Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. febrúar 2010. Útgáfa 138a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um íslenskan ríkisborgararétt
1952 nr. 100 23. desember
Tóku gildi 1. janúar 1953. Breytt með l. 49/1982 (tóku gildi 1. júlí 1982), l. 62/1998 (tóku gildi 1. okt. 1998 nema ákvæði til bráðabirgða sem tók gildi 18. júní 1998), l. 82/1998 (tóku gildi 1. okt. 1998), l. 96/2002 (tóku gildi 1. jan. 2003), l. 9/2003 (tóku gildi 1. júlí 2003), l. 81/2007 (tóku gildi 17. apríl 2007 nema 3. tölul. c-liðar 5. gr. sem tók gildi 1. jan. 2009) og l. 26/2009 (tóku gildi 1. apríl 2009).
[I. kafli. Ríkisborgararéttur við fæðingu o.fl.]1)
1)L. 81/2007, 1. gr.
1. gr. [Barn öðlast íslenskt ríkisfang við fæðingu:
1. ef móðir þess er íslenskur ríkisborgari,
2. ef faðir þess er íslenskur ríkisborgari og kvæntur móðurinni. Þetta gildir þó ekki ef hjónin voru skilin að borði og sæng á getnaðartíma barnsins.
Barn, sem fundist hefur hér á landi, telst, þar til annað reynist sannara, vera íslenskur ríkisborgari.] 1)
1)L. 62/1998, 1. gr.
2. gr. [Eignist ógift kona, sem er erlendur ríkisborgari, barn hér á landi öðlast það íslenskan ríkisborgararétt ef karlmaður, sem er íslenskur ríkisborgari, er faðir þess samkvæmt barnalögum.
Eignist ógift kona, sem er erlendur ríkisborgari, barn erlendis með karlmanni sem er íslenskur ríkisborgari getur faðirinn, áður en barnið nær 18 ára aldri, óskað þess við dómsmálaráðuneytið að það öðlist íslenskan ríkisborgararétt, og skal hann hafa samráð við barnið hafi það náð 12 ára aldri. Leggi hann fram fullnægjandi gögn, að mati ráðuneytisins, um barnið og faðerni þess öðlast barnið íslenskan ríkisborgararétt við staðfestingu ráðuneytisins.] 1)
[Gangi foreldrar barnsins í hjúskap öðlast barnið íslenskan ríkisborgararétt við hjúskapinn ef það hefur eigi gengið í hjúskap og er eigi fullra 18 ára.] 2)
1)L. 62/1998, 2. gr. 2)L. 81/2007, 2. gr.
[2. gr. a. [Erlent barn, sem ættleitt er af íslenskum ríkisborgara, með leyfi íslenskra stjórnvalda, öðlast íslenskt ríkisfang við ættleiðinguna ef það er yngra en 12 ára.
Erlent barn, yngra en 12 ára, sem ættleitt er af íslenskum ríkisborgara með erlendri ákvörðun, sem íslensk stjórnvöld viðurkenna, öðlast íslenskt ríkisfang við staðfestingu dómsmálaráðuneytisins að ósk ættleiðanda.] 1)] 2)
1)L. 62/1998, 3. gr. 2)L. 49/1982, 2. gr.
3. gr. [Útlendingur sem hefur átt hér lögheimili og haft hér samfellda dvöl frá því að hann náði 11 ára aldri, eða frá 13 ára aldri sé hann ríkisfangslaus, öðlast íslenskan ríkisborgararétt með því að tilkynna dómsmálaráðuneytinu skriflega þá ósk sína eftir að hann hefur náð 18 ára aldri en áður en hann hefur náð 20 ára aldri.] 1)
1)L. 9/2003, 1. gr.
4. gr. Nú hefur einhver, sem öðlast hefur íslenskt ríkisfang við fæðingu og átt hefur hér lögheimili til fullnaðs 18 ára aldurs, misst íslensks ríkisfangs síns, og fær hann þá ríkisfangið að nýju, hafi hann átt hér lögheimili síðustu 2 árin, með því að tilkynna dómsmálaráðuneytinu skriflega þá ósk sína. … 1)
1)L. 62/1998, 4. gr.
5. gr. [Fái einhver ríkisfang skv. 3. og 4. gr. öðlast jafnframt ógift börn hans undir 18 ára aldri ríkisfangið, hafi hann forsjá þeirra og þau eigi lögheimili hér á landi.] 1)
1)L. 62/1998, 5. gr.
