyrirsjáanleg eru vegna verulegra breytinga á aflamarki einstakra tegunda. Skal þessum aflaheimildum skipt milli botnfisktegunda í hlutfalli við leyfðan heildarafla af einstökum tegundum og verðmætahlutföll sem ráðherra ákveður.

Skal ráðherra árlega ákveða með reglugerð ráðstöfun þessara heimilda þannig að þær nýtist útgerðum þeirra skipa sem fyrir mestri skerðingu hafa orðið.

Sé aflaheimildum ekki ráðstafað til uppbóta samkvæmt þessari grein bætast þær við heildaraflamark viðkomandi tegunda og koma til úthlutunar í samræmi við aflahlutdeild einstakra skipa.]
1)
1)L. 87/1994, 4. gr.
10. gr. Heimilt er að veiða umfram úthlutað aflamark af tiltekinni botnfisktegund allt að 5% af heildarverðmæti botnfiskaflamarks, enda skerðist aflamark annarra botnfisktegunda hlutfallslega miðað við verðmæti samkvæmt ákvörðun ráðuneytis í upphafi árs. Heimild þessarar málsgreinar nær þó ekki til veiða umfram úthlutað aflamark af þorski.

Hafi aflamark verið flutt milli skipa skv. 12. gr. flyst heimild til breytinga skv. 1. mgr. frá skipi sem flutt er af til þess skips sem flutt er til.

[Heimilt er að flytja allt að 20% af aflamarki hverrar botnfisktegundar og aflamarki úthafsrækju, humars og síldar, [10% af aflamarki hörpudisks og 5% af aflamarki innfjarðarrækju]
1) frá einu fiskveiðiári yfir á það næsta.]
2)

[Þá er heimilt að veiða 5% umfram aflamark hverrar botnfisktegundar, síldar og úthafsrækju og 3% umfram aflamark innfjarðarrækju og hörpudisks, enda dregst sá umframafli frá við úthlutun aflamarks næsta fiskveiðiárs á eftir.]
3)

Beita skal skerðingarákvæðum 1. mgr. áður en heimild 3. mgr. er nýtt. Heimild 4. mgr. rýmkar ekki heimildir til breytinga milli fisktegunda skv. 1. mgr.

…
4) Ráðherra getur ákveðið með reglugerð að fiskur undir tiltekinni stærð teljist aðeins að hluta með í aflamarki.

Þá getur ráðherra ákveðið að afli á ákveðnum fisktegundum, sem fluttur er óunninn á erlendan markað, skuli reiknaður með álagi þegar metið er hversu miklu af aflamarki skips er náð hverju sinni. Skal álagið vera allt að 20% á þorsk og ýsu en allt að 15% á aðrar tegundir.
1)L. 16/1996, 1. gr. 2)L. 87/1994, 5. gr. 3)L. 16/1996, 2. gr. 4)L. 105/1996, 6. gr.
11. gr. Sé rekstri skips hætt, sbr. …
1) 5. gr., skal úthluta nýju eða nýkeyptu skipi í eigu sama aðila aflahlutdeild hins eldra skips, enda sé um sambærilegt skip að ræða. Farist skip skal útgerð þess halda aflamarki skipsins í 12 mánuði talið frá upphafi næsta mánaðar eftir að skip fórst enda þótt nýtt eða nýkeypt skip hafi ekki komið í þess stað innan þess tíma.

Við eigendaskipti að fiskiskipi fylgir aflahlutdeild þess, nema aðilar geri sín á milli skriflegt samkomulag um annað, enda sé fullnægt ákvæðum 3. og 4. mgr. þessarar greinar.

Eigi að selja fiskiskip, sem leyfi hefur til veiða í atvinnuskyni, til útgerðar sem heimilisfesti hefur í öðru sveitarfélagi en seljandi á sveitarstjórn í sveitarfélagi seljanda forkaupsrétt að skipinu. Forkaupsréttur skal boðinn skriflega þeirri sveitarstjórn sem hlut á að máli og söluverð og aðrir skilmálar tilgreindir á tæmandi hátt. Sveitarstjórn skal svara forkaupsréttartilboði skriflega innan fjögurra vikna frá því henni berst tilboð og fellur forkaupsréttur niður í það sinn sé tilboði ekki svarað innan þess frests.

Neyti sveitarstjórn forkaupsréttar skv. 3. mgr. þessarar greinar skal hún þegar gefa útgerðaraðilum, sem heimilisfesti eiga í sveitarfélaginu, kost á að kaupa skipið og skal opinberlega leita tilboða í það.

Sé skipi ráðstafað andstætt ákvæðum þessarar greinar um forkaupsrétt getur forkaupsréttarhafi krafist þess að salan verði ógild enda sé málsókn hafin innan sex mánaða frá því að hann fékk vitneskju um söluna. Forkaupsréttur gildir ekki sé skip selt á opinberu uppboði. Ákvæði þessarar greinar um forkaupsrétt gilda ekki við sölu opinna báta.

Heimilt er að framselja aflahlutdeild skips að hluta eða öllu leyti og sameina hana aflahlutdeild annars skips, enda leiði flutningur aflahlutdeildar ekki til þess að veiðiheimildir þess skips, sem flutt er til, verði bersýnilega umfram veiðigetu þess. [Aflahlutdeild sem stafar af ákvæði til bráðabirgða II í lögum þessum (krókaaflahlutdeild) verður aðeins flutt til báts sem er undir 6 brl. eða 6 brúttótonnum.]
2) Tafarlaust skal leita staðfestingar [Fiskistofu]
3) á að flutningur aflaheimildar sé innan heimilaðra marka. Öðlast slíkur flutningur ekki gildi fyrr en staðfesting [Fiskistofu]
3) liggur fyrir. Ekki er heimilt að framselja þann hluta aflahlutdeildar skips, sem rekja má til uppbóta samkvæmt ákvæði I til bráðabirgða, fyrr en að liðnum fimm árum frá gildistöku laga þessara, enda hafi skipi, sem framselt er af, verið haldið til veiða allt það tímabil.
1)L. 133/1997, 2. gr. 2)L. 1/1999, 5. gr. 3)L. 36/1992, 8. gr.
[11. gr. a. Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. 7. gr. og 11. gr. má samanlögð aflahlutdeild fiskiskipa í eigu einstakra aðila, einstaklinga eða lögaðila, eða í eigu tengdra aðila aldrei nema hærra hlutfalli af heildaraflahlutdeild eftirtalinna tegunda en hér segir:
|
Hámarks- |
| Tegund |
aflahlutdeild |
| Þorskur |
10% |
| Ýsa |
10% |
| Ufsi |
20% |
| Karfi |
20% |
| Grálúða |
20% |
| Síld |
20% |
| Loðna |
20% |
| Úthafsrækja |
20% |
Nemi heildarverðmæti aflamarks annarra tegunda en að ofan greinir, sem sæta ákvörðun um leyfðan heildarafla samkvæmt lögum þessum, við upphaf fiskveiðiárs hærra hlutfalli en 2% af heildarverðmæti aflamarks allra tegunda, sem sæta ákvörðun um leyfðan heildarafla, má samanlögð aflahlutdeild fiskiskipa í eigu einstakra aðila, einstaklinga eða lögaðila, eða í eigu tengdra aðila aldrei nema hærra hlutfalli af heildaraflahlutdeild viðkomandi tegunda en 20%. Skal ráðherra við upphaf fiskveiðiárs tilgreina í reglugerð þær tegundir sem um er að ræða. Við mat á heildarverðmæti aflamarks skal annars vegar miða við hlutfallslegt verðmæti einstakra tegunda á viðkomandi fiskveiðiári eða veiðitímabili, sem ákveðið er af sjávarútvegsráðuneytinu, og hins vegar úthlutað aflamark einstakra tegunda á tímabilinu.

