Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 3. maí 2019. Útgáfa 149b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um eftirlit með skipum
2003 nr. 47 20. mars
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 1. janúar 2004. EES-samningurinn: VIII. viðauki tilskipun 97/70/EB, 98/18/EB og 1999/35/EB. Breytt með l. 88/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009 nema brbákv. VII sem tók gildi 21. júní 2008), l. 139/2008 (tóku gildi 13. des. 2008), l. 36/2010 (tóku gildi 1. nóv. 2010), l. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011), l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011), l. 169/2011 (tóku gildi 1. jan. 2012), l. 59/2013 (tóku gildi 1. júlí 2013), l. 82/2018 (tóku gildi 28. júní 2018), l. 132/2018 (tóku gildi 1. jan. 2019) og l. 142/2018 (tóku gildi 1. jan. 2019; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 48. gr., sbr. einnig brbákv. í s.l.).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra eða samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
I. kafli. Gildissvið og orðskýringar.
1. gr. Gildissvið o.fl.
Lög þessi gilda um öll íslensk skip.
Ráðherra getur ákveðið í reglugerð að lög þessi gildi að hluta eða öllu leyti um erlend skip þegar þau eru í íslenskum höfnum eða innan íslenskrar lögsögu.
Ráðherra getur ákveðið í reglugerð 1) að eftirlit skuli haft með öryggi annarra skipa á sjó, ám og vötnum og hvernig því eftirliti skuli haga.
Ráðherra er enn fremur heimilt að setja reglugerðir 2) um eftirlit með skipum að því leyti sem það er nauðsynlegt vegna skuldbindinga samkvæmt samningi um Evrópskt efnahagssvæði, nr. 2/1993, með síðari breytingum.
Farþegaflutningar í atvinnuskyni, þ.m.t. skoðunar- og veiðiferðir ferðamanna, með skipum sem lög þessi gilda um eru háðir leyfi [Samgöngustofu]. 3) Skal slíkt leyfi gefið út þegar leitt er í ljós að fullnægt er ákvæðum laga þessara og reglugerða settra samkvæmt þeim, svo og ákvæðum annarra laga og reglugerða sem gilda um skip í farþegaflutningum. Ráðherra er heimilt að setja reglugerð 4) um útgáfu og skilyrði leyfis samkvæmt þessari málsgrein, svo og um gjald fyrir útgáfu leyfisins.
Markmið þessara laga er að tryggja öryggi íslenskra skipa, áhafna þeirra og farþega og efla varnir gegn mengun frá skipum. Þessu markmiði skal náð með því að gera tilteknar kröfur um gerð og búnað skipa, skoðun skipa og eftirlit með þeim.
Tilgangur laga þessara og reglugerða settra samkvæmt þeim er að laga íslenskan rétt að þjóðréttarlegum skuldbindingum íslenska ríkisins samkvæmt ákvæðum alþjóðasamninga og samnings um Evrópska efnahagssvæðið.
1)Rg. 1017/2003, sbr. 389/2018. Rg. 1120/2007. Rg. 130/2016, sbr. 897/2017. 2)Rg. 659/2000, sbr. 597/2004. Rg. 666/2001, sbr. 983/2004 og 422/2018. Rg. 743/2001, sbr. 595/2004 og 1285/2014. Rg. 122/2004. Rg. 204/2004. Rg. 775/2004. Rg. 698/2006. Rg. 200/2007. Rg. 474/2007, sbr. 104/2008, 920/2009 og 676/2013. Rg. 265/2008, sbr. 816/2015 og 507/2018. Rg. 652/2009, sbr. 918/2016. Rg. 816/2011, sbr. 218/2015, 736/2015, 823/2018 og 1011/2018. Rg. 817/2011. Rg. 314/2012, sbr. 1252/2013. Rg. 80/2013. Rg. 190/2015. Rg. 130/2016. Rg. 989/2016, sbr. 896/2017, 857/2018 og 943/2018. Rg. 390/2018. 3)L. 59/2013, 24. gr. 4)Rg. 463/1998, sbr. 654/2017.
2. gr. Orðskýringar.