[5. gr. a. … 1)] 2)
1)L. 81/2007, 3. gr. 2)L. 62/1998, 6. gr.
[II. kafli. Veiting ríkisborgararéttar með lögum.]1)
1)L. 81/2007, 4. gr.
6. gr. [Alþingi veitir ríkisborgararétt með lögum.
Áður en umsókn um ríkisborgararétt er lögð fyrir Alþingi skal dómsmálaráðuneytið fá um hana umsögn lögreglustjóra á dvalarstað umsækjanda og [Útlendingastofnunar]. 1)
Eigi sá börn sem ríkisborgararétt fær með lögum fer um þau eftir ákvæðum 5. gr., nema lögin láti öðruvísi um mælt.] 2)
1)L. 96/2002, 59. gr. 2)L. 62/1998, 7. gr.
[III. kafli. Veiting ríkisborgararéttar með stjórnvaldsákvörðun.]1)
1)L. 81/2007, 5. gr.
[7. gr. Þrátt fyrir ákvæði 6. gr. er dómsmálaráðherra heimilt, að fenginni umsögn lögreglu og Útlendingastofnunar, að veita íslenskan ríkisborgararétt samkvæmt umsókn sem borin er fram af umsækjanda sjálfum eða forsjármönnum hans hafi hann ekki náð 18 ára aldri, enda fullnægi hann skilyrðum 8. og 9. gr.
Heimild dómsmálaráðherra samkvæmt ákvæðum þessa kafla er bundin við þau mál þar sem vafalaust er að umsækjandi uppfylli lögmælt skilyrði. Er dómsmálaráðherra þó ávallt heimilt að vísa umsókn um ríkisborgararétt til ákvörðunar Alþingis sem eftir atvikum veitir umsækjanda ríkisborgararétt með lögum.
Ákvarðanir skv. 2. mgr. eru undanþegnar III.–V. kafla stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, og upplýsingalögum, nr. 50/1996.] 1)
1)L. 81/2007, 5. gr.
[8. gr. Um veitingu íslensks ríkisborgararéttar skv. 1. mgr. 7. gr. gilda eftirtalin búsetuskilyrði:
1. Umsækjandi hafi verið hér búsettur í sjö ár; ríkisborgari í einhverju Norðurlandanna þó einungis í fjögur ár.
2. Umsækjandi, sem er í hjúskap eða staðfestri samvist með íslenskum ríkisborgara, hafi verið hér búsettur í þrjú ár frá giftingu eða stofnun staðfestrar samvistar, enda hafi hinn íslenski maki haft íslenskan ríkisborgararétt ekki skemur en fimm ár.
3. Umsækjandi, sem býr í skráðri sambúð með íslenskum ríkisborgara og bæði eru ógift, hafi verið hér búsettur í fimm ár frá skráningu sambúðarinnar, enda hafi hinn íslenski ríkisborgari haft ríkisborgararétt ekki skemur en fimm ár.
4. Umsækjandi, sem á íslenskan ríkisborgara að öðru foreldri, hafi verið hér búsettur í tvö ár, enda hafi hið íslenska foreldri haft ríkisborgararétt ekki skemur en fimm ár.
5. Umsækjandi, sem verið hefur íslenskur ríkisborgari en hefur gerst erlendur ríkisborgari, hafi verið hér búsettur í eitt ár.
6. Flóttamaður, sem fullnægir skilgreiningu í alþjóðasamningi um stöðu flóttamanna sem gerður var 28. júlí 1951, hafi verið hér búsettur sem slíkur í fimm ár. Sama gildir um mann sem fengið hefur dvalarleyfi hér á landi af mannúðarástæðum.
Skilyrði 1. mgr. miðast við fasta búsetu og lögheimili og samfellda, löglega dvöl hér á landi síðustu ár áður en umsókn er lögð fram. Heimilt er að víkja frá því skilyrði þótt dvöl umsækjanda hér hafi verið rofin allt að einu ári vegna tímabundinnar atvinnu eða af óviðráðanlegum ástæðum, svo sem vegna veikinda nákomins ættingja, en þó allt að þremur árum vegna náms erlendis. Sá tími, sem umsækjandi hefur átt hér lögheimili og dvöl, verður þó að vera að minnsta kosti jafnlangur þeim tíma sem hann verður samkvæmt áðurgreindum reglum að uppfylla.