Þá má samanlögð aflahlutdeild fiskiskipa í eigu einstakra aðila, einstaklinga eða lögaðila, eða í eigu tengdra aðila ekki nema meira en 8% af heildarverðmæti aflahlutdeildar allra tegunda sem sæta ákvörðun um leyfðan heildarafla, samkvæmt lögum þessum og
5. gr. laga nr. 151/1996. Við mat á heildarverðmæti aflahlutdeildar skal annars vegar miða við hlutfallslegt verðmæti einstakra tegunda á viðkomandi fiskveiðiári eða veiðitímabili, sem ákveðið er af sjávarútvegsráðuneytinu, og hins vegar úthlutað aflamark einstakra tegunda á tímabilinu.

Til aflahlutdeildar fiskiskipa í eigu einstakra aðila skv. 1., 2. og 5. mgr. telst einnig aflahlutdeild fiskiskipa sem aðilar hafa á kaupleigu eða leigu til sex mánaða eða lengur.

Tengdir aðilar teljast:
1. Aðilar, þar sem annar aðilinn, einstaklingur eða lögaðili, á beint eða óbeint meiri hluta hlutafjár eða stofnfjár í hinum aðilanum eða fer með meiri hluta atkvæðisréttar. Fyrrnefndi aðilinn telst móðurfyrirtæki en hinn síðarnefndi dótturfyrirtæki.
2. Aðilar, þar sem annar aðilinn, einstaklingur eða lögaðili, hefur með öðrum hætti en greinir í 1. tölul. raunveruleg yfirráð yfir hinum. Fyrrnefndi aðilinn telst móðurfyrirtæki en hinn síðarnefndi dótturfyrirtæki.
3. Lögaðilar, þar sem svo háttar til að sami aðili eða sömu aðilar, einstaklingar eða lögaðilar, eða tengdir aðilar skv. 1. eða 2. tölul., eiga meiri hluta hlutafjár, stofnfjár eða atkvæðisréttar í báðum eða öllum lögaðilunum enda nemi eignarhlutur hvers þeirra um sig a.m.k. 10% af hlutafé, stofnfé eða atkvæðafjölda í viðkomandi lögaðilum. Sama á við ef aðili eða aðilar, einstaklingar eða lögaðilar eða tengdir aðilar skv. 1. eða 2. tölul., sem eiga meiri hluta hlutafjár, stofnfjár eða atkvæðisréttar í lögaðila og hver um sig á a.m.k. 10% hlutafjár, stofnfjár eða atkvæðisréttar í lögaðilanum, eiga ásamt viðkomandi lögaðila meiri hluta hlutafjár, stofnfjár eða atkvæðisréttar í öðrum lögaðila. Til eignarhluta og atkvæðisréttar einstaklinga í lögaðilum samkvæmt þessum tölulið telst jafnframt eignarhluti og atkvæðisréttur maka og skyldmenna í beinan legg.

Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. má samanlögð aflahlutdeild fiskiskipa í eigu einstakra lögaðila, eða tengdra aðila, nema allt að 12% af heildarverðmæti aflahlutdeildar allra tegunda skv. 2. mgr., eigi enginn aðili, einstaklingur eða lögaðili eða tengdir aðilar, meira en 20% af hlutafé, stofnfé eða atkvæðisrétti í viðkomandi lögaðila. Engar hömlur mega vera á viðskiptum með eignarhluta í viðkomandi lögaðilum. Til eignarhluta og atkvæðisréttar einstaklinga í lögaðilum samkvæmt þessari málsgrein telst einnig eignarhluti og atkvæðisréttur maka og skyldmenna í beinan legg. Ef um tengda aðila er að ræða þurfa báðir eða allir að fullnægja skilyrðum þessarar málsgreinar. Það á þó ekki við um eignarhlut móðurfyrirtækis í dótturfyrirtæki. Samvinnufélög teljast fullnægja skilyrðum þessarar málsgreinar ef félagsaðilar þeirra eru 100 eða fleiri.]
1)
1)L. 27/1998, 1. gr.
[11. gr. b. Aðila ber, þegar fyrirsjáanlegt er að aflahlutdeild fiskiskipa aðila fari umfram þau mörk sem sett eru í 1., 2. eða 5. mgr. 11. gr. a, að tilkynna Fiskistofu flutning aflahlutdeilda, samruna lögaðila sem eiga fiskiskip með aflahlutdeild, kaup á eignarhlut í slíkum lögaðilum og kaup, kaupleigu eða leigu á fiskiskipi með aflahlutdeild. Þegar um tengda aðila er að ræða skv. 1. og 2. tölul. 4. mgr. 11. gr. a hvílir tilkynningarskyldan á móðurfyrirtæki en annars á þeim aðila er að gerningnum stendur. Þá ber lögaðilum, sem eiga fiskiskip með aflahlutdeild, að láta Fiskistofu reglubundið í té upplýsingar um eignarhluta allra þeirra sem eiga 10% eða meira af hlutafé, stofnfé eða atkvæðisrétti í viðkomandi lögaðila. Jafnframt skal veita upplýsingar um eignarhluta einstaklinga og maka þeirra og skyldmenna í beinan legg sé samanlagður eignarhluti eða atkvæðisréttur þeirra 10% eða meira af hlutafé, stofnfé eða atkvæðisrétti í viðkomandi lögaðila. Lögaðilum, sem eiga fiskiskip með aflahlutdeild, ber enn fremur að upplýsa Fiskistofu um lögaðila sem þeir eiga eignarhlut eða atkvæðisrétt í og eiga fiskiskip með aflahlutdeild.