Í lögum þessum hafa eftirfarandi orð og orðasambönd þá merkingu sem hér greinir:
1. Skip er sérhvert fljótandi far nema annars sé getið.
2. Íslenskt skip er hvert það skip sem skráð er hér á landi og rétt hefur til að sigla undir íslenskum fána.
3. Flokkað skip er hvert það skip sem er flokkað af flokkunarfélagi sem viðurkennt er af [Samgöngustofu]. 1)
4. Hafnarríkiseftirlit er eftirlit og skoðun sem [Samgöngustofa] 1) framkvæmir á skipum undir erlendum fána í íslenskum höfnum.
5. Viðurkenndur skoðunaraðili er flokkunarfélag eða skoðunarstofa sem hefur starfsleyfi [Samgöngustofu] 1) til að annast skoðun og eftirlit með skipum og búnaði þeirra skv. 10. gr.
1)L. 59/2013, 24. gr.
II. kafli. Eftirlit með skipum.
3. gr. Smíði, búnaður, mengunarvarnir skipa o.fl.
Hvert skip skal smíðað og búið út á þann hátt að öryggi mannslífa sé tryggt eins og kostur er og með tilliti til þeirra verkefna sem því er ætlað á hverjum tíma.
Skip skal fullnægja skilyrðum reglna á hverjum tíma um smíði, búnað og örugga starfsemi skips, þ.m.t. um burðarvirki þess, vatnsþétta niðurhólfun, lagnakerfi, bol, björgunar- og öryggisbúnað, vélbúnað, fjarskiptabúnað, rafbúnað, eldvarnabúnað, mengunarvarnabúnað, siglingatæki, merkingar, lyf og læknisáhöld og annan búnað og mönnun sem varðar öryggi skipsins til að tryggja öryggi skipverja, farþega, skips og farms og varnir gegn mengun frá skipum.
Vinnusvæði og vistarverur skipverja skal hanna og búa með hliðsjón af öryggi og velferð skipverja. [Ráðherra setur nánari reglur um vinnusvæði og vistarverur skipverja.] 1)
Ráðherra ákveður nánar í reglugerð 2) um smíði, stöðugleika, hleðslumerki og búnað skipa.
Ráðherra ákveður í reglum hvaða lög, stjórnvaldsfyrirmæli, skírteini og skipsbækur skuli vera um borð í skipum.
Skip skulu smíðuð og búin í samræmi við lög og reglur um varnir gegn mengun sjávar og stranda.
1)L. 82/2018, 13. gr. 2) Rgl. 189/1994, sbr. rg. 714/1995, augl. 359/1996, rgl. 337/1997, augl. 2/1998, rgl. 314/1998, augl. 522/1999, rgl. 891/1999, rg. 26/2000, rgl. 147/2000, rg. 667/2001, rg. 122/2004, rgl. 603/2004, rg. 377/2007, rgl. 343/2015 og rgl. 488/2017. Rg. 53/2000, sbr. 122/2004, 956/2008 og 124/2009. Rg. 666/2001, sbr. 17/2005, 423/2005, 260/2013, 680/2016 og 44/2017. Rg. 122/2004, sbr. 955/2008 og 125/2009. Rg. 677/2004. Rg. 551/2005, sbr. 879/2006. Rg. 520/2006. Rg. 131/2007. Rg. 200/2007. Rg. 377/2007. Rg. 1120/2007. Rg. 900/2014.
4. gr. Aðbúnaður og vinnuskilyrði.
Ráðherra setur reglur 1) um aðbúnað og vinnuskilyrði skipverja, svo sem hönnun og merkingar vinnusvæða, öryggisbúnað, notkun og viðhald vinnutækja og öryggisbúnaðar og heilbrigðis- og hollustuhætti í skipum.
1)Rg. 588/2002. Rg. 200/2007.
5. gr. Gömul skip.