Umsækjandi skal uppfylla skilyrði þess að fá búsetuleyfi útgefið af Útlendingastofnun. Umsækjandi skal jafnframt hafa slíkt leyfi þegar sótt er um íslenskan ríkisborgararétt nema hann sé undanþeginn skyldu til að hafa dvalarleyfi hér á landi.] 1)
1)L. 81/2007, 5. gr.
[9. gr. Um veitingu íslensks ríkisborgararéttar skv. 1. mgr. 7. gr. gilda að öðru leyti eftirtalin skilyrði:
1. Umsækjandi hafi sannað með fullnægjandi hætti hver hann sé.
2. Umsækjandi sé starfhæfur og vel kynntur og leggi m.a. því til staðfestingar fram álit tveggja valinkunnra íslenskra ríkisborgara.
3. Umsækjandi hafi staðist próf í íslensku samkvæmt kröfum sem dómsmálaráðherra setur í reglugerð. 1) Í reglugerð skal jafnframt mælt fyrir um undanþágur frá þessu skilyrði fyrir þá sem telja verður ósanngjarnt að gera þessa kröfu til. [Ráðherra getur falið Námsmatsstofnun eða öðrum sambærilegum aðila að annast undirbúning og framkvæmd prófa og greiðist kostnaður vegna þessa með gjaldi sem ráðherra ákveður.] 2)
4. Árangurslaust fjárnám hafi ekki verið gert hjá umsækjanda sl. þrjú ár, bú hans tekið til gjaldþrotaskipta eða hann í vanskilum með skattgreiðslur.
5. Umsækjandi geti framfleytt sér hérlendis og hafi ekki þegið framfærslustyrk frá sveitarfélagi sl. þrjú ár. Er umsækjanda skylt að sýna fram á að hann hafi framfært sig með löglegum hætti hér á landi og er dómsmálaráðuneytinu heimilt að afla skattframtala og gagna frá skattyfirvöldum því til staðfestingar.
6. Umsækjandi hafi ekki, hérlendis eða erlendis, sætt sektum eða fangelsisrefsingu eða eigi ólokið máli í refsivörslukerfinu þar sem hann er grunaður eða sakaður um refsiverða háttsemi samkvæmt íslenskum lögum. Frá þessu má þó víkja að liðnum fresti sem hér greinir, enda sé ekki um að ræða endurtekin brot:
a. Veita má íslenskan ríkisborgararétt að liðnu einu ári frá því að brot var framið sem sætti sekt lægri en 50.000 kr.
b. Veita má íslenskan ríkisborgararétt að liðnum þremur árum frá því að brot var framið sem sætti sekt að fjárhæð 50.000 kr. eða hærri.
c. Veita má íslenskan ríkisborgararétt að liðnum sex árum frá því að fangelsisrefsing í allt að 60 daga var afplánuð.
d. Veita má íslenskan ríkisborgararétt að liðnum átta árum frá því að fangelsisrefsing í allt að sex mánuði var afplánuð.
e. Veita má íslenskan ríkisborgararétt að liðnum tíu árum frá því að fangelsisrefsing í allt að eitt ár var afplánuð.
f. Veita má íslenskan ríkisborgararétt að liðnum 14 árum frá því að lengri fangelsisrefsing en eitt ár var afplánuð. Hið sama gildir um öryggisgæslu.
Þegar talið er að refsing sé úttekin með gæsluvarðhaldi, eða hún skilorðsbundin að öllu leyti, reiknast tíminn samkvæmt þessum tölulið frá því að viðkomandi var látinn laus úr gæsluvarðhaldi eða skilorðsdómur kveðinn upp. Veita má íslenskan ríkisborgararétt að liðnum þremur árum frá því að ákvörðun um skilorðsbundna ákærufrestun var tilkynnt.
Nú hefur ákvörðun um refsingu verið frestað skilorðsbundið og skal þá eftir atvikum miðað við skilyrði þau sem greinir í c–f-liðum þessa töluliðar.] 3)
1)Rg. 1129/2008. 2)L. 26/2009, 1. gr. 3)L. 81/2007, 5. gr.
[10. gr. Dómsmálaráðherra er einnig heimilt að veita íslenskan ríkisborgararétt barni sem fætt er hér á landi og hefur sannanlega ekki öðlast annan ríkisborgararétt við fæðingu og hefur ekki öðlast hann né átt rétt til að öðlast hann þegar umsókn um ríkisborgararétt er borin fram. Barnið skal hafa átt lögheimili og samfellda dvöl hér á landi frá fæðingu í að minnsta kosti þrjú ár.