Fiskistofa skal meta þær upplýsingar sem aðili hefur látið í té og innan hæfilegs frests tilkynna aðila hver aflahlutdeild fiskiskipa hans er. Ef aflahlutdeild fiskiskipa í eigu einstakra aðila eða tengdra aðila fer umfram framangreind mörk skal Fiskistofa tilkynna viðkomandi aðila að svo sé og hve há umframaflahlutdeild hans er. Aðila skal veittur sex mánaða frestur, frá því að honum sannanlega barst tilkynningin, til að gera ráðstafanir til að koma aflahlutdeildinni niður fyrir mörkin. Hafi aðili ekki veitt Fiskistofu upplýsingar um að fullnægjandi ráðstafanir hafi verið gerðar fyrir lok frestsins fellur umframaflahlutdeildin niður. Skerðist þá aflahlutdeild fiskiskipa í eigu viðkomandi hlutfallslega miðað við einstakar tegundir. Við úthlutun aflahlutdeildar í upphafi næsta fiskveiðiárs eftir lok frestsins skal skerðingin koma til hækkunar aflahlutdeildar fiskiskipa í eigu annarra. Hækkunin skal vera í réttu hlutfalli við aflahlutdeild fiskiskipanna af þeim tegundum sem um ræðir.]
1)
1)L. 27/1998, 2. gr.
12. gr. [Heimilt er að færa aflamark milli skipa. …
1)

Heimilt er að flytja aflamark milli skipa án undangenginna viðskipta á Kvótaþingi í eftirtöldum tilvikum:
1. Þegar aflamark er flutt milli skipa í eigu sama aðila, einstaklings eða lögaðila.
2. Þegar um er að ræða jöfn skipti miðað við meðaltalsviðskiptaverð viðkomandi tegunda á Kvótaþingi í síðastliðinni viku.
3. Þegar um er að ræða flutning aflamarks af tegund sem ráðherra hefur með reglugerð undanþegið viðskiptaskyldu á Kvótaþingi. Forsenda slíkrar undanþágu er að fyrir liggi tillaga stjórnar Kvótaþings, enda séu viðskipti með aflamark af viðkomandi tegund svo lítil að ekki séu að mati stjórnarinnar forsendur til myndunar markaðsverðs á tilboðsmarkaði.
[4. Þegar um er að ræða flutning krókaaflamarks.]
1)

Tilkynna skal Fiskistofu fyrir fram um flutning aflamarks skv. 2. mgr. og öðlast hann ekki gildi fyrr en stofan hefur staðfest flutninginn.

Allur flutningur aflamarks milli skipa, annar en um getur í 2. mgr., er óheimill nema að undangengnum viðskiptum á Kvótaþingi. Fer um hann samkvæmt lögum um Kvótaþing.

[Veiði fiskiskip minna en 50% af samanlögðu aflamarki sínu í þorskígildum talið tvö fiskveiðiár í röð fellur aflahlutdeild þess niður og skal aflahlutdeild annarra skipa í viðkomandi tegundum hækka sem því nemur.]
1) Skal við mat á þessu hlutfalli miðað við verðmæti einstakra tegunda í aflamarki skips samkvæmt ákvörðun ráðuneytis í upphafi fiskveiðiárs. Viðmiðunarhlutfall, sem ákveðið er í þessari málsgrein, lækkar þó um 5% fyrir hverja fulla 30 daga sem skipi er haldið til veiða utan fiskveiðilandhelgi Íslands á fiskveiðiárinu á þeim tegundum sem ekki hefur verið samið um veiðistjórn á.

Tefjist skip frá veiðum í sex mánuði eða lengur innan fiskveiðiárs vegna tjóns eða meiri háttar bilana hefur afli þess fiskveiðiárs ekki áhrif til niðurfellingar aflahlutdeildar …
1) samkvæmt þessari grein.

Á hverju fiskveiðiári er einungis heimilt að flytja af fiskiskipi aflamark, umfram aflamark sem flutt er til skips, sem nemur 50% af samanlögðu aflamarki sem fiskiskipi er úthlutað í upphafi fiskveiðiárs á grundvelli aflahlutdeildar þess. Í þessu sambandi skal aflamark metið í þorskígildum á grundvelli verðmætastuðla sem ráðherra ákveður í upphafi fiskveiðiárs. [Þó er heimilt með samþykki Fiskistofu að víkja frá þessari takmörkun á heimild til flutnings aflamarks í þeim tilvikum að um breytingar á skipakosti viðkomandi útgerðar sé að ræða og aflahlutdeildin sé jafnframt flutt milli viðkomandi skipa.]
1)]
2)

[Krókaaflamark verður aðeins flutt til báta sem eru undir 6 brl. eða 6 brúttótonnum.]
1)
1)L. 1/1999, 6. gr. 2)L. 12/1998, 1. gr.
III. kafli.
Framkvæmd og eftirlit.
13. gr. Ráðherra getur sett nánari reglur varðandi framkvæmd laga þessara.
1)
1)Rg. 481/1990 og 499/1990. Rg. 58/1996, sbr. 172/1997. Rg. 414/1994, sbr. 452/1994. Rg. 492/1993, sbr. 482/1994. Rg. 612/1994. Rg. 310/1995. Rg. 511/1998. Rg. 522/1998.
14. gr. Sérstök samráðsnefnd, skipuð einum fulltrúa tilnefndum sameiginlega af samtökum sjómanna og einum tilnefndum af samtökum útvegsmanna, auk formanns sem skipaður er af ráðherra án tilnefningar, skal fjalla um álita- og ágreiningsmál varðandi veiðileyfi, úthlutun aflahlutdeildar og aflamark samkvæmt lögum þessum og reglugerðum settum samkvæmt þeim og gera tillögur til ráðherra um úrlausn þeirra.
15. gr. Skipstjórnarmenn veiðiskipa, sem hljóta veiðileyfi í atvinnuskyni skv. 5. gr., skulu halda sérstakar afladagbækur sem [Fiskistofa]
1) leggur til. Skal með reglugerð kveða nánar á um þær upplýsingar sem skrá skal í afladagbækur, form þeirra og skil til [Fiskistofu].
1)

Útgerðarmönnum, skipstjórnarmönnum og kaupendum afla, svo og umboðsmönnum, útflytjendum, flutningsaðilum, bönkum og lánastofnunum, er skylt að láta ráðuneytinu eða [Fiskistofu]
1) ókeypis í té og í því formi, sem ráðherra ákveður, allar þær upplýsingar sem unnt er að láta í té og nauðsynlegar eru taldar vegna eftirlits með framkvæmd laga þessara.
1)L. 36/1992, 10. gr.
16. gr. …
1)
1)L. 57/1996, 31. gr.
17. gr. [Fiskistofa]
1) annast eftirlit með framkvæmd laga þessara og hefur í því skyni sérstaka eftirlitsmenn í sinni þjónustu.

Jafnframt því sem þessir eftirlitsmenn sinna verkefnum skv.
8. gr. laga nr. 81 31. maí 1976 og eftirliti með reglum settum samkvæmt heimild í þeim lögum skulu þeir fylgjast með löndun, vigtun og vinnslu afla, enn fremur útflutningi afla eða afurða eins og nánar er kveðið á í lögum þessum, reglugerðum settum samkvæmt þeim og í erindisbréfi.
2)

Eftirlitsmönnum er heimilt að fara í veiðiferðir með fiskiskipum og að fara um borð í skip til athugunar á farmi og veiðarfærum. Enn fremur skal þeim heimill aðgangur að öllum vinnslusölum fiskverkana og birgðageymslum.

