Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. febrúar 2011. Útgáfa 139a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um Stjórnarráð Íslands
1969 nr. 73 28. maí
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 1. janúar 1970. Breytt með l. 12/1986 (tóku gildi 1. jan. 1987), l. 3/1990 (tóku gildi 23. febr. 1990), l. 14/1991 (tóku gildi 4. apríl 1991), l. 83/1997 (tóku gildi 6. júní 1997), l. 121/1999 (tóku gildi 30. des. 1999), l. 109/2007 (tóku gildi 28. júní 2007 nema a–e-liður 1. gr. og 2. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2008), l. 167/2007 (tóku gildi 1. jan. 2008), l. 98/2009 (tóku gildi 1. okt. 2009 nema 69. og 70. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2010), l. 86/2010 (tóku gildi 2. júlí 2010) og l. 121/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011).
I. kafli.
1. gr. Forseti lýðveldisins skipar ráðherra, ákveður tölu þeirra og skiptir störfum með þeim.
Ráðherrar fara með stjórnarmálefni í Stjórnarráði Íslands, sem hefur aðsetur í Reykjavík.
2. gr. Ráðherrafundi skal halda um nýmæli í lögum og um mikilvæg stjórnarmálefni. Svo skal og ráðherrafund halda, ef einhver ráðherra óskar að bera þar upp mál.
Málefni, sem bera á upp fyrir forseta lýðveldisins til staðfestingar, skulu áður tekin til meðferðar á ráðherrafundi.
Forsætisráðherra stjórnar ráðherrafundum.
3. gr. [Forsætisráðherra felur starfsmanni forsætisráðuneytis að gegna störfum ritara ráðherrafunda.] 1)
Ritari skráir fundargerð ráðherrafundar í gerðabók, er ráðherrar hafa staðfest fundargerðina.
1)L. 83/1997, 1. gr.
4. gr. Stjórnarráð Íslands greinist í ráðuneyti, og skulu þau vera þessi: Forsætisráðuneyti, [… 1) efnahags- og viðskiptaráðuneyti], 2) … 1) fjármálaráðuneyti, [innanríkisráðuneyti], 1) … 3) … 1) iðnaðarráðuneyti, … 3) [mennta- og menningarmálaráðuneyti], 2) … 1) [sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti], 3) [umhverfisráðuneyti], 4) [utanríkisráðuneyti og velferðarráðuneyti]. 1)
Ráðuneyti má eigi á stofn setja né af leggja nema með lögum. [Þó er heimilt að sameina ráðuneyti með úrskurði forseta Íslands.] 3)
1)L. 121/2010, 1. gr. 2)L. 98/2009, 1. gr. 3)L. 109/2007, 1. gr. 4)L. 3/1990, 1. gr.
5. gr. Þegar skipt er störfum með ráðherrum, skal hvert ráðuneyti óskipt lagt til eins og sama ráðherra.
6. gr. … 1)
1)L. 14/1991, 1. gr.
7. gr. [Ráðherra kveður á 1) um skiptingu ráðuneytis í skrifstofur og starfsdeildir eftir verkefnum.] 2)
1) Augl. 181/2007 (um skipulag menntamálaráðuneytisins). Augl. 811/2009 (um skipulag fjármálaráðuneytisins). 2)L. 83/1997, 2. gr.
8. gr. Stjórnarmálefni ber undir ráðuneyti eftir ákvæðum reglugerðar, 1) er forseti Íslands setur samkvæmt tillögum forsætisráðherra, enda sé þess jafnan gætt, að ráðuneyti lúti málefni, sem eðli sínu samkvæmt eiga þar heima, sbr. 4. gr.
Nú þykir vafi á leika, undir hvert ráðuneyti málefni heyri, og sker forsætisráðherra þá úr.
1) Rg. A 177/2007, sbr. rg. A 101/2009.
9. gr. Ráðuneyti hefur eftirlit með starfrækslu stofnana, sem undir það ber, og eignum á vegum þeirra stofnana.
[Ráðherra kveður á um aðsetur stofnunar sem undir hann heyrir, nema á annan veg sé mælt í lögum.] 1)
1)L. 121/1999, 1. gr.
II. kafli.
10. gr. Ráðuneytisstjórar … 1) stýra ráðuneytum undir yfirstjórn ráðherra.
… 2)
Ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytis skal jafnframt því embætti sínu gegna störfum ritara ríkisráðs Íslands.
Heimilt er forsætisráðherra að kveða á um, að ráðuneytisstjóri veiti fleiri en einu ráðuneyti forstöðu og að fleiri en eitt ráðuneyti hafi, eftir því sem við verður komið, sameiginlegt starfslið og húsnæði.
Slíka skipan sem í 5. mgr. 3) greinir getur forsætisráðherra afnumið, er nauðsyn krefur, og þá jafnframt ákveðið, hverju þeirra ráðuneyta, sem um er að tefla, ráðuneytisstjóri skuli áfram stýra.
1)L. 109/2007, 2. gr. 2)L. 14/1991, 2. gr. 3)Hér er vísað til 3. mgr.
11. gr. [Skrifstofu ráðuneytis stýrir skrifstofustjóri og starfsdeild deildarstjóri undir umsjón ráðuneytisstjóra.] 1)
… 1)
[Nú er starfsmaður ráðuneytis ráðinn deildarstjóri og þarf þá eigi að auglýsa stöðuna sem hann er fluttur í.] 1) [Sama á við ef starfsmanni, sem ráðinn er ótímabundið, sbr. 1. mgr. 41. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, er boðið annað starf innan Stjórnarráðsins. Í reglum, sem forsætisráðherra setur, skal mæla fyrir um tilhögun auglýsinga innan Stjórnarráðsins um laus störf og önnur atriði er varða framkvæmd þessa ákvæðis.] 2)
Ráðherra setur deildarstjórum og skrifstofustjórum erindisbréf, þar sem meðal annars skal kveðið á um starfssvið þeirra og starfsskyldur.
