Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. janúar 2018. Útgáfa 148a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um mat á umhverfisáhrifum
2000 nr. 106 25. maí
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 6. júní 2000. EES-samningurinn: XX. viðauki tilskipun 85/337/EBE. Breytt með l. 74/2005 (tóku gildi 1. okt. 2005), l. 166/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009), l. 72/2010 (tóku gildi 25. júní 2010), l. 123/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011), l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011), l. 131/2011 (tóku gildi 1. jan. 2012), l. 60/2013 (tóku gildi 15. nóv. 2015), l. 49/2014 (tóku gildi 29. maí 2014 nema 3. gr., 5. gr., 2. mgr. 7. gr., 3. og 5. mgr. c-liðar 8. gr., a-liður 11. gr., 12. gr., 16. gr., 21. gr. og 22. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2015), l. 138/2014 (tóku gildi 31. des. 2014) og l. 109/2015 (tóku gildi 14. nóv. 2015).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við umhverfis- og auðlindaráðherra eða umhverfis- og auðlindaráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
I. kafli. Markmið, gildissvið og skilgreiningar.


a. að tryggja að áður en leyfi er veitt fyrir framkvæmd, sem kann vegna staðsetningar, starfsemi sem henni fylgir, eðlis eða umfangs að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, hafi farið fram mat á umhverfisáhrifum viðkomandi framkvæmdar,
b. að draga eins og kostur er úr neikvæðum umhverfisáhrifum framkvæmdar,
c. að stuðla að samvinnu þeirra aðila sem hafa hagsmuna að gæta eða láta sig málið varða vegna framkvæmda sem falla undir ákvæði laga þessara,
d. að kynna fyrir almenningi umhverfisáhrif framkvæmda sem falla undir ákvæði laga þessara og mótvægisaðgerðir vegna þeirra og gefa almenningi kost á að koma að athugasemdum og upplýsingum áður en álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdar liggur fyrir.] 1)
1)L. 74/2005, 1. gr.


1)L. 74/2005, 2. gr.


a. … 1)
b. Framkvæmdaraðili: Ríki, sveitarfélag, stofnun og aðrir lögaðilar eða einstaklingar er hyggjast hefja framkvæmd sem lög þessi taka til.
c. Framkvæmd: Hvers konar nýframkvæmd eða breyting á eldri framkvæmd og starfsemi sem henni fylgir sem undir lög þessi falla.
[d. Frummatsskýrsla: Skýrsla framkvæmdaraðila um mat á umhverfisáhrifum sem Skipulagsstofnun auglýsir til kynningar.] 1)
[e. Fyrirhuguð framkvæmd: Framkvæmd sem er komin á það stig að hún geti hlotið málsmeðferð skv. IV. kafla.] 2)
[f. ] 2) [ Leyfi til framkvæmda: Framkvæmdaleyfi og byggingarleyfi samkvæmt [skipulagslögum og lögum um mannvirki] 3) og önnur leyfi til starfsemi og framkvæmda samkvæmt sérlögum sem um viðkomandi framkvæmd gilda.] 1)
[g. ] 2) Leyfisveitandi: Lögbært yfirvald sem veitir leyfi til framkvæmda.
[h. ] 2) [ Matsáætlun: Áætlun framkvæmdaraðila byggð á tillögu hans um á hvaða þætti framkvæmdarinnar og umhverfis leggja skuli áherslu í frummatsskýrslu og um kynningu og samráð við gerð frummatsskýrslu.] 1)
[i. ] 2) Matsskyld framkvæmd: Framkvæmd sem háð er ákvæðum laga þessara ásamt þeirri starfsemi sem henni fylgir.
[j. ] 2) Matsskýrsla: [Skýrsla framkvæmdaraðila um mat á umhverfisáhrifum fyrirhugaðrar framkvæmdar og starfsemi sem henni fylgir ásamt tillögum um mótvægisaðgerðir eftir því sem við á.] 1) Framkvæmdaraðili ber ábyrgð á gerð matsskýrslu.
[k. ] 2) Mótvægisaðgerðir: Aðgerðir til að koma í veg fyrir, draga úr eða bæta fyrir neikvæð umhverfisáhrif.
[l. ] 2) Umhverfi: Samheiti fyrir menn, dýr, plöntur og annað í lífríkinu, jarðveg, jarðmyndanir, vatn, loft, veðurfar og landslag, samfélag, heilbrigði, menningu og menningarminjar, atvinnu og efnisleg verðmæti.
[m. ] 2) Umhverfisáhrif: Áhrif framkvæmdar og starfsemi sem henni fylgir á umhverfi. [Þar með eru þó ekki talin þjóðhagsleg áhrif og arðsemi einstakra framkvæmda.] 1)
[[n. ] 2) Umhverfisverndarsamtök: Samtök sem hafa umhverfisvernd að meginmarkmiði. Þau skulu vera opin fyrir almennri aðild, gefa út ársskýrslur um starfsemi sína og hafa endurskoðað bókhald.
[o. ] 2) Umsagnaraðilar: Opinberar stofnanir og stjórnvöld sem sinna lögbundnum verkefnum er varða matsskyldar framkvæmdir eða umhverfisáhrif þeirra.] 1)
[p. ] 2) Umtalsverð umhverfisáhrif: Veruleg óafturkræf umhverfisáhrif eða veruleg spjöll á umhverfinu sem ekki er hægt að fyrirbyggja eða bæta úr með mótvægisaðgerðum.
1)L. 74/2005, 3. gr. 2)L. 138/2014, 1. gr. 3)L. 123/2010, 57. gr.
II. kafli. Stjórnsýsla.