[Ráðherra getur með reglugerð ákveðið að settur skuli, á kostnað útgerða, sjálfvirkur eftirlitsbúnaður til fjareftirlits um borð í fiskiskip.]
3)
1)L. 36/1992, 12. gr. 2)Erbr. 87/1995. 3)L. 83/1995, 5. gr.
18. gr. Ráðherra skal með reglugerð ákveða sérstakt gjald — veiðieftirlitsgjald
1) — fyrir veiðiheimildir sem veittar eru á grundvelli laga þessara eða annarra laga er kveða á um stjórn fiskveiða. Skal gjaldið renna til reksturs veiðieftirlits …
2) og skal upphæð þess miðast við að það standi undir rekstri eftirlitsins …
3)

Gjald vegna tilkynningar um aflamark skal miðast við áætlað verðmæti þess aflamarks sem úthlutað er. Skal ráðherra árlega áætla hlutfallslegt verðmæti einstakra tegunda í þessu skyni. Aldrei skal gjald samkvæmt þessari málsgrein vera hærra en [0,4%]
3) af áætluðu verðmæti þess afla sem aflamark skips heimilar veiðar á á komandi fiskveiðiári, vertíð eða veiðitímabili. Gjald fyrir hverja tilkynningu um aflamark skal þó aldrei vera lægra en [2.000 kr.]
3) og er sú fjárhæð grunntala er miðast við byggingarvísitölu í janúar 1991 og breytist í hlutfalli við þær breytingar sem síðar kunna að verða á henni.

[Innheimta skal sérstakt veiðieftirlitsgjald vegna báta sem stunda handfæraveiðar með dagatakmörkunum. Gjald samkvæmt þessari málsgrein skal innheimt árlega. Skal gjaldið vera jafnhátt gjaldi vegna tilkynningar um aflamark skv. 2. mgr. og gilda ákvæði þeirrar málsgreinar um gjald þetta eftir því sem við getur átt. Gjald samkvæmt þessari málsgrein skal innheimt samhliða gjaldi vegna almenns veiðileyfis skv. 4. mgr. Skal gjaldið miðast við landaðan afla á undanfarandi tímabili frá 1. ágúst til 31. júlí og skráningu landaðs afla í aflaupplýsingakerfi Fiskistofu.]
4)

Fyrir veitingu almenns leyfis til veiða í atvinnuskyni og veiðileyfa, sem veitt verða á grundvelli 2. mgr. 4. gr., skal greiða [10.000 kr.]
3) Ráðherra er heimilt að hækka gjaldið er nemur hlutfallslegri hækkun er kann að verða á vísitölu byggingarkostnaðar, sbr.
l. nr. 42/1987. Grunntaxti gjaldsins er miðaður við byggingarvísitölu í desember 1989, þ.e. 157,9 stig.

Útgerð skips skal greiða fæði veiðieftirlitsmanna og sjá þeim endurgjaldslaust fyrir aðstöðu meðan þeir stunda eftirlitsstörf um borð.

[Fyrir staðfestingu Fiskistofu á flutningi aflahlutdeildar milli skipa skal útgerð þess skips sem flutt er frá greiða 1.500 kr.

Gjald skv. [6. mgr.]
5) er grunngjald er miðast við byggingarvísitölu í janúar 1994 og breytist í hlutfalli við þær breytingar er á henni kunna að verða.]
6)
1)Rg. 438/1996. Rg. 418/1997. 2)L. 87/1994, 11. gr. 3)L. 1/1992, 5. gr. 4)L. 1/1999, 7. gr. 5)L. 144/1995, 13. gr. 6)L. 87/1994, 12. gr.
IV. kafli.
Viðurlög o.fl.
19. gr. [Fiskistofa skal svipta skip leyfi til veiða í atvinnuskyni fyrir brot á lögum þessum eftir því sem nánar er fyrir mælt í lögum um umgengni um nytjastofna sjávar.]
1)
1)L. 57/1996, 26. gr.
20. gr. [Brot gegn ákvæðum laga þessara, reglum settum samkvæmt þeim og ákvæðum leyfisbréfa varða sektum hvort sem þau eru framin af ásetningi eða gáleysi. Sé um stórfelld eða ítrekuð ásetningsbrot að ræða skulu þau að auki varða …
1) fangelsi allt að sex árum.

Við fyrsta brot skal sekt eigi nema lægri fjárhæð en 400.000 kr. og eigi hærri fjárhæð en 4.000.000 kr. eftir eðli og umfangi brots. Við ítrekað brot skal sekt eigi nema lægri fjárhæð en 800.000 kr. og eigi hærri fjárhæð en 8.000.000 kr., sömuleiðis eftir eðli og umfangi brots.

Beita skal ákvæðum laga um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla vegna brota gegn lögum þessum eftir því sem við á.]
2)
1)L. 82/1998, 195. gr. 2)L. 57/1996, 27. gr.
[20. gr. a. Sektir má jafnt gera lögaðila sem einstaklingi. Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 20. gr. má ákvarða lögaðila sekt þótt sök verði ekki sönnuð á fyrirsvarsmenn eða starfsmenn hans eða aðra þá einstaklinga sem í þágu hans starfa, enda hafi brotið orðið eða getað orðið til hagsbóta fyrir lögaðilann. Með sama skilorði má einnig gera lögaðila sekt ef fyrirsvarsmenn eða starfsmenn hans eða aðrir einstaklingar sem í þágu hans starfa hafa gerst sekir um brot.

Tilraun og hlutdeild í brotum á lögum þessum er refsiverð eftir því sem segir í almennum hegningarlögum.]
1)
1)L. 57/1996, 28. gr.
[20. gr. b. Mál út af brotum gegn lögum þessum skulu sæta meðferð opinberra mála.]
1)
1)L. 57/1996, 29. gr.
V. kafli.
Ýmis ákvæði.
21. gr. …
1)
1)L. 79/1997, 21. gr.
22. gr. …
23. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi og koma til framkvæmda 1. janúar 1991. …
Ákvæði til bráðabirgða. …
[IX. Á tímabilinu 1. september 1994 til 31. desember 1995 skulu eftirfarandi takmarkanir gilda um framsal aflamarks til viðbótar þeim takmörkunum er um ræðir í 12. gr.

Þegar meira en 15% af aflamarki því af einhverri tegund, sem úthlutað er til skips í upphafi fiskveiðiárs, hefur verið flutt frá skipinu er óheimilt á sama fiskveiðiári að flytja aflamark af sömu tegund til skipsins. Á sama hátt er óheimilt að flytja aflamark frá skipi þegar meira en sem svarar 15% af upphaflegu aflamarki skipsins af viðkomandi tegund hefur verið flutt til skipsins á fiskveiðiárinu. Flutningur milli skipa í eigu sömu útgerðar og jöfn skipti sæta ekki takmörkunum samkvæmt þessari málsgrein. Fiskistofu er heimilt að veita undanþágu frá banni við flutningi aflamarks frá skipi ef alvarlegar bilanir verða þess valdandi að veiðiheimildir þess nýtast ekki.