Ráðherra getur ákveðið að nýjar reglugerðir nái ekki til gamalla skipa og skipa sem kjölur hefur verið lagður að eða eru á hliðstæðu smíðastigi. Þó skal tekið tillit til varna gegn mengun, öryggis og aðbúnaðar um borð, enn fremur gerðar og fyrirhugaðrar notkunar skipanna. Sé gert ráð fyrir að ákvæði nýrra reglugerða nái til gamalla skipa skal þess getið sérstaklega. Þá skal að jafnaði veita eigendum slíkra skipa hæfilegan frest til að fara að nýjum ákvæðum.
6. gr. Nýsmíði skipa.
Nýsmíði skipa er háð eftirliti [Samgöngustofu] 1) í samræmi við reglugerð sem ráðherra setur. Þar sem þær ná ekki til skulu ekki gerðar vægari kröfur en gerðar eru af viðurkenndum flokkunarfélögum um smíði skipa. Eigandi skips skal tilkynna [Samgöngustofu] 1) um smíðina. Áður en smíði hefst skal sá sem tekið hefur að sér smíði skips senda [Samgöngustofu] 1) smíðalýsingu, teikningar og önnur þau gögn sem [forstjóri Samgöngustofu] 1) telur nauðsynleg vegna eftirlits.
Eiganda skips er heimilt að fela einhverju hinna viðurkenndu flokkunarfélaga eftirlit með smíði skips, enda sé skipið smíðað eftir reglum sem gilda hér á landi.
1)L. 59/2013, 24. gr.
7. gr. Breytingar á skipi.
Engar meiri háttar breytingar má gera á skipi, svo sem stækkun farmrýmis eða yfirbyggingar, aðalvélarskipti eða breytingar sem hafa áhrif á mælingu skips, sjóhæfni og stöðugleika, öryggi og/eða aðbúnað áhafnar, án þess að fyrir liggi samþykki [Samgöngustofu] 1) eða annars aðila sem stofnunin hefur veitt umboð. Breytingarnar skulu gerðar undir eftirliti [Samgöngustofu] 1) og gilda þar um sömu reglur um eftirlit og tilkynningarskyldu og um nýsmíði.
Sömu reglur um tilkynningarskyldu og eftirlit skulu einnig gilda um meiri háttar viðgerðir sem áhrif geta haft á öryggi skips, sjóhæfni og stöðugleika skips og aðbúnað áhafnar.
1)L. 59/2013, 24. gr.
8. gr. Innflutningur skipa.
Skip sem er keypt eða leigt frá útlöndum til skráningar hér á landi skal hafa verið smíðað í samræmi við reglur viðurkennds flokkunarfélags um flokkuð skip eða sambærilegar reglur. Einnig skal slíkt skip fullnægja íslenskum lögum og reglum um styrkleika, búnað og haffæri. Skal skoðun fara fram áður en það er flutt inn. Innflutningur skipa er háður samþykki [Samgöngustofu] 1) að öðrum skilyrðum uppfylltum.
1)L. 59/2013, 24. gr.
III. kafli. Skoðun skipa og framkvæmd eftirlits.
9. gr. Ábyrgð.
Skipstjóra er skylt að sjá til þess að skip sé haffært þegar það leggur úr höfn og hafi gild lögboðin skírteini um borð. Eiganda skips, útgerðarmanni, skipstjóra og yfirvélstjóra er skylt að sjá um að lögskipaðar skoðunargerðir fari fram á skipi eftir því sem við á.
Um starfsskyldur yfirmanna við skoðunargerð og verkaskiptingu fer skv. III. kafla sjómannalaga, nr. 35/1985.
10. gr. Viðurkenndir skoðunaraðilar.
Starfsmenn [Samgöngustofu] 1) annast alla skoðun samkvæmt lögum þessum og reglum settum samkvæmt þeim eftir nánari ákvörðun [forstjóra Samgöngustofu]. 1)
[Samgöngustofa] 1) hefur heimild til að fela öðrum að framkvæma skoðun og gefur út starfsleyfi þeim til handa. Ráðherra setur reglugerð 2) um starfsemi viðurkenndra skoðunaraðila.
1)L. 59/2013, 24. gr. 2)Rg. 94/2004, sbr. 1060/2005 og 1068/2017. Rg. 142/2004. Rg. 1017/2003, sbr. 372/2007. Rg. 870/2018.