1)L. 126/2011, 311. gr. 2)L. 138/2014, 2. gr.
III. kafli. Matsskylda.





1)L. 138/2014, 3. gr. 2)L. 74/2005, 5. gr.










1)L. 138/2014, 4. gr. 2)L. 74/2005, 6. gr.


1)L. 126/2011, 311. gr. 2)L. 138/2014, 5. gr.
IV. kafli. Málsmeðferð vegna matsskyldra framkvæmda.






1)L. 74/2005, 7. gr. 2)L. 49/2014, 20. gr.



1)L. 74/2005, 8. gr.







1)L. 74/2005, 9. gr.









1)L. 74/2005, 11. gr.




1)L. 74/2005, 13. gr. 2)L. 138/2014, 6. gr.






1)L. 131/2011, 25. gr. 2)L. 138/2014, 7. gr. 3)L. 74/2005, 12. gr.

1)L. 131/2011, 26. gr. 2)L. 74/2005, 12. gr.
V. kafli. Ýmis ákvæði.




1)L. 74/2005, 12. gr. 2)L. 138/2014, 8. gr. 3)L. 126/2011, 311. gr.



1)L. 74/2005, 12. gr. 2)L. 123/2010, 57. gr.


1)L. 74/2005, 14. gr.




1)L. 74/2005, 15. gr. 2)L. 138/2014, 9. gr.


a. tilkynningar um framkvæmdir [samkvæmt flokki B og flokki C í 1. viðauka], 4)
b. framsetningu matsáætlunar, matsskýrslu og gögn,
c. samráðsferlið,
d. annars konar mat,
e. aðgang almennings að gögnum,
f. kynningu á framkvæmd og [álitum], 1)
g. framlagningu frekari gagna,
h. … 1)
i. samtengingu vinnu við mat á umhverfisáhrifum og starfsleyfis,
j. eftirlit [og rafrænt gagnasafn fyrir upplýsingar um þær framkvæmdir í flokki C í 1. viðauka við lög þessi sem háðar eru leyfi til framkvæmda svo sem kveðið er á um í skipulagslögum og lögum um mannvirki]. 4)

[a. verklag og viðmið við ákvörðun sveitarstjórna um matsskyldu framkvæmda í flokki C], 4)
[b. ] 4) undirbúning og málsmeðferð vegna ákvarðana um matsskyldu framkvæmda,
[c. ] 4) undirbúning og málsmeðferð vegna matsáætlana,
[d. ] 4) undirbúning og málsmeðferð vegna matsskýrslna,
[e. ] 4) flokkun og viðmið umhverfisáhrifa,
[f. ] 4) nauðsynleg leyfi vegna matsskyldra framkvæmda.] 1)
1)L. 74/2005, 15. gr. 2)L. 126/2011, 311. gr. 3)Rg. 660/2015, sbr. 713/2015. 4)L. 138/2014, 10. gr.


1)L. 74/2005, 16. gr.


1)L. 74/2005, 16. gr.
Ákvæði til bráðabirgða.



1)L. 126/2011, 311. gr.



1)L. 74/2005, 17. gr.