Aldrei er heimilt að flytja aflamark milli skipa leiði slíkur flutningur til þess að veiðiheimildir þess skips sem flutt er til verði bersýnilega umfram veiðigetu þess.]
1)
1)L. 87/1994, brbákv.
[X. Á fiskveiðiárunum 1995/1996 til og með 1998/1999 skal árlega ráðstafa 5.000 lestum af þorski til jöfnunar samkvæmt þessu ákvæði. Aflaheimildir þessar miðast við óslægðan fisk og skulu þær dregnar frá leyfðum heildarafla þorsks áður en honum er skipt á grundvelli aflahlutdeildar, sbr. 3. mgr. 7. gr.

Aflaheimildum skv. 1. mgr. skal árlega úthlutað til þeirra skipa sem orðið hafa fyrir mestri skerðingu við úthlutun aflamarks frá fiskveiðiárinu 1991/1992 til þess fiskveiðiárs er úthlutunin varðar. Skal úthlutunin framkvæmd eftir að ákvörðun hefur verið tekin um ráðstöfun aflaheimilda skv. 9. gr. og miðast við að skerðing umfram tiltekin mörk skuli að fullu bætt, þó þannig að ekkert skip fái meira en 10 lestir af þorski, miðað við slægðan fisk, í sinn hlut árlega. Skip, sem leyfi hafa til fullvinnslu botnfiskafla um borð, sbr.
lög nr. 54/1992, skulu ekki njóta bóta samkvæmt þessu ákvæði.

Ráðherra skal með reglugerð
1) kveða nánar á um úthlutun samkvæmt þessari grein. Skal hann m.a. kveða á um við hvaða tíma skuli miða aflahlutdeild. Þá er ráðherra heimilt að ákveða að litið skuli í heild á veiðiheimildir skipa í eigu sömu útgerðar varðandi bótaútreikning ef ástæða er til að ætla að reynt verði að hafa áhrif á bótaútreikning með millifærslu aflahlutdeildar milli skipa.

Á fiskveiðiárinu 1994/1995 skal úthluta sérstaklega til jöfnunar þeim hluta aflahámarks vegna línutvöföldunar skv. 6. mgr. 10. gr. sem ekki nýttist við línuveiðar í nóvember til febrúar. Skal þessum aflaheimildum úthlutað í samræmi við reglur 2. og 3. mgr. þessa ákvæðis eftir því sem við á og skal í þeim efnum miða við aflahlutdeild einstakra skipa 1. maí 1995.

Við ráðstöfun aflaheimilda skv. 9. gr. á því tímabili sem um getur í 1. mgr. þessa ákvæðis er heimilt að taka mið af breytingum í aflamarki sem orðið hafa á lengra tímabili en milli fiskveiðiára.]
2)
1)Rg. 446/1998. 2)L. 83/1995, brbákv. I.
[XI. …
1)]
2)
1)L. 144/1997, 2. gr. 2)L. 83/1995, brbákv. II.
[XII. Sjávarútvegsráðherra skal tafarlaust láta fara fram könnun á þeim kostum sem fyrir hendi eru til fjareftirlits með sjálfvirkum búnaði með fiskiskipum. Skal að því stefnt að kerfi er hafi virkt eftirlit með nýtingu sóknardaga báta sem krókaveiðar stunda verði komið á fyrir 1. febrúar 1996. Takist það ekki skal ráðherra með reglugerð kveða á um tilkynningarskyldu og eftirlit með þessum veiðum með öðrum hætti sem hann telur fullnægjandi.]
1)
1)L. 83/1995, brbákv. III.
[XIII. Þrátt fyrir ákvæði 4. málsl. 3. mgr. 18. gr. skal við innheimtu gjaldsins í fyrsta sinn 1. september 1996 miða gjaldið við landaðan afla viðkomandi krókabáts á sex mánaða tímabili frá 1. febrúar til 31. júlí 1996 og þann helming afla sem ekki telst til aflamarks við línuveiðar við afla landaðan í janúar og febrúar 1996 miðað við skráningu aflans í aflaupplýsingakerfi Fiskistofu.]
1)
1)L. 144/1995, 14. gr.
[XIV. Heimild til að framselja þorskaflahámark krókabáts til annars krókabáts eða báta, með því skilyrði að allt hámarkið sé flutt af viðkomandi bát, veiðileyfi falli niður og rétti til endurnýjunar sé afsalað, skal taka þegar gildi. Enn fremur skal heimild 2. mgr. 6. gr. a er varðar sjóstangaveiðimót þegar taka gildi.]
1)
1)L. 105/1996, brbákv. I.
[XV. Reikna skal sérstaka viðbótaraflahlutdeild til handa skipum sem stundað hafa línuveiðar á fiskveiðiárunum 1993/1994, 1994/1995 og 1995/1996 í mánuðunum nóvember, desember, janúar og febrúar þar sem afli var aðeins að hálfu talinn til aflamarks skv. 6. mgr. 10. gr. Skal samanlögð viðbótaraflahlutdeild þessara skipa vera jöfn hlutfallinu milli 30 af hundraði línuafla þeirra á þessum þremur árum í framangreindum mánuðum af þorski og ýsu og úthlutaðs heildaraflamarks af sömu tegundum á sömu árum að viðbættum samanlögðum hálfum línuafla í framangreindum mánuðum á sömu árum hins vegar. Skal aflahlutdeild allra skipa endurreiknuð að teknu tilliti til þessa.

Viðbótaraflahlutdeild línuskipa af hvorri tegund skv. 1. mgr. skal skiptast milli þeirra í hlutfalli við þann afla af tegundinni sem ekki taldist til aflamarks vegna reglna um línutvöföldun á tveimur bestu af framangreindum þremur fiskveiðiárum.]
1)
1)L. 105/1996, brbákv. II.
[XVI. Breytingar á skipum sem stunda veiðar með aflamarki og leyfi fengu til veiða í atvinnuskyni fyrir 1. janúar 1986 skulu heimilar, þrátt fyrir ákvæði 1. gr., hafi samningar þar um verið gerðir fyrir og skilað til Fiskistofu innan fjögurra vikna frá gildistöku laga þessara. Breytingum skal þá lokið í síðasta lagi innan 14 mánaða frá gildistöku laganna. Slíkar breytingar skulu ekki lagðar til grundvallar mati á stærð skips við endurnýjun skipsins síðar.]
1)
1)L. 133/1997, brbákv.
[XVII. Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. 6. gr. um tímamörk vegna vals á veiðikerfi skal krókabátum, sem stunda veiðar í tiltekinn fjölda sóknardaga skv. 6.–10. mgr. 6. gr., heimilt að endurskoða val sitt. Eigandi krókabáts skal tilkynna Fiskistofu um val sitt fyrir 1. febrúar 1998. Þorskaflahámark þeirra báta sem þann kost velja og breytingar vegna endurvals á sameiginlegum hámarksþorskafla þeirra báta sem stunda veiðar með handfærum, eða handfærum og línu, skulu miðast við reiknað þorskaflahámark skv.
2. gr. laga nr. 83/1995.