11. gr. Skoðun skipa.
Öll skip sem notuð eru í atvinnuskyni skulu sæta skoðun [Samgöngustofu] 1) í samræmi við ákvæði reglugerða 2) sem [ráðherra] 3) setur um umfang, tíðni og framkvæmd skoðana á skipum. Við skoðun á skipum skal ganga úr skugga um að skip uppfylli ákvæði laga, reglna, alþjóðasamninga og samnings um Evrópska efnahagssvæðið um smíði, búnað og örugga starfsemi skips, þ.m.t. um burðarvirki þess, vatnsþétta niðurhólfun, lagnakerfi, bol, björgunar- og öryggisbúnað, vélbúnað, fjarskiptabúnað, rafbúnað, eldvarnabúnað, mengunarvarnabúnað, siglingatæki, merkingar, lyf og læknisáhöld og annan búnað og mönnun sem varðar öryggi skipsins til að tryggja öryggi skipverja, farþega, skips og farms og varnir gegn mengun frá skipum.
[Ráðherra] 4) er heimilt með reglugerð að ákveða að skip sem ekki eru notuð í atvinnuskyni skuli skoðuð af [Samgöngustofu] 1) með reglulegu millibili.
Sé skip í flokki hjá viðurkenndu flokkunarfélagi og gildu flokkunarskírteini er framvísað skal sú skoðun sem fram fór á því til viðhalds á flokkuninni talin fullnægjandi um styrkleika bols, eimkatla, vél- og rafbúnaðar, enda fullnægi skipið jafnframt þeim ákvæðum sem sérstaklega er mælt fyrir um í íslenskum lögum eða reglum varðandi þau atriði sem flokkunin tekur til, svo og skuldbindingum samkvæmt ákvæðum samnings um Evrópska efnahagssvæðið og alþjóðasamningum sem Ísland hefur fullgilt og öðlast hafa gildi.
1)L. 59/2013, 24. gr. 2)Rg. 1017/2003, sbr. 372/2007 og 389/2018. 3)L. 126/2011, 365. gr. 4)L. 162/2010, 236. gr.
12. gr. Framkvæmd skoðunar skipa.
[Samgöngustofa] 1) annast eftirlit með því að fullnægt sé ákvæðum gildandi laga og reglna um öryggi skipa og varnir gegn mengun frá skipum.
Þegar starfsmenn [Samgöngustofu] 1) eða þeir sem hún hefur veitt umboð eru að starfi hafa þeir rétt til þess að fara um borð í hvert skip sem statt er í íslenskri höfn, innan íslenskrar landhelgi eða í íslensk skip í erlendri höfn til þess að rannsaka það sem þeim ber samkvæmt stöðu sinni. Sama gildir um skip í smíðum.
Komi í ljós að skip, búnaður eða örugg starfsemi þess er ekki í samræmi við lög þessi, reglur eða önnur fyrirmæli getur [Samgöngustofa] 1) fyrirskipað að úr því skuli bætt þegar í stað eða innan ákveðins frests.
Starfsmenn [Samgöngustofu] 1) skulu gæta þess að valda ekki óþarfa töfum á skipi né torvelda vinnu umfram nauðsyn.
Starfsmenn [Samgöngustofu] 1) skulu framvísa starfsskírteinum sé þess óskað.
Eigendur, útgerðarmenn, skipstjórar, vélstjórar og aðrir sem starfa í umboði þeirra skulu veita [Samgöngustofu] 1) alla aðstoð og upplýsingar sem óskað er vegna eftirlits og öryggis skips, svo og upplýsingar um ástand skips, sem varðar lög þessi og reglur settar samkvæmt þeim. Eigandi eða útgerðarmaður skal sjá til þess að skip sé aðgengilegt til skoðunar.
1)L. 59/2013, 24. gr.
13. gr. Aukaskoðun skipa.
Aukaskoðun skal fara fram á skipi sem hér segir:
1. Þegar skip hefur verið til viðgerðar vegna atriða sem varða öryggi skips og/eða áhafnar.