1)L. 138/2014, 11. gr.
[1. viðauki.
Í flokki A eru tilgreindar þær framkvæmdir sem ávallt eru háðar mati á umhverfisáhrifum. Í flokki B og flokki C eru tilgreindar þær framkvæmdir sem kunna að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og metið er í hverju tilviki með tilliti til eðlis, umfangs og staðsetningar hvort háðar skuli mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum þessum, sbr. einnig 2. viðauka.
Flokkur framkvæmda | ||||
1. Landbúnaður, skógrækt og fiskeldi | A | B | C | |
1.01 | Framkvæmdir til endurskipulagningar á landareignum í dreifbýli sem taka til 20 ha eða stærra landsvæðis. | X | ||
1.02 | Framkvæmdir til endurskipulagningar á landareignum í dreifbýli á landsvæði allt að 20 ha. | X | ||
1.03 | Framkvæmdir til að leggja óræktað land eða lítt snortið svæði undir þaulnýtinn landbúnað. | X | ||
1.04 | Vatnsstjórnunarframkvæmdir vegna landbúnaðar, þ.m.t. áveitu- og framræsluframkvæmdir, sem hafa áhrif á 3 ha svæði eða stærra eða á verndarsvæðum. | X | ||
1.05 | Vatnsstjórnunarframkvæmdir vegna landbúnaðar, þ.m.t. áveitu- og framræsluframkvæmdir, sem hafa áhrif á allt að 3 ha svæði. | X | ||
1.06 | Nýræktun skóga á 200 ha svæði eða stærra eða á verndarsvæðum sem breytir fyrri landnotkun. Varanleg skógareyðing sem breytir fyrri landnotkun. | X | ||
1.07 | Nýræktun skóga á allt að 200 ha svæði sem breytir fyrri landnotkun. | X | ||
1.08 | Uppgræðsla lands á verndarsvæðum. | X | ||
1.09 | Þauleldi alifugla og svína með að minnsta kosti: | X | ||
i. 85.000 stæði fyrir kjúklinga eða 60.000 fyrir hænur, | ||||
ii. 3.000 stæði fyrir alisvín (yfir 30 kg) eða | ||||
iii. 900 stæði fyrir gyltur. | ||||
1.10 | Þauleldi búfjár utan þess sem tilgreint er í tölulið 1.09. | X | ||
1.11 | Þauleldi á fiski þar sem ársframleiðsla er 200 tonn eða meiri og fráveita er til sjávar eða þar sem ársframleiðsla er 20 tonn eða meiri og fráveita er í ferskvatn. | X | ||
1.12 | Þauleldi á fiski þar sem ársframleiðsla er minni en 200 tonn og fráveita er til sjávar eða þar sem ársframleiðsla er minni en 20 tonn og fráveita er í ferskvatn. | X | ||
1.13 | Endurheimt lands frá hafi. | X | ||
2. Námuiðnaður | A | B | C | |
2.01 | Efnistaka og/eða haugsetning á landi eða úr hafsbotni þar sem áætlað er að raska 50.000 m2 svæði eða stærra eða efnismagn er 150.000 m3 eða meira. | X | ||
2.02 | Efnistaka og/eða haugsetning á verndarsvæðum. | X | ||
2.03 | Efnistaka og/eða haugsetning á landi eða úr hafsbotni þar sem áætlað er að raska 25.000 m2 svæði eða stærra eða efnismagn er 50.000 m3 eða meira. Efnistaka og/eða haugsetning þar sem fleiri en einn efnistökustaður og/eða haugsetningarstaður vegna sömu framkvæmdar og á sama svæði ná samanlagt yfir 25.000 m2. | X | ||
2.04 | Efnistaka og/eða haugsetning á landi eða úr hafsbotni þar sem áætlað er að raska minna en 25.000 m2 svæði eða efnismagn er minna en 50.000 m3. | X | ||
2.05 | Neðanjarðarnámur. | X | ||
2.06 | Djúpborun (að frátalinni borun til að kanna stöðugleika jarðvegs), einkum: | X | ||
i. borun á vinnsluholum og rannsóknarholum á háhitasvæðum, | ||||
ii. borun eftir jarðhita á lághitasvæðum þar sem ölkeldur, laugar eða hverir eru á yfirborði eða í næsta nágrenni, | ||||
iii. borun fyrir geymslu kjarnorkuúrgangs, | ||||
iv. vinnsla og rannsóknarboranir vegna kolvetnis utan netlaga og innan efnahagslögsögu og landgrunnsmarka, | ||||
v. borun eftir vatni þar sem gert er ráð fyrir að vinna að minnsta kosti 100 l/sek., | ||||
vi. borun eftir vatni þar sem gert er ráð fyrir að vinna allt að 100 l/sek. | X | |||
2.07 | Iðjuver ofan jarðar til að nema kol, jarðolíu, jarðgas og málmgrýti, svo og jarðbiksleir. | X | ||
3. Orkuiðnaður | A | B | C | |
3.01 | Olíuhreinsunarstöðvar (þó ekki fyrirtæki sem framleiða eingöngu smurolíur úr hráolíu) og mannvirki fyrir kolagösun og þéttingu úr a.m.k. 500 tonnum af kolum eða jarðbiksleir á dag. | X | ||
