Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 3. maí 2019. Útgáfa 149b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um Póst- og fjarskiptastofnun
2003 nr. 69 24. mars
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 25. júlí 2003. EES-samningurinn: XI. viðauki tilskipun 90/388/EBE, 2002/19/EB, 2002/20/EB, 2002/21/EB og 2002/22/EB. Breytt með l. 172/2006 (tóku gildi 1. jan. 2007), l. 88/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009 nema brbákv. VII sem tók gildi 21. júní 2008), l. 117/2008 (tóku gildi 1. okt. 2008), l. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011), l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011), l. 62/2012 (tóku gildi 29. júní 2012), l. 41/2018 (tóku gildi 1. júlí 2018), l. 47/2018 (tóku gildi 26. maí 2018), l. 72/2018 (tóku gildi 27. júní 2018) og l. 150/2018 (tóku gildi 8. jan. 2019).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra eða samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
1. gr. Yfirstjórn o.fl.
Póst- og fjarskiptastofnun hefur umsjón með framkvæmd fjarskipta- og póstmála hér á landi eftir því sem mælt er fyrir um í lögum þessum og öðrum lögum.
Póst- og fjarskiptastofnun er sjálfstæð stofnun en undir yfirstjórn [ráðherra]. 1)
1)L. 126/2011, 370. gr.
2. gr. Forstjóri og starfsmenn.
[Ráðherra] 1) skipar forstjóra Póst- og fjarskiptastofnunar til fimm ára í senn og stjórnar hann rekstri hennar. Forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar ræður aðra starfsmenn stofnunarinnar.
Starfsmenn Póst- og fjarskiptastofnunar mega ekki vera stjórnarmenn eða starfsmenn félaga eða annarra aðila sem þeir hafa eftirlit með. Þeir mega ekki vera í hagsmuna- eða fjárhagstengslum við slíka aðila eða samtök þeirra.
1)L. 162/2010, 238. gr.
3. gr. Verkefni.
Verkefni Póst- og fjarskiptastofnunar eru:
1. Að annast framkvæmd laga um fjarskipti og laga um póstþjónustu og hafa eftirlit með fjarskiptum og póstþjónustu, svo sem nánar er kveðið á um í lögum um það efni. Stofnunin skal framfylgja lögunum og stuðla að því að markmið þeirra náist.
2. Að stuðla að samkeppni á sviði póst- og fjarskiptaþjónustu og koma í veg fyrir óréttmæta viðskiptahætti með því m.a. að:
a. vinna gegn röskun eða takmörkun samkeppni á mörkuðum fjarskipta- og póstþjónustu,
b. hvetja til skilvirkra fjárfestinga í innviðum fjarskipta og stuðla að nýbreytni,
c. ýta undir hagnýta notkun tíðna og númera og viðhafa skilvirka stjórn á notkun þessara gæða.
3. Að taka þátt í þróun markaðar fyrir fjarskipta- og póstþjónustu og upplýsingatækni með því m.a. að:
a. vinna gegn hindrunum í vegi framboðs á fjarskiptanetum, aðstöðu og þjónustu sem þeim tengist og fjarskipta- og póstþjónustu,
b. hvetja til uppsetningar og þróunar fjarskiptaneta og gagnvirkni þjónustu sem nær til allra ríkja innan EES,
c. stuðla að því að gætt sé jafnræðis við meðhöndlun fjarskiptafyrirtækja og póstrekenda sem búa við sömu aðstæður,
d. eiga samstarf við aðrar eftirlitsstofnanir í EES og Eftirlitsstofnun EFTA í þeim tilgangi að koma á samræmdum eftirlitsháttum og samræmdri túlkun löggjafar,
e. stuðla að samruna fjarskiptatækni og upplýsingatækni,
f. stuðla að þróun upplýsingasamfélagsins með markvissri innleiðingu nýrrar tækni og vinnubragða.
4. Að gæta hagsmuna almennings með því m.a. að:
a. vinna að því að allir landsmenn eigi aðgang að alþjónustu,
b. stuðla að vernd neytenda í viðskiptum þeirra við fjarskiptafyrirtæki og póstrekendur,
c. vinna að ráðstöfunum til að vernda persónuupplýsingar og friðhelgi einkalífs,
d. stuðla að birtingu skýrra upplýsinga fyrir notendur og krefjast gagnsæi gjaldskráa og skilmála fyrir notkun almennrar fjarskipta- og póstþjónustu,
e. tryggja hag notenda, þ.m.t. einstakra þjóðfélagshópa, svo sem öryrkja, sem best að því er varðar val, verð og gæði,
f. tryggja að heildstæði og öryggi almennra fjarskiptaneta sé viðhaldið.