2. Þegar gerðar hafa verið breytingar eða endurbætur á skipi sem varða eða hafa áhrif á öryggi skips og áhafnar eða hættu á mengun frá skipi.
3. Þegar skip hefur orðið fyrir tjóni þar sem ætla má að skemmdir kunni að hafa áhrif á öryggi skips og áhafnar eða hættu á mengun frá skipi.
4. Þegar eigandi skips, útgerðarmaður, skipstjóri, yfirvélstjóri, skipverji, stjórn stéttarfélags eða stofnun sem á réttmætra hagsmuna að gæta varðandi örugga starfsemi skips, aðbúnað og vinnuskilyrði um borð eða mengunarvarnir krefst skoðunar eða leggur fram kvörtun nema [Samgöngustofa] 1) telji slíka kröfu eða kvörtun ekki á rökum reista. [Samgöngustofu] 1) er óheimilt að veita upplýsingar um það hver hafi lagt fram slíka kröfu eða kvörtun. Útgerðarmaður á þó rétt á þessum upplýsingum hafi krafa eða kvörtun reynst ástæðulaus.
5. Þegar [Samgöngustofa] 1) telur annars ástæðu til að rannsaka öryggi tiltekinna hluta skips eða búnaðar þess eða atriði sem varða örugga starfsemi skips.
1)L. 59/2013, 24. gr.
14. gr. Hafnarríkiseftirlit.
[Samgöngustofa] 1) skal skoða erlend skip sem koma til hafnar á Íslandi í samræmi við reglur Parísarsamkomulagsins um hafnarríkiseftirlit með skipum og skuldbindingar samkvæmt ákvæðum samnings um Evrópska efnahagssvæðið. Ráðherra setur reglur 2) um framkvæmd hafnarríkiseftirlits og um hæfniskröfur þeirra skoðunarmanna [Samgöngustofu] 1) sem annast hafnarríkiseftirlit.
1)L. 59/2013, 24. gr. 2)Rg. 816/2011, sbr. 218/2015, 736/2015, 823/2018 og 1011/2018. Rg. 817/2011.
15. gr. Skyndiskoðun skipa.
Skyndiskoðun er fyrirvaralaus skoðun [Samgöngustofu] 1) eða Landhelgisgæslu Íslands á haffæri skips.
[Samgöngustofu] 1) og Landhelgisgæslu Íslands er heimilt að taka skip sem lög þessi gilda um til skyndiskoðunar án fyrirvara til að ganga úr skugga um hvort ástand skipsins og búnaður þess sé í samræmi við lög og reglur sem og önnur atriði sem varða örugga starfsemi skipsins, svo sem hvort gætt sé ákvæða laga og reglna um fjölda í áhöfn skipsins, skírteini þess, takmarkað farsvið og útivist, atvinnuréttindi áhafnar, lögskráningu og fjölda farþega á farþegaskipum.
[Samgöngustofa] 1) og Landhelgisgæsla Íslands annast eftirlit skv. 1. mgr. og gera með sér samstarfssamning um hvernig því skuli hagað.
1)L. 59/2013, 24. gr.
16. gr. Skírteini skips.
Að skoðunargerð lokinni úrskurðar [Samgöngustofa] 1) hvort fullnægt er ákvæðum laga og reglna um smíði, búnað og örugga starfsemi skips og hvort útgáfa skírteina, áritun eða endurnýjun skírteina eigi sér stað.
Viðeigandi skírteini skulu gefin út til skipa sem falla undir ákvæði alþjóðasamninga og samnings um Evrópska efnahagssvæðið í samræmi við ákvæði þeirra og reglugerðar sem [ráðherra] 2) setur.
Haffærisskírteini eða önnur jafngild skírteini skulu gefin út til skipa sem falla ekki undir alþjóðasamninga og ákvæði samnings um Evrópska efnahagssvæðið í samræmi við reglugerð sem [ráðherra] 2) setur, þar sem m.a. skal kveðið á um form og gildistíma slíkra skírteina. … 3)
1)L. 59/2013, 24. gr. 2)L. 162/2010, 236. gr. 3)L. 36/2010, 1. gr.