3.02 | Jarðvarmavirkjanir og önnur varmaorkuver með 50 MW uppsett varmaafl eða meira og önnur orkuver með 10 MW uppsett rafafl eða meira. | X | ||
3.03 | Kjarnorkuver og aðrir kjarnakljúfar, einnig þegar slík orkuver eða kjarnakljúfar (kjarnorkuver og aðrir kjarnakljúfar teljast ekki lengur til slíkra stöðva þegar öll kjarnakleyf efni og önnur geislamenguð efni hafa verið endanlega fjarlægð af staðnum) eru rifin niður eða tekin úr notkun (nema rannsóknastöðvar með yfir 1 kW heildarhitaafköst þar sem fram fer umbreyting á kjarnakleyfum efnum og tímgunarefnum). | X | ||
3.04 | Stöðvar þar sem geisluð kjarnakleyf efni eru endurunnin. Stöðvar til framleiðslu eða auðgunar kjarnakleyfra efna, til vinnslu geislaðra kjarnakleyfra efna eða mjög geislavirks úrgangs, til endanlegrar geymslu á geisluðum kjarnakleyfum efnum, eingöngu til endanlegrar geymslu á geislavirkum úrgangi eða eingöngu til geymslu (til meira en tíu ára) á geisluðum kjarnakleyfum efnum eða geislavirkum úrgangi annars staðar en á framleiðslustað. | X | ||
3.05 | Stöðvar til vinnslu og geymslu á geislavirkum úrgangi, utan þeirra sem tilgreindar eru í tölulið 3.04. | X | ||
3.06 | Vinnsla á meira en 500 tonnum á dag af jarðolíu og meira en 500.000 m3 af jarðgasi á dag. | X | ||
3.07 | Iðjuver til framleiðslu á rafmagni, gufu og heitu vatni og varmavinnsla úr jarðhitasvæðum sem nemur 2.500 kW hráafli eða meira. | X | ||
3.08 | Loftlínur til flutnings á raforku með 66 kV spennu eða hærri. Sæstrengir til flutnings á raforku með 132 kV spennu eða hærri sem eru 20 km eða lengri. | X | ||
3.09 | Flutningskerfi gass, gufu eða heits vatns sem tengist iðnaðarframkvæmdum. | X | ||
3.10 | Leiðslur sem eru 1 km eða lengri og 50 cm í þvermál eða meira til flutnings á gasi eða vökvum. | X | ||
3.11 | Leiðslur sem eru 1 km eða lengri og 50 cm í þvermál eða meira til flutnings á koltvísýringi (CO2) til geymslu í jörðu, ásamt þrýstiaukadælu. | X | ||
3.12 | Leiðslur til flutnings á olíu og gasi og til flutnings á koltvísýringi (CO2) til geymslu í jörðu á verndarsvæðum. | X | ||
3.13 | Leiðslur til flutnings á olíu og gasi og til flutnings á koltvísýringi (CO2) til geymslu í jörðu utan verndarsvæða. | X | ||
3.14 | Geymslustöðvar fyrir jarðolíu, efni unnin úr jarðolíu eða efnavörur með 50.000 m3 geymslugetu eða meira. | X | ||
3.15 | Geymsla á jarðgasi ofan jarðar á verndarsvæðum. | X | ||
3.16 | Geymsla á jarðgasi ofan jarðar utan verndarsvæða. | X | ||
3.17 | Neðanjarðargeymsla á eldfimu gasi á verndarsvæðum. | X | ||
3.18 | Neðanjarðargeymsla á eldfimu gasi utan verndarsvæða. | X | ||
3.19 | Geymsla jarðefnaeldsneytis ofan jarðar á verndarsvæðum. | X | ||
3.20 | Geymsla jarðefnaeldsneytis ofan jarðar utan verndarsvæða. | X | ||
3.21 | Gerð taflna úr kolum og brúnkolum. | X | ||
3.22 | Vatnsorkuver með uppsett rafafl 200 kW eða meira. | X | ||
3.23 | Vatnsorkuver með uppsett rafafl allt að 200 kW. | X | ||
3.24 | Stöðvar sem nýta vindafl til raforkuframleiðslu (vindbú) með 2 MW uppsett rafafl eða meira. | X | ||
3.25 | Stöðvar sem nýta vindafl til raforkuframleiðslu (vindbú) með minna en 2 MW rafafl. | X | ||
3.26 | Geymslusvæði fyrir koltvísýring (CO2) í jörðu. | X | ||
3.27 | Mannvirki sem hafa þann tilgang að fanga koltvísýring (CO2) til geymslu í jörðu frá verksmiðjum eða iðjuverum sem heyra undir flokk A eða frá verksmiðjum eða iðjuverum þar sem árleg heildarföngun koltvísýrings nemur 1,5 megatonnum eða meira. | X | ||
3.28 | Mannvirki sem hafa þann tilgang að fanga koltvísýring (CO2) til geymslu í jörðu frá verksmiðjum eða iðjuverum sem falla ekki í flokk A samkvæmt tölulið 3.27. | X | ||
4. Framleiðsla og vinnsla málma | A | B | C | |
4.01 | Verksmiðjur þar sem fram fer frumbræðsla á steypujárni og stáli. Framleiðsla hrámálms, sem inniheldur ekki járn úr grýti, kirni eða afleiddu hráefni, sem fer fram með málmvinnsluaðferðum, efnafræðilegum aðferðum eða rafgreiningaraðferðum. | X | ||
