Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. janúar 2018. Útgáfa 148a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um innflutning
1992 nr. 88 17. nóvember
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 23. nóvember 1992. Breytt með l. 87/1995 (tóku gildi 1. júlí 1995), l. 88/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009 nema brbákv. VII sem tók gildi 21. júní 2008), l. 98/2009 (tóku gildi 1. okt. 2009 nema 69. og 70. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2010) og l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra eða atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
1. gr.
Innflutningur á vöru og þjónustu til landsins skal vera óheftur nema annað sé sérstaklega tekið fram í lögum eða milliríkjasamningum sem Ísland er aðili að.
Séu í gildi innflutningstakmarkanir á einstöku sviði skal þó heimilt að flytja til landsins vörur sem ætlaðar eru fyrir sendiráð erlendra ríkja og aðra sem samkvæmt lögum, milliríkjasamningum eða venju njóta hér tollfrelsis. Ákvæði þetta á þó ekki við um vörur sem hætta telst á að smitefni geti borist með til landsins.
2. gr. … 1)
1)L. 87/1995, 29. gr.
3. gr.
Óheimilt er að tollafgreiða vöru eða hafa milligöngu um greiðslu til útlanda fyrir vöru eða þjónustu sem háð er innflutningstakmörkunum nema undanþága hafi fengist fyrir innflutningnum.
4. gr.
Brot á lögum þessum varða sektum. Sé brot framið í þágu lögaðila er heimilt að beita stjórnendur lögaðilans framangreindum viðurlögum og einnig er heimilt að gera lögaðilanum sekt eða sviptingu starfsréttinda.
Tilraun og hlutdeild í brotum á lögum þessum eru refsiverðar eftir því sem segir í III. kafla almennra hegningarlaga.
… 1)
1)L. 88/2008, 233. gr.
5. gr.
[Ráðherra] 1) fer með framkvæmd laga þessara. Hann getur með reglugerð sett nánari ákvæði um framkvæmd þeirra.
1)L. 126/2011, 170. gr.
6. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Ákvæði til bráðabirgða. … 1)
1)L. 87/1995, 29. gr.