1)L. 83/1997, 3. gr. 2)L. 109/2007, 3. gr.
12. gr. Auk ráðuneytisstjóra, skrifstofustjóra og deildarstjóra eru starfsmenn ráðuneyta fulltrúar, bókarar og ritarar eftir ákvörðun ráðherra. [Heimilt er þó ráðherra að ráða starfsmenn í ráðuneyti undir öðrum starfsheitum.] 1)
1)L. 83/1997, 4. gr.
13. gr. [Ráðherra skipar ráðuneytisstjóra og skrifstofustjóra til fimm ára í senn.
Aðrir starfsmenn ráðuneytis eru ráðnir.] 1)
1)L. 83/1997, 5. gr.
[14. gr. Nú flytjast stjórnarmálefni milli ráðuneyta, sbr. 8. gr., og skal þá bjóða hlutaðeigandi starfsmönnum að sinna þeim áfram í því ráðuneyti er tekur við málefninu. Við flutninginn verða ekki breytingar á starfskjörum starfsmanna. Ákvæði 7. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, eiga ekki við um ráðstöfun starfa samkvæmt þessari grein.
[Nú flytjast stjórnarmálefni milli ráðuneyta, sbr. 8. gr., og skal þá ljúka meðferð ólokinna stjórnsýslumála í því ráðuneyti sem við málefni tekur.] 1)] 2)
1)L. 167/2007, 92. gr. 2)L. 109/2007, 4. gr.
[15. gr.]1) Ráðherra er heimilt að kveðja sér til aðstoðar, meðan hann gegnir embætti, mann utan ráðuneytis, sem starfi þar sem [skrifstofustjóri], 2) enda hverfi hann úr starfi jafnskjótt sem ráðherra, en njóti þá launa þrjá mánuði, hafi hann ekki áður verið ríkisstarfsmaður, en ella eigi hann rétt á að hverfa til fyrra starfs síns eða annars starfs eigi lakara að föstum launum í þjónustu ríkisins.
1)L. 109/2007, 4. gr. 2)L. 83/1997, 6. gr.
[III. kafli.]1)
1)L. 86/2010, 1. gr.
[16. gr. Forsætisráðherra staðfestir siðareglur fyrir starfsmenn Stjórnarráðs Íslands. Við undirbúning reglnanna skal hafa samráð við starfsmenn sem í hlut eiga. Einstökum ráðuneytum er heimilt að útfæra siðareglurnar nánar með hliðsjón af sérstökum verkefnum sem þau sinna. Heimilt er forsætisráðherra að setja sérstakar siðareglur fyrir aðstoðarmenn ráðherra.
Forsætisráðherra staðfestir siðareglur fyrir ráðherra ríkisstjórnar sinnar í kjölfar samráðs á ráðherrafundi.
Siðareglur skal birta almenningi á aðgengilegan hátt.] 1)
1)L. 86/2010, 1. gr.
[17. gr. Forsætisráðherra skipar til þriggja ára í senn samhæfingarnefnd um siðferðileg viðmið fyrir stjórnsýsluna. Í nefndinni eiga sæti formaður, skipaður án tilnefningar, einn samkvæmt tilnefningu Félags forstöðumanna ríkisstofnana, fulltrúi fjármálaráðherra, tveir fulltrúar samtaka ríkisstarfsmanna og tveir aðrir valdir á grundvelli sérþekkingar sinnar á stjórnsýslu og siðfræðilegum efnum.
Forsætisráðuneytið sér nefndinni fyrir starfsaðstöðu.
Helstu verkefni samhæfingarnefndarinnar eru:
a. að stuðla að því að siðferðileg viðmið séu í hávegum höfð í opinberum störfum og veita fjármálaráðuneytinu, sem fer með starfsmannamál ríkisins, og öðrum stjórnvöldum ráðleggingar um ráðstafanir til að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra og spillingu,
b. að veita umsögn um drög að siðareglum á grundvelli laga þessara og laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins,
c. að beita sér fyrir upplýsingaöflun og fræðirannsóknum á málefnasviði nefndarinnar,
d. að stuðla að því að brugðist sé með samhæfðum hætti við ábendingum eftirlitsembætta Alþingis og öðrum tiltækum upplýsingum um brot á siðareglum eða hættu á spillingu hjá ríkinu,
e. að taka þátt í samstarfi við félagasamtök, stofnanir og embætti hér á landi og erlendis sem vinna gegn spillingu í opinbera geiranum,
f. að gefa forsætisráðherra árlega skýrslu um starf sitt þar sem komi fram ef ástæða þykir til tillögur til fjármálaráðuneytis og annarra stjórnvalda um frekari aðgerðir til að efla traust á stjórnsýslu ríkisins, draga úr hættu á spillingu og vanda betur til verka í stjórnsýslunni. Skýrslan skal lögð fyrir Alþingi.
Til þess að tryggja samræmi við störf umboðsmanns Alþingis og Ríkisendurskoðunar skal samhæfingarnefndin hafa reglulegt samráð við þau embætti.] 1)
1)L. 86/2010, 1. gr.
[18. gr.]1) Með úrskurði forseta Íslands má samkvæmt tillögum forsætisráðherra setja nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara.
1)L. 86/2010, 1. gr.
[Ákvæði til bráðabirgða. …] 1)
1)L. 3/1990, brbákv.