4.02 | Stöðvar til framleiðslu á 20 tonnum á dag eða meira af steypujárni og stáli (fyrsta og önnur bræðsla) ásamt samfelldri steypingu. | X | ||
4.03 | Stöðvar til framleiðslu á allt að 20 tonnum á dag af steypujárni og stáli (fyrsta og önnur bræðsla) ásamt samfelldri steypingu. | X | ||
4.04 | Stöðvar til vinnslu á járnkenndum málmum: | X | ||
i. heitvölsunarstöðvar, | ||||
ii. smiðjur með hömrun, | ||||
iii. varnarhúðun með bræddum málmum. | ||||
4.05 | Málmsteypusmiðjur fyrir járnkennda málma. | X | ||
4.06 | Stöðvar til bræðslu, einnig málmblendis, á járnlausum málmum öðrum en góðmálmum, einnig endurheimtum vörum (hreinsun, steypa í steypusmiðjum o.s.frv.). | X | ||
4.07 | Stöðvar þar sem unnið er að yfirborðsmeðferð málma og plastefna með rafgreiningar- og efnaaðferðum. | X | ||
4.08 | Framleiðsla og samsetning vélknúinna ökutækja og framleiðsla á hreyflum í slík ökutæki. | X | ||
4.09 | Skipasmíðastöðvar. | X | ||
4.10 | Stöðvar sem eru 1 ha að stærð eða meira til smíða og viðgerða á loftförum. | X | ||
4.11 | Stöðvar sem eru allt að 1 ha að stærð til smíða og viðgerða á loftförum. | X | ||
4.12 | Framleiðsla á járnbrautarbúnaði. | X | ||
4.13 | Málmmótun með sprengiefnum. | X | ||
4.14 | Stöðvar til að brenna og glæða málmgrýti. | X | ||
5. Steinefnaiðnaður | A | B | C | |
5.01 | Koxofnar (þurreiming kola). | X | ||
5.02 | Sementsverksmiðjur. | X | ||
5.03 | Stöðvar til framleiðslu á gleri og trefjaefni. | X | ||
5.04 | Stöðvar til að bræða steinefni og framleiða steinefnatrefjar. | X | ||
5.05 | Framleiðsla á keramikvörum með brennslu, svo sem þakflísum, múrsteinum, eldföstum múrsteinum, flísum, leirmunum eða postulíni, 75 tonn á dag eða meira eða rúmtak ofns er 4 m3 eða meira. | X | ||
5.06 | Framleiðsla á keramikvörum með brennslu, svo sem þakflísum, múrsteinum, eldföstum múrsteinum, flísum, leirmunum eða postulíni, allt að 75 tonnum á dag eða rúmtak ofns er undir 4 m3. | X | ||
6. Efnaiðnaður | A | B | C | |
6.01 | Efnaverksmiðjur sem framleiða: | X | ||
i. lífrænt hráefni, | ||||
ii. ólífrænt hráefni, | ||||
iii. áburð sem inniheldur fosfór, köfnunarefni eða kalíum (einnig áburðarblöndur), | ||||
iv. grunnvörur fyrir plöntuvarnarefni og lífeyða, | ||||
v. grunnlyfjavörur með efnafræðilegum og líffræðilegum aðferðum, | ||||
vi. sprengiefni. | ||||
6.02 | Meðferð á hálfunnum vörum og framleiðsla kemískra efna. | X | ||
6.03 | Framleiðsla á varnarefnum og lyfjum, málningu og lakki, gúmmílíki og peroxíðum. | X | ||
6.04 | Geymslustöðvar fyrir jarðolíu, efni unnin úr jarðolíu og önnur kemísk efni á verndarsvæðum. | X | ||
6.05 | Geymslustöðvar fyrir jarðolíu, efni unnin úr jarðolíu og önnur kemísk efni utan verndarsvæða. | X | ||
7. Matvælaiðnaður | A | B | C | |
7.01 | Vinnsla á olíu og fitu úr jurtum og dýrum á verndarsvæðum. | X | ||
7.02 | Vinnsla á olíu og fitu úr jurtum og dýrum utan verndarsvæða. | X | ||
7.03 | Pökkun og niðursuða á jurta- og dýraafurðum, 75 tonn á dag eða meira, á verndarsvæðum. | X | ||
7.04 | Pökkun og niðursuða á jurta- og dýraafurðum sem ekki fellur í flokk B samkvæmt tölulið 7.03. | X | ||
7.05 | Framleiðsla á mjólkurvörum, 200 tonn á dag eða meira, á verndarsvæðum. | X | ||
7.06 | Framleiðsla á mjólkurvörum sem fellur ekki í flokk B samkvæmt tölulið 7.05. | X | ||
7.07 | Öl- og maltgerð á verndarsvæðum. | X | ||
7.08 | Öl- og maltgerð utan verndarsvæða. | X | ||
7.09 | Framleiðsla á sætindum og sírópi á verndarsvæðum. | X | ||
7.10 | Framleiðsla á sætindum og sírópi utan verndarsvæða. | X | ||
7.11 | Sláturhús á verndarsvæðum. | X | ||
7.12 | Sláturhús utan verndarsvæða. | X | ||
7.13 | Stöðvar til sterkjuframleiðslu á verndarsvæðum. | X | ||
7.14 | Stöðvar til sterkjuframleiðslu utan verndarsvæða. | X | ||
7.15 | Fiskmjöls- og lýsisverksmiðjur í þéttbýli með framleiðslugetu 1.000 tonn á sólarhring eða meiri. | X | ||