5. Að vera ráðgefandi fyrir stjórnvöld og ráðuneyti á sviði fjarskipta- og póstmála og hafa eftirlit með því að Ísland uppfylli á hverjum tíma þær skuldbindingar sem mælt er fyrir um í alþjóðlegum samningum á sviði fjarskipta- og póstmála. Skal stofnunin beina tilmælum um breytingar á lögum og reglugerðum til [ráðherra] 1) ef þess gerist þörf.
6. Að taka þátt í samstarfi sem leiðir af alþjóðlegum skuldbindingum á sviði fjarskipta- og póstmála.
7. Annað sem lýtur að framkvæmd fjarskipta- og póstmála.
Póst- og fjarskiptastofnun og Samkeppnisstofnun skulu setja sameiginlegar leiðbeinandi reglur 2) um meðferð og úrlausn mála sem geta bæði fallið innan marka laga um póst- og fjarskiptamál og samkeppnislaga. Skulu reglur þessar birtar.
Forstjóra Póst- og fjarskiptastofnunar er heimilt að fela öðrum hæfum aðilum að framkvæma einstaka þætti skoðunar sem framkvæmd er með heimild í lögum þessum.
1)L. 162/2010, 238. gr. 2)Rg. 265/2001.
4. gr. Eftirlit með fjarskiptafyrirtækjum og póstrekendum.
Póst- og fjarskiptastofnun hefur eftirlit með starfsemi fjarskiptafyrirtækja og póstrekenda, þar með talið fjárhagsstöðu þeirra, og skal fylgjast með því að starfsemi þeirra sé í samræmi við lög, reglugerðir, reglur, skilyrði eða ákvarðanir sem um starfsemina gilda og að starfsemin sé að öðru leyti í samræmi við heilbrigða og eðlilega viðskiptahætti.
5. gr. Eftirlitsúrræði Póst- og fjarskiptastofnunar og viðurlög.
Póst- og fjarskiptastofnun getur krafið þá sem stunda starfsemi sem fellur undir lög um fjarskipti og póstþjónustu um allar upplýsingar sem nauðsynlegar þykja við athugun einstakra mála. [Í tengslum við eftirlit og athuganir mála samkvæmt ákvæðum laga um fjarskipti og laga um póstþjónustu sem ekki snúa að fjarskiptafyrirtækjum eða póstrekendum er einstaklingum og lögaðilum skylt að láta Póst- og fjarskiptastofnun í té allar upplýsingar og gögn sem hún telur nauðsynleg.] 1)
Póst- og fjarskiptastofnun getur krafið fjarskiptafyrirtæki um upplýsingar í sambandi við almenna heimild, réttindi eða sérstakar kvaðir, m.a.:
a. vegna kerfisbundinnar eða tilfallandi könnunar á því að hlítt sé skilyrðum um greiðslu [jöfnunargjalds], 2) um gagnkvæma starfrækslu þjónustu og samtengingu neta og um starfrækslugjöld fyrir tíðni og númer,
b. vegna könnunar þess að farið sé eftir skilyrðum almennra heimilda og réttinda að fenginni kvörtun eða þegar stofnunin hefur aðrar ástæður til að ætla að skilyrði sé ekki virt eða þegar stofnunin hefur að eigin frumkvæði hafið rannsókn,
c. í samræmi við reglur um málsmeðferð við veitingu réttinda til notkunar tíðna og númera og mat á umsóknum þar að lútandi,
d. vegna útgáfu upplýsinga um samanburð á gæðum og verði þjónustu í þágu notenda,
e. í afmörkuðum tölfræðilegum tilgangi,
f. vegna markaðsgreiningar.
Að undanteknum upplýsingum skv. c-lið má ekki krefjast upplýsinga samkvæmt þessari grein áður en veittur er aðgangur að markaði né gera þær að skilyrði fyrir slíkum aðgangi. Þegar Póst- og fjarskiptastofnun óskar eftir þessum upplýsingum frá fjarskiptafyrirtækjum skal stofnunin gera grein fyrir því í hvaða tilgangi á að nota upplýsingarnar.