17. gr. Haffæri skips.
Skip skal telja óhaffært:
1. Hafi það ekki gilt viðeigandi skírteini eða haffærisskírteini samkvæmt reglum settum samkvæmt ákvæðum alþjóðasamþykkta og/eða samnings um Evrópska efnahagssvæðið.
2. Liggi það dýpra en hleðslumerki þess leyfa samkvæmt alþjóðasamþykktum eða reglum.
3. Sé bol þess, búnaði, þar á meðal mengunarvarnabúnaði, vélum, tækjum eða skipshöfn svo áfátt eða skipið er af öðrum ástæðum svo á sig komið með tilliti til öryggis skipsins og þeirra manna sem skipinu fylgja að telja verður vegna sjóferðar þeirrar er skipið skal fara að hættulegra sé að vera í förum með það en venjulegt er.
18. gr. Skemmdir á skipi.
Hafi skip lent í árekstri, tekið grunn eða annað að borið svo að ástæða sé til að ætla að skip sé óhaffært er skipstjóra skylt að láta skoða skipið á þeim stað er því verður fyrst við komið. Starfsmenn [Samgöngustofu] 1) eða aðrir aðilar sem stofnunin hefur viðurkennt skulu framkvæma þá skoðun.
Þurfi að færa skip sem er óhaffært af slysstað eða úr höfn til viðgerðar eða nánari skoðunar skal [Samgöngustofa] 1) eða aðrir aðilar sem stofnunin hefur viðurkennt ákveða hvaða ráðstafanir skuli gerðar með tilliti til öryggis skipsins, þeirra manna sem skipinu fylgja og mengunarhættu frá skipinu.
1)L. 59/2013, 24. gr.
19. gr. Upplýsingaskylda.
Löggæslumenn, hafnaryfirvöld, leiðsögu- og hafnsögumenn, tollgæslumenn, trúnaðarmenn skipverja, starfsmenn tryggingafélaga eða lögskráningarstjórar, sem fá vitneskju um að lög þessi eða reglur settar samkvæmt þeim eru brotin eða telja sig hafa ástæðu til að ætla að skip sé ekki haffært, skulu tafarlaust gera næsta umdæmisstjóra [Samgöngustofu] 1) viðvart. Sama gildir um starfsmenn skipasmíðastöðva og verkstæða er þeir eru að starfi sínu, þó þannig að þeir skulu gera yfirmanni sínum viðvart sem tilkynnir það tafarlaust til næsta umdæmisstjóra.
1)L. 59/2013, 24. gr.
IV. kafli. Farbann.
20. gr. Farbann.
Eigi að leggja skipi úr höfn án þess að það hafi gild viðeigandi skírteini samkvæmt reglum samkvæmt ákvæðum alþjóðasamþykkta og/eða samnings um Evrópska efnahagssvæðið eða haffærisskírteini eða skip er annars óhaffært á ferð skal leggja farbann á það.
Enn fremur skal leggja farbann á skip ef starfsmenn [Samgöngustofu] 1) eru hindraðir í störfum við framkvæmd eftirlits samkvæmt lögum þessum.
1)L. 59/2013, 24. gr.
21. gr. Farbannsheimild.
[Forstjóri Samgöngustofu] 1) getur lagt farbann á skip. Einnig geta þeir starfsmenn [Samgöngustofu] 1) lagt farbann á skip sem [forstjóri Samgöngustofu] 1) hefur sérstaklega veitt til þess umboð. Skulu þeir tilkynna [forstjóra Samgöngustofu] 1) þegar um farbann sem þeir leggja á.
1)L. 59/2013, 24. gr.
22. gr. Tilkynning um farbann.
Ákvörðun um farbann skal þegar í stað tilkynna skipstjóra og útgerðarmanni skriflega. Ástæður fyrir farbanni skulu tilgreindar, svo og skilyrði fyrir því að banni verði aflétt. Starfsmenn [Samgöngustofu] 1) geta óskað eftir því ef nauðsyn krefur að lögreglustjórar og hafnar- og tollyfirvöld á hverjum stað, svo og starfsmenn Landhelgisgæslu Íslands, veiti þeim fulltingi við framkvæmd farbanns og ber þeim að verða við þeirri ósk.