7.16 | Fiskmjöls- og lýsisverksmiðjur á verndarsvæðum; fiskmjöls- og lýsisverksmiðjur í þéttbýli með framleiðslugetu 500 tonn á sólarhring eða meiri. | X | ||
7.17 | Fiskmjöls- og lýsisverksmiðjur utan þeirra sem falla í flokk A samkvæmt tölulið 7.15 og flokk B samkvæmt tölulið 7.16. | X | ||
7.18 | Sykurverksmiðjur á verndarsvæðum. | X | ||
7.19 | Sykurverksmiðjur utan verndarsvæða. | X | ||
8. Textíl-, leður-, timbur- og pappírsiðnaður | A | B | C | |
8.01 | Verksmiðjur: | X | ||
i. sem framleiða pappírsdeig úr timbri eða svipuðum trefjaefnum, | ||||
ii. sem framleiða pappír og pappa og geta framleitt meira en 200 tonn á dag. | ||||
8.02 | Verksmiðjur til framleiðslu á pappír og pappa utan þeirra sem tilgreind eru í flokki A samkvæmt tölulið 8.01. | X | ||
8.03 | Stöðvar þar sem fram fer formeðferð (t.d. þvottur, bleiking, mersivinna) eða litun trefja eða textílefna. | X | ||
8.04 | Stöðvar þar sem fram fer sútun á húðum og skinnum. | X | ||
8.05 | Stöðvar þar sem fram fer vinnsla og framleiðsla á sellulósa. | X | ||
9. Gúmmíiðnaður | A | B | C | |
9.01 | Framleiðsla og meðferð á vörum úr gúmmílíki. | X | ||
10. Grunnvirki | A | B | C | |
10.01 | Mannvirkjagerð vegna þróunar iðnaðarsvæðis sem tekur til 50 ha eða stærra svæðis. | X | ||
10.02 | Mannvirkjagerð vegna þróunar iðnaðarsvæðis sem tekur til allt að 50 ha svæðis. | X | ||
10.03 | Mannvirkjagerð vegna þróunar þéttbýlis, þ.m.t. verslunarmiðstöðvar, bílastæðasvæði, íþróttaleikvangar, háskólar, sjúkrahús og aðrar sambærilegar framkvæmdir. | X | ||
10.04 | Bygging samgöngumiðstöðva fyrir margþátta samgöngustarfsemi. | X | ||
10.05 | Flugvellir með 2.100 m langa meginflugbraut eða lengri. | X | ||
10.06 | Flugvellir með styttri en 2.100 m langa meginflugbraut. | X | ||
10.07 | Nýir tveggja akreina vegir með framúrakstursrein og vegir með fjórar akreinar eða fleiri. | X | ||
10.08 | Nýir vegir sem eru 10 km eða lengri. Enduruppbygging vega þar sem samanlögð nýlagning utan eldra vegsvæðis eða breikkun úr tveimur akreinum í fjórar er a.m.k. 10 km að lengd. | X | ||
10.09 | Nýir tveggja akreina vegir styttri en 10 km í þéttbýli. Nýir vegir utan þéttbýlis á verndarsvæðum. Enduruppbygging vega utan þéttbýlis á verndarsvæðum. | X | ||
10.10 | Nýir vegir og endurbygging vega sem ekki eru tilgreindir í tölulið 10.07, 10.08 eða 10.09. | X | ||
10.11 | Hafnir (viðskiptahafnir, skipgengar vatnaleiðir og innhafnir) sem skip stærri en 1.350 tonn geta siglt um. | X | ||
10.12 | Viðlegubryggjur (að undanskildum ferjulægjum) sem tengdar eru við land og eru utan hafna, þar sem skip stærri en 1.350 tonn geta lagst að til losunar og lestunar. | X | ||
10.13 | Hafnir og viðlegubryggjur utan þéttbýlis á verndarsvæðum. | X | ||
10.14 | Aðrar hafnir og viðlegubryggjur en tilgreindar eru í flokki A samkvæmt tölulið 10.12 eða flokki B samkvæmt tölulið 10.13. | X | ||
10.15 | Byggingarframkvæmdir við skipgengar vatnaleiðir og gerð skipaskurða og fráveituskurða. | X | ||
10.16 | Stíflur og önnur mannvirki eða breytingar á árfarvegi til að hemja og/eða miðla vatni þar sem 3 km2 lands eða meira fara undir vatn eða rúmtak vatns er meira en 10 milljónir m3. | X | ||
10.17 | Stíflur og önnur mannvirki eða breytingar á árfarvegi til að hemja og/eða miðla vatni á verndarsvæðum, utan þeirra sem tilgreind eru í tölulið 10.16. | X | ||
10.18 | Stíflur og önnur mannvirki eða breytingar á árfarvegi til að hemja og/eða miðla vatni á verndarsvæðum, utan þeirra sem tilgreind eru í tölulið 10.16 og 10.17. | X | ||
10.19 | Lagning járnbrauta um langar vegalengdir. | X | ||
10.20 | Járnbrautir, sporvagnar, lestir í lofti og neðanjarðar, svifbrautir og ámóta brautir af sérstakri gerð sem notaðar eru eingöngu eða aðallega til fólksflutninga. | X | ||
10.21 | Lagning áveitu- eða vatnsstokka um langan veg; loftlínur til flutnings raforku á verndarsvæðum; lagning niðurgrafinna strengja/lagna 10 km eða lengri utan þéttbýlis eða óháð vegalengd á verndarsvæðum. Lagning strengja/lagna í vatni/sjó 10 km eða lengri eða óháð vegalengd á verndarsvæðum. | X | ||