Sem hluta af eftirliti er Póst- og fjarskiptastofnun heimilt að krefjast þess að henni séu m.a. látnir í té ársreikningar, milliuppgjör, yfirlýsingar endurskoðenda eða aðrar sambærilegar upplýsingar. Getur stofnunin krafist hvort sem er munnlegra eða skriflegra upplýsinga, innan hæfilegs frests sem hún ákveður.
Póst- og fjarskiptastofnun getur með sömu skilyrðum og í 4. mgr. krafist þess að fá gögn afhent til athugunar. Skulu þau afhent innan hæfilegs frests sem stofnunin setur.
Telji Póst- og fjarskiptastofnun að fjárhagsstaða fjarskiptafyrirtækja eða póstrekenda sé slík að hætta sé á að viðkomandi uppfylli ekki skyldur þær sem mælt er fyrir um í almennum heimildum, réttindum eða rekstrarleyfum getur stofnunin krafist þess að bætt verði úr innan tiltekins frests.
Póst- og fjarskiptastofnun getur við rannsókn máls gert nauðsynlegar athuganir á starfsstað fjarskiptafyrirtækja sem úthlutað hefur verið réttindum eða hjá rekstrarleyfishafa í póstþjónustu og lagt hald á gögn þegar ríkar ástæður eru til að ætla að brotið hafi verið gegn lögum þessum, lögum um fjarskipti, lögum um póstþjónustu eða reglum eða ákvörðunum stofnunarinnar. Við þessar aðgerðir skal fylgja ákvæðum laga um meðferð [sakamála] 3) um leit og hald á munum.
Vanræki fjarskiptafyrirtæki eða póstrekandi skyldur sínar eða uppfylli ekki kröfur sem Póst- og fjarskiptastofnun gerir um úrbætur innan hæfilegs frests getur stofnunin svipt viðkomandi réttindum til tíðna og númera eða rekstrarleyfi fyrir póstþjónustu eða tilkynnt fjarskiptafyrirtæki eða póstrekanda að hann njóti ekki lengur almennrar heimildar, að undangenginni skriflegri viðvörun.
Póst- og fjarskiptastofnun skal gera ráðstafanir til að stöðva rekstur fjarskiptafyrirtækis eða póstrekanda sem starfar án heimildar eða uppfyllir ekki skilyrði laga og reglna um slíka starfsemi. Er heimilt að leggja á dagsektir í þessu skyni, sbr. 12. gr.
[Póst- og fjarskiptastofnun er heimil vinnsla persónuupplýsinga, þ.e. upplýsinga sem nauðsynlegar þykja við athugun á málum sem Póst- og fjarskiptastofnun vinnur að samkvæmt lögum þessum, að uppfylltum skilyrðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.] 4)
[Ráðherra] 5) setur í reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd eftirlits Póst- og fjarskiptastofnunar.
1)L. 117/2008, 1. gr. 2)L. 47/2018, 30. gr. 3)L. 88/2008, 234. gr. 4)L. 150/2018, 12. gr. 5)L. 162/2010, 238. gr.
6. gr. Umsögn hagsmunaaðila.
Áður en Póst- og fjarskiptastofnun tekur ákvörðun sem hefur veruleg áhrif á viðkomandi fjarskiptamarkað skal stofnunin veita hagsmunaaðilum rétt til umsagnar. Póst- og fjarskiptastofnun skal setja reglur um meðferð upplýsinga samkvæmt þessari grein og birtingu þeirra.
7. gr. Samskipti við eftirlitsstjórnvöld Evrópska efnahagssvæðisins.
Áður en Póst- og fjarskiptastofnun tekur ákvörðun, sem hefur áhrif á viðskipti milli ríkja, um skilgreiningu fjarskiptamarkaða og greiningu þeirra, um kvaðir á fjarskiptafyrirtæki með umtalsverða markaðshlutdeild eða um aðgang og samtengingu og breytingar á skyldum á smásölumarkaði skal stofnunin hafa samráð við Eftirlitsstofnun EFTA og eftirlitsstofnanir í einstökum ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins í samræmi við skuldbindingar samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið.