Á fiskveiðiárinu 1997/1998 skulu sóknardagar þeirra báta sem stunda veiðar með handfærum eingöngu, sbr. 9.–10. mgr. 6. gr., vera 40 en fjöldi sóknardaga þeirra báta sem stunda veiðar með handfærum og línu, sbr. 7.–8. mgr. 6. gr., vera 32.

Hafi bátur sem velur þorskaflahámark skv. 1. mgr. þegar nýtt hluta af sóknardögum fiskveiðiársins 1997/1998 fyrir 1. desember 1997 skal reikna hvaða hlutfall fimmtungur af nýttum sóknardögum er af heildarfjölda leyfðra sóknardaga bátsins á fiskveiðiárinu 1997/1998 og skerða þorskaflahámark bátsins á fiskveiðiárinu 1997/1998 í sama hlutfalli. Hafi sóknardagar verið nýttir frá og með 1. desember 1997 skal reikna hvaða hlutfall þeir eru af heildarfjölda leyfðra sóknardaga bátsins á fiskveiðiárinu 1997/1998 og skerða þorskaflahámark bátsins á fiskveiðiárinu 1997/1998 í sama hlutfalli.]
1)
1)L. 144/1997, brbákv. I.
[XVIII. Úthluta skal varanlega, samkvæmt reglum í 2. og 3. mgr., 500 lestum af þorski, miðað við óslægðan fisk, sem úthlutað hefur verið árlega af Byggðastofnun fiskveiðiárin 1995/1996 og 1996/1997, sbr. ákvæði til bráðabirgða II í
lögum nr. 83/1995.

Til krókabáta á þorskaflahámarki skal úthluta 180 lestum, miðað við óslægðan þorsk, til báta sem 1. september sl. voru gerðir út frá byggðarlögum sem Byggðastofnun úthlutaði til á síðasta fiskveiðiári. Úthlutað skal hlutfallslegri viðbót miðað við aflaheimildir 1. september 1997, þó þannig að enginn bátur fái meira en 8 lestir í sinn hlut miðað við óslægðan þorsk. Ekki skal bætt umfram þau mörk að þorskaflahámark með bótum verði 80 lestir miðað við 1. september 1997.

Til aflamarksbáta undir 10 brúttórúmlestum að stærð skal úthlutað 320 lestum, miðað við óslægðan þorsk, til báta sem lönduðu sem samsvarar 6 lestum eða meira í þorskígildum talið samtals á fiskveiðiárunum 1995/1996 og 1996/1997. Úthluta skal hlutfallslega miðað við úthlutaðar aflaheimildir, í þorskígildum 1. september 1997, þó þannig að enginn bátur fái meira en 1,5 lestir í sinn hlut miðað við slægðan þorsk.]
1)
1)L. 144/1997, brbákv. II.
[XIX. Sjávarútvegsráðherra skal fyrir lok fiskveiðiársins 1998/1999 láta kanna hvaða áhrif lögin hafi haft á íslenskan sjávarútveg, sérstaklega stöðu og möguleika einstaklingsútgerðarinnar. Skal ráðherra fyrir árslok 1999 leggja fyrir Alþingi skýrslu þar sem niðurstöður könnunarinnar verði birtar.]
1)
1)L. 12/1998, brbákv. I.
[XX. Ákvæði 1. tölul. 2. efnismgr. 1. gr. laga þessara gilda einnig um flutning aflamarks skipa innan sömu útgerðar ef skip hafa verið tekin á kaupleigu eða leigu og þeir samningar verið gerðir fyrir gildistöku laga þessara.]
1)
1)L. 12/1998, brbákv. II.
[XXI. Sé aflahlutdeild fiskiskipa í eigu einstakra aðila, einstaklinga eða lögaðila, eða í eigu tengdra aðila við gildistöku laga þessara yfir þeim mörkum sem sett eru í 1., 2. eða 5. mgr. 1. gr. skal viðkomandi aðili þegar í stað senda Fiskistofu tilkynningu í samræmi við 1. mgr. 2. gr. Fiskistofa skal í samræmi við 2. mgr. 2. gr. tilkynna aðila hver umframaflahlutdeild hans er og gildir 2. mgr. 2. gr. um frest aðila til að ráðstafa umframaflahlutdeildinni og áhrif þess að umframaflahlutdeildinni er ekki ráðstafað innan tilskilins frests.]
1)
1)L. 27/1998, brbákv. I.
[XXII. Sjávarútvegsráðherra skal að liðnum fimm árum frá gildistöku laga þessara leggja fyrir Alþingi skýrslu þar sem gerð er grein fyrir áhrifum þeirra á íslenskan sjávarútveg.]
1)
1)L. 27/1998, brbákv. II.
[XXIII. Bátar sem stundað hafa veiðar með línu og handfærum með dagatakmörkunum eða þorskaflahámarki, krókabátar, skulu á fiskveiðiárunum 1998/1999 og 1999/2000 stunda veiðar samkvæmt þessu ákvæði.

Krókabátum er einungis heimilt að stunda veiðar með línu og handfærum eða einungis með handfærum. Þó er sjávarútvegsráðherra heimilt að veita þeim leyfi til að stunda veiðar á botndýrum með þeim veiðarfærum sem til þarf, svo sem plógum og gildrum, svo og til hrognkelsaveiða í net.

Heildarþorskaflaviðmiðun krókabáta er 13,75% af ákvörðuðum heildarþorskafla. Þar af er samanlagt þorskaflahámark þeirra báta sem þann kost hafa valið 12,64%, heildarþorskaflaviðmiðun þeirra báta sem stunda veiðar með dagatakmörkunum og nota línu og handfæri 0,18% og heildarþorskaflaviðmiðun þeirra báta sem stunda veiðar með dagatakmörkunum og nota handfæri eingöngu 0,93%.

Heimilt er að framselja varanlega þorskaflahámark krókabáts til annars krókabáts eða báta sem stunda veiðar með þorskaflahámarki. Innan fiskveiðiárs er heimilt að flytja allt að 30% af úthlutuðu þorskaflahámarki krókabáts til annars krókabáts eða báta sem stunda veiðar með þorskaflahámarki. Heimilt er að flytja allt að 20% af þorskaflahámarki frá fiskveiðiárinu 1998/1999 yfir á fiskveiðiárið 1999/2000. Enn fremur er heimilt að flytja til krókabáts á þorskaflahámarki aflamark af þorski skv. 7. gr. Um þann flutning gilda almennar reglur um flutning aflamarks. Tilkynna skal Fiskistofu fyrir fram um flutning þorskaflahámarks milli báta og öðlast hann ekki gildi fyrr en Fiskistofa hefur staðfest flutninginn. Heimilt er að veita báti, sem stundað hefur veiðar með tilteknum fjölda sóknardaga síðastliðin tvö fiskveiðiár, leyfi til að stunda veiðar með þorskaflahámarki þess í stað, en reiknað þorskaflahámark bátsins verður þá áfram hluti sameiginlegs hámarksþorskafla báta sem stunda veiðar samkvæmt dagatakmörkunum.