10.22 | Mannvirki til að verjast rofi á strandlengjum á verndarsvæðum, t.d. með stíflugörðum, brimbrjótum, hafnargörðum og öðrum varnarmannvirkjum gegn ágangi sjávar. Landfyllingar þar sem áætluð uppfylling er 5 ha eða stærri. Undanskilið er viðhald og endurbygging framangreindra mannvirkja. | X | ||
10.23 | Mannvirki til að verjast rofi á strandlengjum utan verndarsvæða, t.d. með stíflugörðum, brimbrjótum, hafnargörðum og öðrum varnarmannvirkjum gegn ágangi sjávar. Landfyllingar þar sem áætluð uppfylling er allt að 5 ha. Undanskilið er viðhald og endurbygging framangreindra mannvirkja. | X | ||
10.24 | Vinnsla grunnvatns eða íveita vatns í grunnvatn með 300 l/sek. meðalrennsli eða meira á ári. | X | ||
10.25 | Vinnsla grunnvatns eða íveita vatns í grunnvatn sem ekki fellur undir flokk A, tölulið 10.24. | X | ||
10.26 | Mannvirkjagerð þegar fyrirhugað er að veita meira en 1.000 l/sek. af vatni á milli vatnasviða. Flutningur á drykkjarvatni í leiðslum er undanskilinn. | X | ||
10.27 | Mannvirkjagerð þegar fyrirhugað er að veita vatni á milli vatnasviða sem ekki fellur undir flokk A, tölulið 10.26. Flutningur á drykkjarvatni í leiðslum er undanskilinn. | X | ||
11. Aðrar framkvæmdir | A | B | C | |
11.01 | Kappaksturs- og reynsluakstursbrautir fyrir vélknúin ökutæki á svæðum sem skilgreind eru sem slík í skipulagi. | X | ||
11.02 | Förgunarstöðvar þar sem spilliefni eru brennd, meðhöndluð með efnum eða urðuð. Aðrar förgunarstöðvar úrgangs sem meðhöndla meira en 500 tonn af úrgangi á ári. | X | ||
11.03 | Förgunarstöðvar þar sem úrgangur er brenndur, meðhöndlaður með efnum eða urðaður og ekki eru tilgreindar í flokki A, tölulið 11.02. | X | ||
11.04 | Skolphreinsivirki frá íbúðarbyggð eða iðnaði, þ.m.t. stöðvum með þaulnýtnum landbúnaði með afkastagetu sem svarar til 50.000 persónueininga eða meira. | X | ||
11.05 | Skolphreinsivirki frá íbúðarbyggð eða iðnaði, þ.m.t. stöðvum með þaulnýtnum landbúnaði með afkastagetu sem svarar til 100 persónueininga eða meira á verndarsvæðum, svæðum á náttúruminjaskrá eða þar sem losað er í viðkvæman viðtaka, að undanskildum þeim er tilgreind eru í flokki A, tölulið 11.04. | X | ||
11.06 | Skolphreinsivirki frá íbúðarbyggð eða iðnaði, þ.m.t. stöðvum með þaulnýtnum landbúnaði utan verndarsvæða, sem ekki eru tilgreind í flokki A, tölulið 11.04, eða flokki B, tölulið 11.05. | X | ||
11.07 | Förgunarstöðvar fyrir seyru á verndarsvæðum. | X | ||
11.08 | Förgunarstöðvar fyrir seyru utan verndarsvæða. | X | ||
11.09 | Geymsla brotajárns, þ.m.t. bílar, sem er að magni 1.500 tonn á ári eða meira. | X | ||
11.10 | Geymsla brotajárns, þ.m.t. bílar, sem er að magni allt að 1.500 tonnum á ári. | X | ||
11.11 | Prófunaraðstaða fyrir vélar, hverfla eða hvarfrými. | X | ||
11.12 | Stöðvar sem framleiða steinefnatrefjar. | X | ||
11.13 | Stöðvar til að endurvinna sprengiefni eða eyða því. | X | ||
11.14 | Förgun sláturúrgangs. | X | ||
11.15 | Endurnýting úrgangs þar sem meðhöndluð eru meira en 500 tonn af úrgangi á ári. | X | ||
11.16 | Varnargarðar til varnar ofanflóðum í þéttbýli. | X | ||
12. Ferðalög og tómstundir | A | B | C | |
12.01 | Skíðasvæði, skíðalyftur og kláfar og tengdar framkvæmdir á skíðasvæðum á verndarsvæðum og jöklum. | X | ||
12.02 | Skíðasvæði, skíðalyftur og kláfar á skíðasvæðum og tengdar framkvæmdir utan verndarsvæða og jökla. | X | ||
12.03 | Smábátahafnir sem hafa 150 bátalægi eða fleiri. | X | ||
12.04 | Smábátahafnir með allt að 150 bátalægi. | X | ||
12.05 | Þjónustumiðstöðvar fyrir ferðamenn á hálendi og á verndarsvæðum á láglendi utan þéttbýlis, orlofsþorp, hótel og tengdar framkvæmdir utan þéttbýlis. | X | ||
12.06 | Varanleg tjaldsvæði og hjólhýsasvæði sem eru 10 ha eða stærri. | X | ||
12.07 | Varanleg tjaldsvæði og hjólhýsasvæði allt að 10 ha. | X | ||