Heimilt er að víkja frá ákvæði 1. mgr. þegar sérstaklega stendur á og skal þá tilkynna Eftirlitsstofnun EFTA og eftirlitsstofnunum í einstökum ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins tafarlaust um ákvörðunina.
Póst- og fjarskiptastofnun skal veita Eftirlitsstofnun EFTA almennar upplýsingar sem skylt er að veita með hliðsjón af skuldbindingum samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, svo sem varðandi fjarskiptamarkaði, alþjónustu og kvaðir sem lagðar eru á fyrirtæki.
8. gr. Þagnarskylda og samskipti við eftirlitsstjórnvöld.
Starfsmenn Póst- og fjarskiptastofnunar eru bundnir þagnarskyldu. Þeir mega ekki að viðlagðri ábyrgð skýra óviðkomandi frá því sem þeir komast að í starfi sínu og leynt á að fara um viðskipti og rekstur aðila sem þeir hafa eftirlit með. Sama gildir um endurskoðendur og aðra sérfræðinga sem starfa á vegum stofnunarinnar. Þagnarskylda helst þótt látið sé af störfum.
Með gögn og aðrar upplýsingar, t.d. að því er varðar viðskiptahagsmuni sem stofnunin aflar við eftirlit eða af öðrum ástæðum, skal fara sem trúnaðarmál.
Póst- og fjarskiptastofnun er heimilt að birta tölfræðilegar upplýsingar um magn fjarskipta og pósts og skulu fjarskiptafyrirtæki og póstrekendur láta stofnuninni í té slíkar upplýsingar.
Þrátt fyrir lagaákvæði um þagnarskyldu má veita eftirlitsstjórnvöldum í aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins og Alþjóðaviðskiptastofnuninni upplýsingar sé það liður annaðhvort í samstarfi ríkjanna um eftirlit með starfsemi eftirlitsskyldra aðila eða við úrlausn einstakra mála og slík upplýsingagjöf er nauðsynleg til að unnt sé að framfylgja lögmæltu eftirliti. Ákvæði þessarar málsgreinar gilda einnig um skipti á upplýsingum við eftirlitsstjórnvöld hér á landi. Póst- og fjarskiptastofnun er því aðeins heimilt að veita eftirlitsstjórnvöldum upplýsingar samkvæmt þessari málsgrein að sá sem upplýsingarnar fær sé háður sams konar þagnarskyldu.
Þagnarskylda samkvæmt lögum þessum skal ekki vera því til fyrirstöðu að Póst- og fjarskiptastofnun gefi fulltrúum Eftirlitsstofnunar EFTA sem fjalla um póst- og fjarskiptamál allar upplýsingar sem eru nauðsynlegar við framkvæmd samningsins um Evrópska efnahagssvæðið.
Póst- og fjarskiptastofnun er heimilt að skiptast á upplýsingum við sambærilegar stofnanir innan Evrópska efnahagssvæðisins og samningsríkja Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar að því marki að ekki sé um trúnaðarupplýsingar að ræða.
Póst- og fjarskiptastofnun getur í starfi sínu krafist upplýsinga og gagna frá öðrum stjórnvöldum, þar á meðal frá skattyfirvöldum og tollyfirvöldum, óháð þagnarskyldu þeirra.
9. gr. Lausn deilumála fjarskiptafyrirtækja og póstrekenda.
Komi upp deilur milli fyrirtækja sem reka almenn fjarskiptanet eða veita almenna fjarskiptaþjónustu eða milli póstrekenda um skyldur sem leiðir af lögum um fjarskipti eða lögum um póstþjónustu getur deiluaðili beint málinu til Póst- og fjarskiptastofnunar. Póst- og fjarskiptastofnun skal leita sátta með aðilum. Náist ekki samkomulag skal skorið úr ágreiningi með ákvörðun eins fljótt og við verður komið og eigi síðar en innan fjögurra mánaða nema sérstaklega standi á.
Ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar skal birta opinberlega með fyrirvara um kröfu um viðskiptaleynd.
Þegar deiluaðilar eru hvor frá sínu landi innan Evrópska efnahagssvæðisins skulu fjarskiptaeftirlitsstofnanir landanna tveggja eiga samstarf um lausn deilunnar.