1)L. 59/2013, 24. gr.
23. gr. Brottfall farbanns.
Ef ástæður farbanns eru ekki lengur fyrir hendi skal farbanni aflétt þegar í stað.
Telji [forstjóri Samgöngustofu] 1) að farbann, sem starfsmenn hans hafa lagt á, sé ekki á rökum reist skal hann þegar í stað fella það úr gildi.
1)L. 59/2013, 24. gr.
24. gr.
[Útgerðarmaður og skipstjóri geta kært farbann til [ráðherra]. 1) Telji ráðherra að sérkunnáttu þurfi til að skera úr um málið getur hann kvatt til einn eða tvo ráðgjafa sem hafa slíka sérkunnáttu. Um málsmeðferð að öðru leyti fer samkvæmt stjórnsýslulögum. Málshöfðun til ógildingar á úrskurði ráðuneytis frestar ekki réttaráhrifum hans.] 2)
1)L. 162/2010, 236. gr. 2)L. 139/2008, 2. gr. Þar er ekki kveðið á um að fyrirsögn greinarinnar „Farbannsnefnd“ falli brott en efnislegar breytingar fela það í sér að hún á ekki lengur við.
25. gr. … 1)
1)L. 139/2008, 3. gr.
V. kafli. Málsmeðferð fyrir dómi.
26. gr. Refsingar o.fl.
… 1)
Áður en ákærandi [gefur út ákæru vegna brota] 1) á lögunum getur hann leitað umsagnar [forstjóra Samgöngustofu] 2) liggi hún ekki þegar fyrir. Ber [forstjóra Samgöngustofu] 2) að láta í té rökstudda umsögn svo fljótt sem verða má.
Ákærandi skal útvega [ráðuneytinu] 3) og [Samgöngustofu] 2) eftirrit dóma í málum út af brotum á lögum þessum.
1)L. 88/2008, 234. gr. 2)L. 59/2013, 24. gr. 3)L. 162/2010, 236. gr.
27. gr. Málsmeðferð.
Málum sem höfðuð eru til ógildingar á úrskurðum [ráðuneytis] 1) skal hraða svo sem kostur er. Um mál þessi fer eftir almennri meðferð einkamála.
1)L. 139/2008, 4. gr.
VI. kafli. Gjöld.
28. gr. Gjöld.
[Eigandi skips skal greiða árlega í ríkissjóð sérstakt gjald, skipagjald, af hverju skipi sem skráð er á aðalskipaskrá eins og hér segir:
Skráningarlengd skips | Árlegt gjald (í kr.) |
< 8 metrar | 10.940 |
8–15 metrar | 19.600 |
15–24 metrar | 43.750 |
24–45 metrar | 86.800 |
45–60 metrar | 143.300 |
≥ 60 metrar | 189.700]1) |
[Innheimtumenn ríkissjóðs annast innheimtu skipagjalds.] 3) Innheimtumenn skulu skila gjöldum sem þeir innheimta skv. 1. mgr. í ríkissjóð. Ef skipagjald er ekki greitt á gjalddaga skal greiða ríkissjóði dráttarvexti, sbr. III. kafla laga nr. 38/2001, um vexti og verðtryggingu, frá næsta degi eftir gjalddaga, af þeirri fjárhæð sem þá er ógreidd fram að greiðsludegi.
Fyrir skoðun á skipum og búnaði þeirra, útgáfu skírteina, samþykkt smíðalýsinga og teikninga og aðra lögboðna þjónustu sem [Samgöngustofa] 4) veitir skal eigandi greiða samkvæmt gjaldskrá sem [ráðherra] 5) setur að tillögu [Samgöngustofu] 4) og miðast hún við kostnað stofnunarinnar.
Gjöldum samkvæmt grein þessari fylgir lögveð í skipi í eitt ár frá því er gjald var kræft.