Sóknardagur telst vera allt að 24 klukkustundir frá upphafi veiðiferðar. Sóknardegi telst lokið þegar bátur landar afla. Ráðherra skal með reglugerð kveða nánar á um fyrirkomulag sóknardaga og eftirlit með þeim. Utan sóknardaga eru allar veiðar bannaðar. Ráðherra getur þó heimilað að veiðar í sérhæfð veiðarfæri samkvæmt síðari málslið 2. mgr. þessa ákvæðis, sem og veiðar með sérhæfðri línu til veiða á háffiskum, séu utan sóknardaga.

Fjöldi sóknardaga þeirra báta sem stunda veiðar með dagatakmörkunum og nota línu og handfæri skal vera 32 á hvoru fiskveiðiári 1998/1999 og 1999/2000. Ef bátur rær með línu skal margfalda fjölda nýttra daga með tölunni 1,9 á tímabilinu frá 1. maí til 1. september en með tölunni 1,35 á öðrum tíma. Þorskafli hvers báts má þó eigi vera meiri en 30 lestir á hvoru fiskveiðiári miðað við óslægðan fisk.

Sé einn maður í áhöfn krókabáts er óheimilt að róa með og eiga í sjó fleiri en 12 bala alls af línu fyrir hvern sóknardag en 20 bala séu tveir eða fleiri í áhöfn. Miðað er við að 500 krókar séu á línu í hverjum bala.

Fjöldi sóknardaga þeirra báta sem veiðar stunda með dagatakmörkunum og nota handfæri eingöngu skal vera 40 á hvoru fiskveiðiári 1998/1999 og 1999/2000. Þó skal þorskafli hvers báts eigi vera meiri en 30 lestir á hvoru fiskveiðiári miðað við óslægðan fisk.

Heimilt er að flytja veiðileyfi frá krókabáti sem leyfi hefur til að veiða samkvæmt þessu ákvæði til annars jafnstórs krókabáts miðað við rúmtölu. Óheimilt er að flytja veiðileyfi til krókabáts sem er stærri en sá krókabátur sem veiðileyfi lætur nema jafnframt sé flutt veiðileyfi af öðrum krókabáti sem er þrefalt stærri að rúmtölu en sem stækkuninni nemur. Slíkur bátur má þó ekki verða stærri en 6 brúttótonn. Óheimilt er að flytja veiðileyfi frá báti sem stundar veiðar með þorskaflahámarki til báts sem stundar veiðar með tilteknum fjölda sóknardaga.

Óheimilt er að stækka krókabát nema flutt sé veiðileyfi af öðrum báti sem er þrefalt stærri að rúmtölu en sem stækkuninni nemur. Óheimilt er að flytja veiðileyfi frá báti sem stundar veiðar með þorskaflahámarki til báts sem stundar veiðar með tilteknum fjölda sóknardaga. Slíkum báti má þó aldrei breyta svo að hann verði stærri en 6 brúttótonn.

Ráðherra getur ákveðið að afli teljist ekki til þorskaflahámarks og veiðidagar ekki til sóknardaga á tilteknum fjölda opinberra sjóstangaveiðimóta á fiskveiðiárunum 1998/1999 og 1999/2000.

Áætlaðan afla krókabáta á fiskveiðiárinu 1999/2000 skal draga frá leyfðum heildarafla áður en honum er skipt á grundvelli aflahlutdeildar.

Innheimta skal sérstakt veiðieftirlitsgjald vegna báta sem stunda veiðar samkvæmt þessu bráðabirgðaákvæði. Skal gjaldið vera jafnhátt gjaldi vegna tilkynningar um aflamark skv. 2. mgr. 18. gr. laganna og gilda ákvæði þeirrar málsgreinar um gjald þetta eftir því sem við getur átt. Gjald samkvæmt þessari málsgrein skal innheimt samhliða gjaldi vegna almenns veiðileyfis skv. 4. mgr. 18. gr. Skal gjaldið miðast við landaðan afla á undanfarandi tímabili frá 1. ágúst til 31. júlí og skráningu landaðs afla í aflaupplýsingakerfi Fiskistofu.

Þrátt fyrir ákvæði þessa bráðabirgðaákvæðis skal þeim bátum sem stundað hafa veiðar með línu og handfærum eða handfærum eingöngu með dagatakmörkunum gefast kostur á að velja að stunda veiðar samkvæmt ákvæðum 6. gr. laganna, enda hafi þeir tilkynnt Fiskistofu um val sitt fyrir [15. apríl 1999].
1) Á fiskveiðiárunum 1998/1999 og 1999/2000 skal þessum bátum heimilt að stunda veiðar í 23 sóknardaga án takmarkana á heildarafla. Að öðru leyti gildir bráðabirgðaákvæði þetta um veiðar þessara báta.]
2)

[Þrátt fyrir ákvæði þessa bráðabirgðaákvæðis er heimilt að veita báti sem stundað hefur veiðar með tilteknum fjölda sóknardaga og kýs að stunda veiðar með krókaaflamarki frá og með fiskveiðiárinu 2000/2001 leyfi til að stunda veiðar með þorskaflahámarki frá og með 15. apríl 1999 og til upphafs fiskveiðiársins 2000/2001. Úthlutað þorskaflahámark báts þann tíma skal vera hið sama og reiknað krókaaflamark hans samkvæmt ákvæði til bráðabirgða II í
lögum nr. 1/1999. Á tímabilinu skulu að öðru leyti gilda sömu reglur og takmarkanir um veiðar þessara báta og annarra báta sem stunda veiðar með þorskaflahámarki, þar með talið um framsal þorskaflahámarksins. Á fiskveiðiárinu 1998/1999 skal draga frá úthlutuðu þorskaflahámarki þann þorskafla sem bátar skv. 1. málsl. þessarar málsgreinar hafa aflað fram til 15. apríl 1999. Hafi bátur aflað meira á því tímabili en sem nemur úthlutuðu þorskaflahámarki er honum óheimilt að stunda veiðar fyrr en flutt hefur verið á hann þorskaflahámark sem samsvarar umframveiði. Tilkynna skal Fiskistofu fyrir 15. apríl 1999 hvort óskað er eftir því að nýta heimild skv. 1. málsl. Um ákvörðun aflahlutdeildar þeirra báta, sem kjósa að stunda veiðar með þorskaflahámarki samkvæmt þessari málsgrein, í ýsu, ufsa og steinbít skal fara samkvæmt þeim reglum sem gilda um úthlutun til báta sem stundað hafa veiðar með dagatakmörkunum, sbr. 5. mgr. ákvæðis til bráðabirgða II í
lögum nr. 1/1999.]
1)
1)L. 9/1999, 2. gr. 2)L. 1/1999, brbákv. I.
[XXIV. Fyrir upphaf fiskveiðiársins 1999/2000 skal krókabátum úthlutað aflahlutdeild sam kvæmt þessu ákvæði.

Bátar sem stundað hafa veiðar með þorskaflahámarki skulu fá úthlutað aflahlutdeild í þorski miðað við þá hlutdeild sem aflahámark bátsins er í þeim 12,64% af hámarksþorskafla sem í hlut þessa bátaflokks hefur komið.