Póst- og fjarskiptastofnun getur í ákveðnum tilfellum gripið inn í deilur aðila að eigin frumkvæði til þess að ná markmiðum laga um fjarskipti, laga um póstþjónustu eða laga um Póst- og fjarskiptastofnun.
Póst- og fjarskiptastofnun er heimilt að setja reglur um málsmeðferð samkvæmt þessari grein.
10. gr. Kvartanir.
Telji neytendur fjarskipta- eða póstþjónustu, eða aðrir sem hagsmuna hafa að gæta, að fjarskiptafyrirtæki eða póstrekandi brjóti gegn skyldum sínum samkvæmt lögum um fjarskipti eða lögum um póstþjónustu, eða gegn skilyrðum sem mælt er fyrir um í almennum heimildum, réttindum eða í rekstrarleyfi, getur hlutaðeigandi beint kvörtun til Póst- og fjarskiptastofnunar um að hún láti málið til sín taka.
Póst- og fjarskiptastofnun skal leita álits viðkomandi fjarskiptafyrirtækis eða póstrekanda á kvörtuninni og jafnframt freista þess að jafna ágreining aðila á skjótan hátt. Náist ekki samkomulag skal úr ágreiningi skorið með ákvörðun.
Póst- og fjarskiptastofnun er heimilt að setja reglur um lausn slíkra ágreiningsmála.
11. gr. Heimild til bráðabirgðaákvörðunar.
Telji Póst- og fjarskiptastofnun nauðsynlegt að taka ákvörðun í einstökum málum án tafar, enda sé hætta á því að dráttur á úrskurði valdi því að réttindi aðila máls fari forgörðum eða hann verði fyrir verulegu fjártjóni, er stofnuninni heimilt að taka bráðabirgðaákvörðun.
Póst- og fjarskiptastofnun skal taka málið til umfjöllunar skv. 9. eða 10. gr. innan sjö daga frá því að bráðabirgðaákvörðunin var tekin, ella fellur hún úr gildi.
12. gr. [Sektir og innheimta.]1)
[Þegar fjarskiptafyrirtæki eða póstrekandi fer ekki að ákvæðum laga þessara, laga um fjarskipti eða laga um póstþjónustu, skilyrðum almennrar heimildar, skilyrðum sérstakra réttinda eða einstökum ákvörðunum Póst- og fjarskiptastofnunar eða veitir ekki þær upplýsingar sem honum er skylt að afhenda stofnuninni er henni heimilt að leggja á og innheimta dagsektir sem nemi 50.000–500.000 kr. á dag til að tryggja að eftir fyrirmælum stofnunarinnar sé farið.] 2) Eru slíkar sektir aðfararhæfar skv. 5. tölul. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 90/1989, um aðför. Málskot til úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála frestar aðför en úrskurðir nefndarinnar eru aðfararhæfir. [Með sama hætti eru stjórnvaldssektir sem Póst- og fjarskiptastofnun ákvarðar skv. 74. gr. a laga um fjarskipti aðfararhæfar.] 1)
1)L. 41/2018, 11. gr. 2)L. 172/2006, 1. gr.
13. gr. Úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála.
Ákvarðanir Póst- og fjarskiptastofnunar sæta kæru til sérstakrar nefndar, úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála. Skal kæran berast úrskurðarnefnd innan fjögurra vikna frá því að viðkomandi varð kunnugt um ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar. Í úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála sitja þrír menn sem skipaðir eru af [ráðherra] 1) og jafnmargir til vara … 2). Formaður og varaformaður skulu fullnægja hæfisskilyrðum hæstaréttardómara. Skipunartími nefndarinnar er fjögur ár. Nefndinni er heimilt að kveðja til sérfræðinga.
Úrskurður nefndarinnar skal að jafnaði liggja fyrir innan [tólf] 2) vikna frá því að kæra berst henni.
[Nú vill aðili ekki una úrskurði nefndarinnar og getur hann þá borið úrskurðinn undir dómstóla, en slíkt mál skal höfða innan sex mánaða frá því að viðkomandi fékk vitneskju um úrskurð nefndarinnar. Póst- og fjarskiptastofnun getur í undantekningartilfellum borið úrskurð nefndarinnar undir dómstóla enda liggi fyrir samþykki ráðherra. Málshöfðun frestar ekki gildistöku úrskurða nefndarinnar.