Um börn þeirra sem fá ríkisborgararétt samkvæmt þessum kafla gilda ákvæði 5. gr., nema öðruvísi sé ákveðið.] 1)
1)L. 81/2007, 5. gr.
[11. gr. Sektir eða fangelsi allt að einu ári liggur við því að veita íslenskum yfirvöldum rangar upplýsingar við umsókn um ríkisborgararétt.] 1)
1)L. 81/2007, 5. gr.
[IV. kafli. Önnur ákvæði.]1)
1)L. 81/2007, 6. gr.
[12. gr.]1) Íslenskur ríkisborgari, sem fæddur er erlendis og aldrei hefur átt lögheimili hér á landi né hefur dvalist hér í einhverju skyni, er af megi ráða að hann vilji íslenskur ríkisborgari vera, missir íslensks ríkisfangs þá er hann verður 22 ára. Þó getur [dómsmálaráðherra] 2) leyft, að hann haldi ríkisfangi sínu, ef um það er sótt innan þess tíma. [Hann missir þó ekki íslensks ríkisfangs verði hann við það ríkisfangslaus.] 3)
[Nú missir einhver íslensks ríkisfangs samkvæmt þessari grein og missa þá einnig börn hans íslensks ríkisfangs, sem þau hafa öðlast á grundvelli ríkisfangs hans, nema þau við það verði ríkisfangslaus.] 4)
[Dómsmálaráðherra úrskurðar hvort fullnægt er skilyrði 1. mgr. um dvöl hér á landi til að halda ríkisfanginu, leiki á því vafi.] 2)
1)L. 81/2007, 5. gr. 2)L. 9/2003, 3. gr. 3)L. 62/1998, 9. gr. 4)L. 49/1982, 6. gr.
[13. gr.]1) [Dómsmálaráðherra getur leyst þann sem búsettur er erlendis og er orðinn eða óskar að verða erlendur ríkisborgari undan íslensku ríkisfangi, enda sanni aðili að hann verði innan ákveðins tíma erlendur ríkisborgari, ef hann er ekki þá þegar orðinn það. Eigi hann lögheimili hér á landi verður hann eigi leystur frá íslensku ríkisfangi nema sérstakar ástæður séu til að mati dómsmálaráðherra.
Eigi verður þeim neitað um að verða leystur undan ríkisfangi sem er erlendur ríkisborgari og á lögheimili erlendis.] 2)
1)L. 81/2007, 5. gr. 2)L. 9/2003, 4. gr.
…
1)L. 81/2007, 5. gr.
[[14. gr.]1) Ákveða má, með samningi 2) við Danmörku, Finnland, Noreg og Svíþjóð, að eitt eða fleiri ákvæðanna í A–C hér á eftir, skuli fá gildi. Orðin norrænt samningsríki í greininni eiga við það eða þau ríki, sem gerður er við slíkur samningur.
A. Þegar beitt er 3. gr. skal meta lögheimili í norrænu samningsríki til 16 ára aldurs til jafns við lögheimili hér á landi. Þó skal sá, sem hlut á að máli, hafa átt lögheimili hér á landi síðustu 5 árin, þegar yfirlýsing er gefin.
Þegar beitt er 4. gr. skal meta lögheimili í norrænu samningsríki til 12 ára aldurs til jafns við lögheimili hér á landi.
Þegar beitt er [12. gr.] 3) skal meta lögheimili í norrænu samningsríki í minnst 7 ár til jafns við lögheimili hér á landi.
B. Ríkisborgari í norrænu samningsríki, sem
1. hefur öðlast ríkisborgararétt þar með öðrum hætti en með lögum eða samsvarandi hætti,
2. hefur náð 18 ára aldri,
3. hefur átt lögheimili hér á landi síðustu 7 árin, og
4. hefur ekki á því tímabili verið dæmdur [í fangelsi] 4) eða til að sæta öryggisgæslu eða hælisvist samkvæmt ákvæðum almennra hegningarlaga, öðlast íslenskt ríkisfang með því að tilkynna dómsmálaráðherra skriflega þá ósk sína. Ákvæði 5. gr. eiga hér við.
C. Sá sem misst hefur íslensks ríkisfangs, og hefur síðan óslitið verið ríkisborgari í norrænu samningsríki, öðlast ríkisfang að nýju með því að tilkynna dómsmálaráðuneytinu skriflega þá ósk sína, enda hafi hann þá fengið lögheimili hér á landi. Ákvæði 5. gr. eiga hér við.] 5)
1)L. 81/2007, 5. gr. 2) Augl. B 468/2000. 3)L. 81/2007, 7. gr. 4)L. 82/1998, 151. gr. 5)L. 49/1982, 9. gr.