[Samgöngustofu] 4) er heimilt að halda eftir haffærisskírteini eða öðrum jafngildum skírteinum samkvæmt samningum og alþjóðasamningum sem Ísland hefur fullgilt, að skoðun lokinni, ef gjöld skv. 3. mgr. eru ekki greidd.
Ráðherra er heimilt að setja nánari ákvæði um framkvæmd þessa ákvæðis í reglugerð. 6)
1)L. 169/2011, 1. gr. 2)L. 132/2018, 8. gr. 3)L. 142/2018, 44. gr. 4)L. 59/2013, 24. gr. 5)L. 162/2010, 236. gr. 6)Rg. 587/2002.
VII. kafli. Refsingar, svipting réttinda o.fl.
29. gr. Brot.
Brot gegn lögum þessum eða reglum settum samkvæmt þeim varða sektum eða fangelsi allt að tveimur árum … 1)
1)L. 88/2008, 234. gr.
30. gr. Hlutdeild.
Um brot skv. 29. gr. skal beitt reglum almennra hegningarlaga um hlutdeild.
Nú er brot framið með verknaði sem refsiverður er samkvæmt almennum hegningarlögum og skal þá einnig beita viðeigandi ákvæðum þeirra.
31. gr. Svipting réttinda.
Þegar um brot er að ræða og sérstaklega miklar sakir eru má svipta sökunaut rétti til skipstjórnar, stýrimennsku, vélstjórnar eða fjarskiptastarfa um ákveðinn tíma er eigi sé skemmri en þrír mánuðir.
Nú er brot að öðru leyti sérstaklega stórfellt eða ítrekað og skal þá beita réttindasviptingu eigi skemur en sex mánuði og allt að fimm árum eða ævilangt.
32. gr. Svipting réttinda.
Svipting réttinda skv. 31. gr. skal gerð með dómi. Þó má ljúka máli um sviptingu réttinda með ákvörðun dómara hafi ákærði játað sekt sína og fallist skriflega á slík málalok enda mótmæli ákærandi þeim ekki.
Ákærandi skal tilkynna öllum lögreglustjórum í landinu um réttindasviptingu og senda [ráðuneytinu] 1) réttindaskírteini.
Þegar tvö ár hið fæsta eru liðin frá því að réttindasvipting var dæmd getur [ráðherra] 1) veitt réttindin á nýjan leik mæli sérstakar ástæður með því, enda þótt sviptingartími sé ekki liðinn.
1)L. 162/2010, 236. gr.
33. gr. Sektir.
Sektir fyrir brot gegn lögum þessum renna í ríkissjóð. Dómara er heimilt að ákveða að þeim fylgi lögveð í skipi og búnaði þess.
34. gr. Önnur lög.
Lög þessi raska í engu ákvæðum áfengislaga að því er snertir viðurlög ef menn eru undir áhrifum áfengis við störf sín.
VIII. kafli. Gildistaka.
35. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2004. … Reglugerðir settar samkvæmt ákvæðum [ laga nr. 35/1993] halda gildi sínu að svo miklu leyti sem þær fara ekki í bága við ákvæði þessara laga. 1)
1)Rg. 153/1994 (um viðurkenningu flokkunarfélaga vegna eftirlits með skipum), sbr. 364/1999. Rg. 189/1994 (um björgunar- og öryggisbúnað íslenskra skipa), sbr. rg. 714/1995, augl. 359/1996, rgl. 337/1997, augl. 2/1998, rgl. 314/1998, augl. 522/1999, rgl. 891/1999, rg. 26/2000, rgl. 147/2000, rg. 667/2001, rg. 122/2004, rgl. 603/2004, rg. 377/2007, rgl. 343/2015 og rgl. 488/2017. Rg. 592/1994 (um smíði og búnað báta með mesta lengd allt að 15 metrum), sbr. 210/1995, 55/1998, 693/1998, 720/2000, 778/2006 og 779/2006. Augl. 574/1996. Rg. 661/1996 (um smíði báta styttri en 6 metrar). Rg. 365/1998 (um lyf og læknisáhöld í íslenskum skipum), sbr. 921/2003.