Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. september 2017. Útgáfa 146b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um norrænt fjármögnunarfélag á sviði umhverfisverndar
1990 nr. 102 12. desember
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 19. desember 1990. Breytt með l. 129/2004 (tóku gildi 31. des. 2005).
1. gr. Stofna skal norrænt fjármögnunarfélag samkvæmt samningi milli Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar um stofnun norræns fjármögnunarfélags á sviði umhverfismála sem undirritaður var í Reykjavík 2. mars 1990.
2. gr. Félagið skal undanþegið ákvæðum laga nr. 63/1979, um skipan gjaldeyris- og viðskiptamála, 1) svo og annarra laga er setja kunna hömlur á greiðslur í erlendum gjaldeyri eða gjaldeyrisviðskipti, að svo miklu leyti sem slík ákvæði hindra eða torvelda starfsemi félagsins eða efndir skuldbindinga þess.
1)Nú l. 87/1992.
3. gr. Félagið skal undanþegið aðstöðugjaldi, landsútsvari [og tekjuskatti], 1) svo og öðrum gjöldum sem lögð kunna að vera á tekjur, eignir eða veltu til ríkis eða sveitarfélaga.
1)L. 129/2004, 82. gr.
4. gr. Lánssamningar, sem félagið er aðili að, skulu vera undanþegnir stimpilgjöldum og öðrum gjöldum hins opinbera.
5. gr. Lög þessi öðlast gildi þegar í stað.