[15. gr.]1) Dómsmálaráðherra sker úr ágreiningi um það, hvort maður hafi öðlast íslenskan ríkisborgararétt við setningu laga þessara eða fullnægi skilyrðum til að öðlast íslenskan ríkisborgararétt með því að lýsa ósk sinni þar um. Skjóta má úrskurði um þetta efni undir úrlausn dómstóla.
Dómsmálaráðherra getur sett nánari reglur um framkvæmd laga þessara.
[Yfirlýsingu skv. 3. gr., 4. gr. og B- og C-lið [14. gr.] 2) um að maður óski að verða íslenskur ríkisborgari getur aðeins sá aðili sjálfur gefið en ekki forsjármaður.] 3)
Þar sem eigi er annað ákveðið aldursmark í lögum þessum, skal þeim, sem náð hefur 18 ára aldri, heimilt að gefa yfirlýsingu um ríkisborgararétt samkvæmt lögum þessum, án tillits til þess, að hann er háður [forsjá] 4) annars manns.
1)L. 81/2007, 5. gr. 2)L. 81/2007, 7. gr. 3)L. 9/2003, 6. gr. 4)L. 62/1998, 10. gr.
[16. gr.]1) [Barn sem er fætt eftir 1. júlí 1964 en fyrir 1. júlí 1982 og hefði öðlast íslenskan ríkisborgararétt ef ákvæði 1. tölul. 1. mgr. 1. gr. laga þessara, sbr. lög nr. 49/1982, hefði verið í gildi er það fæddist öðlast íslenskt ríkisfang með því að tilkynna dómsmálaráðuneyti skriflega þá ósk sína, enda hafi móðir þess verið íslenskur ríkisborgari við fæðingu þess og til 1. júlí 1982.
Sá sem óskar að öðlast íslenskt ríkisfang skv. 1. mgr. skal fullnægja ákvæði [12. gr.] 2) um lögheimili eða dvöl hér á landi fyrir 22 ára aldur.] 3)
1)L. 81/2007, 5. gr. 2)L. 81/2007, 7. gr. 3)L. 9/2003, 7. gr.
[Ákvæði til bráðabirgða. Barn sem fætt er eftir 1. júlí 1964 en fyrir 1. júlí 1982 og hefði öðlast íslenskt ríkisfang ef ákvæði 1. tölul. 1. mgr. 1. gr. laga um íslenskan ríkisborgararétt, sbr. lög nr. 49/1982, hefðu verið í gildi við fæðingu þess fær íslenskt ríkisfang er móðir þess gefur um það skriflega yfirlýsingu til dómsmálaráðuneytisins, enda hafi hún forsjá barnsins, sé íslenskur ríkisborgari og barnið innan 18 ára aldurs. Barn þarf að lýsa samþykki sínu svo að yfirlýsing sé gild.
Hafi barnið náð 18 ára aldri getur það gefið yfirlýsingu um að það óski eftir að framangreint ákvæði taki til sín, enda hafi móðir þess haft íslenskt ríkisfang frá fæðingu þess til 1. júlí 1982 og barnið fullnægir skilyrðum [12. gr.] 1) til að vera íslenskur ríkisborgari.
[Sá sem misst hefur íslensks ríkisfangs samkvæmt upphaflegum ákvæðum 7. gr. laga nr. 100/1952 en hefði haldið því ef greinin hefði verið fallin úr gildi á þeim tíma er hann missti íslenska ríkisfangið öðlast það að nýju með því að tilkynna dómsmálaráðherra skriflega þá ósk sína fyrir 1. júlí 2007 enda fylgi henni fullnægjandi gögn að mati ráðuneytisins.
Sé viðkomandi háður forsjá annarra annast forsjáraðili tilkynninguna.
Eigi sá sem öðlast íslenskt ríkisfang samkvæmt þessu ákvæði ógift börn undir 18 ára aldri sem hann hefur forsjá fyrir öðlast þau einnig ríkisfangið. Sé barnið orðið 12 ára og hafi erlent ríkisfang skal barnið veita samþykki sitt til að fá íslenskan ríkisborgararétt. Samþykkis skal þó ekki krafist sé barnið ófært um að veita það sökum andlegrar fötlunar eða annars sambærilegs ástands.] 2)] 3)
1)L. 81/2007, 7. gr. 2)L. 9/2003, brbákv. 3)L. 62/1998, 11. gr.