Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. nóvember 2017. Útgáfa 147. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um Vísinda- og tækniráð
2003 nr. 2 3. febrúar
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 7. febrúar 2003. Breytt með l. 59/2007 (tóku gildi 4. apríl 2007), l. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011), l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011) og l. 157/2012 (tóku gildi 3. jan. 2013).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við mennta- og menningarmálaráðherra eða mennta- og menningarmálaráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
1. gr. Markmið laga þessara er að efla vísindarannsóknir, vísindamenntun og tækniþróun í landinu í því skyni að treysta stoðir íslenskrar menningar og auka samkeppnishæfni atvinnulífsins.
2. gr. Stefna stjórnvalda í vísinda- og tæknimálum skal mörkuð af Vísinda- og tækniráði til þriggja ára í senn. Umfjöllun þess á hvoru sviði um sig skal undirbúin af vísindanefnd og tækninefnd.
3. gr. [[Ráðherra] 1) skipar 16 menn í Vísinda- og tækniráð til þriggja ára í senn og jafnmarga til vara. Tveir skulu skipaðir án tilnefningar en 14 samkvæmt tilnefningum eftirtalinna aðila:] 2)
a. fjóra samkvæmt tilnefningu samstarfsnefndar háskólastigsins,
b. tvo samkvæmt tilnefningu Alþýðusambands Íslands,
c. tvo samkvæmt tilnefningu Samtaka atvinnulífsins,
d. [tvo samkvæmt tilnefningu þess ráðherra er fer með málefni vísinda], 3)
e. [tvo samkvæmt tilnefningu þess ráðherra er fer með málefni atvinnuvega, atvinnuþróunar og nýsköpunar], 3)
[f. ] 3) einn samkvæmt tilnefningu [þess ráðherra er fer með heilbrigðismál], 1)
[g. ] 3) einn samkvæmt tilnefningu [þess ráðherra er fer með umhverfisrannsóknir]. 1)
[Auk framangreindra skulu ráðherra, sem jafnframt er formaður ráðsins, ráðherra er fer með fjárreiður ríkisins, ráðherra er fer með málefni vísinda og ráðherra er fer með málefni atvinnuþróunar og nýsköpunar eiga fast sæti í ráðinu. Enn fremur er ráðherra heimilt að kveðja allt að fjóra ráðherra til setu í ráðinu.] 1)
1)L. 126/2011, 357. gr. 2)L. 59/2007, 1. gr. 3)L. 157/2012, 15. gr.
4. gr. Úr hópi þeirra sem skipaðir eru skv. 1. mgr. 3. gr. tilnefnir Vísinda- og tækniráð fulltrúa í vísindanefnd og jafnmarga til vara, sem [sá ráðherra er fer með málefni vísinda] 1) skipar. [Skipar hann] 1) jafnframt formann og varaformann úr hópi nefndarmanna.
[Sá ráðherra er fer með málefni atvinnuþróunar og nýsköpunar] 1) skipar tækninefnd með sama hætti.
Nefndirnar skulu hafa með sér samráð um þau atriði sem máli skipta fyrir stefnumótun Vísinda- og tækniráðs.
1)L. 126/2011, 357. gr.
5. gr. [Með reglugerð geta hlutaðeigandi ráðherrar mælt nánar fyrir um starfsemi Vísinda- og tækniráðs, starfsemi vísindanefndar og starfsemi tækninefndar.] 1)
1)L. 126/2011, 357. gr.
6. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.