12.08 | Skemmtigarðar sem ná yfir 2 ha svæði eða meira. | X | ||
12.09 | Skemmtigarðar sem ná yfir allt að 2 ha svæði. | X | ||
12.10 | Golfvellir. | X | ||
13. Breytingar og viðbætur við framkvæmdir | A | B | C | |
13.01 | Allar breytingar eða viðbætur við framkvæmdir sem tilgreindar eru í flokki A þegar breytingin eða viðbótin sjálf fer yfir þau viðmið sem flokkur A setur. | X | ||
13.02 | Allar breytingar eða viðbætur við framkvæmdir samkvæmt flokki A, aðrar en tilgreindar eru í tölulið 13.01, og flokki B sem hafa þegar verið leyfðar, framkvæmdar eða eru í framkvæmd og kunna að hafa umtalsverð umhverfisáhrif. | X | ||
13.03 | Allar breytingar eða viðbætur við framkvæmdir sem eru í flokki C sem hafa þegar verið leyfðar, framkvæmdar eða eru í framkvæmd og kunna að hafa umtalsverð umhverfisáhrif. | X | ||
13.04 | Framkvæmdir samkvæmt flokki A sem ráðist er í eingöngu eða aðallega til að þróa og prófa nýjar aðferðir eða vörur en eru ekki notaðar lengur en tvö ár.]1) | X |
[2. viðauki.]1)
Viðmiðanir við mat á framkvæmdum tilgreindum í [flokki B og flokki C í 1. viðauka]. 1)
1. Eðli framkvæmdar.
Athuga þarf eðli framkvæmdar, einkum með tilliti til:
i. stærðar og umfangs framkvæmdar,
ii. sammögnunaráhrifa með öðrum framkvæmdum,
iii. nýtingar náttúruauðlinda,
iv. úrgangsmyndunar,
v. mengunar og ónæðis,
vi. slysahættu, einkum með tilliti til efna eða aðferða sem notaðar eru.
2. Staðsetning framkvæmdar.
Athuga þarf hversu viðkvæm þau svæði eru sem líklegt er að framkvæmd hafi áhrif á, einkum með tilliti til:
i. landnotkunar sem fyrir er eða er fyrirhuguð samkvæmt skipulagsáætlun,
ii. magns, gæða og getu til endurnýjunar náttúruauðlinda,
iii. verndarsvæða:
(a) [náttúruminja í A-, B- og C-hluta náttúruminjaskrár, svæða sem falla undir ákvæði [61. gr.] 2) laga um náttúruvernd og landsvæða í verndarflokki verndar- og orkunýtingaráætlunar samkvæmt lögum nr. 48/2011], 3)
(b) svæða sem njóta verndar samkvæmt sérlögum, svo sem Þingvalla, Mývatns- og Laxársvæða og Breiðafjarðar,
(c) svæða innan 100 m fjarlægðar frá fornleifum sem njóta verndar samkvæmt þjóðminjalögum,
(d) svæða, sbr. gr. 4.21 í skipulagsreglugerð, sem njóta verndar í samræmi við reglugerð um varnir gegn mengun vatns og reglugerð um neysluvatn vegna grunnvatns- og strandmengunar og mengunar í ám og vötnum,
(e) [svæða sem njóta verndar samkvæmt samþykktum alþjóðlegra samninga sem Ísland er bundið af, svo sem Ramsarsamningsins (votlendi) og Bernarsamningsins (verndun villtra plantna og dýra og lífsvæða í Evrópu), friðaðra og friðlýstra tegunda sem og ábyrgðartegunda; tegundir á válista falla hér undir enda válistar m.a. gefnir út til að uppfylla skyldur Íslands samkvæmt Bernarsamningnum], 1)
(f) hverfisverndarsvæða samkvæmt ákvæðum í skipulagsáætlunum, sbr. [ákvæði er varða hverfisverndarsvæði] 1) í skipulagsreglugerð,
iv. álagsþols náttúrunnar, einkum með tilliti til:
(a) votlendissvæða,
(b) strandsvæða,
(c) sérstæðra jarðmyndana, svo sem hverasvæða, vatnsfalla, jökulminja, eldstöðva og bergmyndana,
(d) náttúruverndarsvæða, þar með talið svæða á náttúruminjaskrá,
(e) landslagsheilda, ósnortinna víðerna, hálendissvæða og jökla,
(f) upprunalegs gróðurlendis, svo sem skóglendis,
(g) fuglabjarga og annarra kjörlenda dýra,
(h) svæða sem hafa sögulegt, menningarlegt eða fornleifafræðilegt gildi,
(i) svæða þar sem mengun er yfir viðmiðunargildum í lögum og reglugerðum,
[(j) þéttbýlla svæða]. 1)
3. Eiginleikar hugsanlegra áhrifa framkvæmdar.
Áhrif framkvæmdar ber að skoða í ljósi viðmiðana hér á undan, einkum með tilliti til:
i. umfangs umhverfisáhrifa, þ.e. þess svæðis og fjölda fólks sem ætla má að verði fyrir áhrifum,
ii. stærðar og fjölbreytileika áhrifa,
iii. þess hverjar líkur eru á áhrifum,
iv. tímalengdar, tíðni og óafturkræfi áhrifa,
v. sammögnunar ólíkra umhverfisáhrifa á tilteknu svæði,
vi. áhrifa yfir landamæri.
1)L. 138/2014, 13. gr. 2)L. 109/2015, 36. gr. 3)L. 60/2013, 95. gr.