Þeirri 0,18% hlutdeild í hámarksþorskafla sem komið hefur í hlut báta sem stunda veiðar með línu og handfærum með dagatakmörkunum, auk aflahlutdeildar í þorski sem nemur 95 lestum miðað við óslægðan fisk, skal skipt milli báta á grundvelli aflareynslu þannig að 80% séu miðuð við aflareynslu fiskveiðiárin 1996/1997 og 1997/1998 og 20% séu miðuð við reiknað þorskaflahámark skv.
2. gr. laga nr. 83/1995. Þó skal enginn bátur fá minni aflaheimild en 500 kg, miðað við óslægðan fisk.

Þeirri 0,93% hlutdeild í hámarksþorskafla sem komið hefur í hlut báta sem stunda veiðar með handfærum eingöngu með dagatakmörkunum, auk aflahlutdeildar í þorski sem nemur 506 lestum miðað við óslægðan fisk, skal skipt milli báta á grundvelli aflareynslu þannig að 80% séu miðuð við aflareynslu fiskveiðiárin 1996/1997 og 1997/1998 og 20% séu miðuð við reiknað þorskaflahámark skv.
2. gr. laga nr. 83/1995. Þó skal enginn bátur fá minni aflaheimild en 500 kg, miðað við óslægðan fisk.

Samanlögð hlutdeild krókabáta í hámarksafla af ýsu, ufsa og steinbít skal vera jöfn meðalhlutdeild þeirra í heildarafla af hverri þessara tegunda almanaksárin 1996, 1997 og 1998 og skal hún skiptast milli veiðikerfa þeirra í sömu innbyrðis hlutföllum og þorskur skv. 2.–4. mgr. Í flokki báta sem stundað hafa veiðar með þorskaflahámarki skal hlutdeild af ýsu, ufsa og steinbít skiptast í hlutfalli við veiðar hvers báts um sig á þessum árum og skal í þeim samanburði miðað við tvö bestu ár hvers báts af árunum 1996, 1997 og 1998. Við útreikning þennan skal afli árið 1998 margfaldaður með tveimur. Í flokkum báta sem stundað hafa veiðar með dagatakmörkunum skal hlutdeild af ýsu, ufsa og steinbít skiptast jafnt milli báta innan hvors flokks um sig.

Það aflamark sem úthlutað er á grundvelli aflahlutdeildar samkvæmt þessu ákvæði (krókaaflamark) er óheimilt að nýta á annan hátt en við línu- og handfæraveiðar. Aflahlutdeild og aflamark samkvæmt þessu ákvæði verður ekki flutt til báts sem hefur aðra gerð veiðileyfis.]
1)

[Veiðar krókabáta á krókaaflamarki úr öðrum stofnum en tilgreindum eru ekki bundnar aflatakmörkunum.]
2)
1)L. 1/1999, brbákv. II. 2)L. 9/1999, 3. gr.
[XXV. Á fiskveiðiárunum 1999/2000 til og með 2005/2006 skal úthluta [árlega 3.000 lestum af þorski].
1) Þessum aflaheimildum skal úthlutað til báta sem höfðu aflahlutdeild 1. desember 1998 [og voru þann dag]
1) minni en 200 brúttótonn, enda hafi þeir landað þorskafla á fiskveiðiárinu 1996/1997 eða 1997/1998. Aflaheimildir þessar miðast við óslægðan fisk og skulu þær dregnar frá leyfðum heildarafla þorsks áður en honum er skipt á grundvelli aflahlutdeildar. Úthlutun til einstakra báta skal miðast við heildaraflamark þeirra í þorskígildum talið. Við útreikning þennan skal miða við aflahlutdeildarstöðu þeirra 1. desember 1998, úthlutað heildaraflamark fiskveiðiársins 1998/1999 og verðmætastuðla á því fiskveiðiári, þó þannig að enginn bátur fái meira en 100% aukningu á þorskaflamarki og enginn hærri úthlutun en 10 lestir miðað við óslægðan fisk. Aldrei skal þó úthlutun samkvæmt þessari málsgrein leiða til þess að heildaraflaheimildir einstakra skipa verði meiri en 450 þorskígildislestir samtals. [Endurnýi útgerð bát sem á rétt á úthlutun samkvæmt þessari málsgrein, með nýsmíði eða kaupum á öðrum bát, skal úthluta til þess báts er í staðinn kemur, enda hafi allar aflaheimildir verið fluttar yfir á hinn nýja bát af þeim sem verið er að endurnýja og ekki samið um annað. Tilkynna skal Fiskistofu um slíka endurnýjun og hvorum bátnum skal fylgja úthlutun samkvæmt þessari málsgrein. Jafnframt skal sjávarútvegsráðherra heimilt að úthluta samkvæmt reglum þessarar málsgreinar viðbótaraflaheimildum til báta sem hafa komið í stað annarra á tímabilinu frá 1. september 1997 til gildistöku þessara laga, enda hafi allar aflaheimildir verið fluttar yfir á hinn nýja bát af þeim sem endurnýjaður var og skerðir slík úthlutun ekki rétt annarra samkvæmt málsgreininni.]
1)

Þá skal úthluta aflahlutdeild í þorski til aflamarksbáta [sem voru minni en 10 brl. eða 10 brúttótonn 1. janúar 1991 eða 1. desember 1998],
1) enda hafi þeir sömu eða meiri aflahlutdeild í þorski 1. september 1999 en 1. desember 1998 og hafi landað þorskafla á fiskveiðiárinu 1996/1997 eða 1997/1998. Þorskaflahlutdeild þessara báta skal aukin um 5% miðað við aflahlutdeildarstöðu þeirra 1. desember 1998.

Við upphaf fiskveiðiársins 1999/2000 skal endurreikna aflahlutdeildir einstakra fiskiskipa að teknu tilliti til þeirra breytinga sem leiðir af ákvæðum til bráðabirgða II og III.]
2)
1)L. 9/1999, 4. gr. 2)L. 1/1999, brbákv. III.
[XXVI. Á fiskveiðiárunum 1999/2000 til og með fiskveiðiársins 2005/2006 hefur Byggðastofnun árlega til ráðstöfunar aflaheimildir sem nema 1.500 þorskígildislestum, miðað við óslægðan fisk, til að styðja byggðarlög sem lent hafa í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi. Skal þeim úthlutað í samráði við viðkomandi sveitarstjórnir. Aflaheimildir skulu vera í þorski, ýsu, steinbít og ufsa í hlutfalli við leyfðan heildarafla af þessum tegundum. Aflaheimildir þessar miðast við óslægðan fisk og skulu þær dregnar frá leyfðum heildarafla þessara tegunda áður en honum er skipt á grundvelli aflahlutdeildar.]
1)
1)L. 1/1999, brbákv. IV.
[XXVII. Sjávarútvegsráðherra skal skipa nefnd til að endurskoða lög um stjórn fiskveiða. Skal þeirri endurskoðun lokið fyrir lok fiskveiðiársins 2000/2001.]
1)
1)L. 1/1999, brbákv. V.