Aðili getur borið ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar undir dómstóla án þess að mál sé fyrst borið undir úrskurðarnefnd. Slíkt mál skal höfðað innan þriggja mánaða frá því að viðkomandi fékk vitneskju um ákvörðun stofnunarinnar. Málshöfðun frestar ekki réttaráhrifum ákvarðana stofnunarinnar. Málskot til dómstóla hindrar að úrskurðarnefnd sé heimilt að taka kæru til málsmeðferðar.
Taka skal gjald vegna málskots fjarskiptafyrirtækja og póstrekenda til úrskurðarnefndar og málsmeðferðar fyrir nefndinni. Gjaldið skal taka mið af kostnaði vegna þóknunar nefndarmanna, reksturs málsins fyrir nefndinni, starfsaðstöðu, sérfræðiaðstoðar og gagnaöflunar. Tapist mál í grundvallaratriðum skal sá málsaðili sem tapar að jafnaði greiða málskostnað. Nefndin kveður á um fjárhæð og skiptingu gjalds í úrskurðarorðum sínum. Ekki er heimilt að gera notendum fjarskipta- og póstþjónustu eða Póst- og fjarskiptastofnun að greiða gjald samkvæmt ákvæði þessu. Gjöld samkvæmt þessari grein eru aðfararhæf.] 2)
[Þóknun úrskurðarnefndar vegna málskots notenda fjarskipta- og póstþjónustu og málsmeðferðar fyrir nefndinni skal ákveðin af ráðherra og greiðist úr ríkissjóði. Úrskurðarnefnd getur að fengnu samþykki [ráðherra] 1) ráðið nefndinni starfslið, kallað sérfróða menn sér til aðstoðar eða falið sjálfstætt starfandi aðila að sjá um skrifstofuhald fyrir nefndina.
Um starfshætti úrskurðarnefndarinnar, starfslið, sérfræðiaðstoð og umfang hennar, skrifstofuhald, starfsstöð, málsmeðferð, birtingu og aðfararhæfi, frestun réttaráhrifa, útgáfu úrskurða nefndarinnar, málskotsgjöld og kostnað lögaðila, skiptingu kostnaðar og aðra þætti er lúta að starfsumhverfi nefndarinnar skal mælt fyrir í reglugerð 3) sem ráðherra setur.] 2)
1)L. 162/2010, 238. gr. 2)L. 117/2008, 2. gr. 3)Rg. 36/2009, sbr. 581/2014.
14. gr. Gjaldtaka o.fl.
Fyrir útgáfu rekstrarleyfa fyrir póstþjónustu greiðist gjald til ríkissjóðs samkvæmt lögum nr. 88/1991, um aukatekjur ríkissjóðs.
Við veitingu réttinda fyrir notkun tíðna þar sem takmarka þarf fjölda rétthafa, t.d. vegna takmarkaðs tíðnisviðs fyrir viðkomandi þjónustu og úthlutun tíðna fer fram eftir birtingu auglýsingar um fyrirhugaða úthlutun eða útboð, eða þegar tíðni er úthlutað á grundvelli útboðs til annarra nota en fjarskiptaþjónustu, skal innheimta sérstakt gjald fyrir tíðnirnar. Gjaldið ákvarðast af kostnaði við úthlutunina.
Fyrir úthlutun símanúmera til fjarskiptafyrirtækja skal innheimt fyrir hvert úthlutað símanúmer árlegt gjald að upphæð 10 kr. fyrir hvert númer. Til viðbótar skal innheimt 200.000 kr. árlegt gjald fyrir fjögurra stafa númer, þ.m.t. forskeyti og alþjóðlegir netkóðar, óháð fjölda tölustafa í kóðanum. Innheimta skal 1.000.000 kr. árlegt gjald fyrir þriggja stafa númer.
Fjarskiptafyrirtæki skulu árlega greiða Póst- og fjarskiptastofnun rekstrargjald sem nemur [0,38%] 1) af bókfærðri veltu og sömuleiðis skulu póstrekendur greiða [0,34%] 1) af árlegri veltu til stofnunarinnar. Með bókfærðri veltu er átt við rekstrartekjur sem þessir aðilar hafa af fjarskipta- og póststarfsemi sinni hér á landi. Rekstrargjald skal miða við næsta almanaksár á undan ákvörðun gjaldsins. Tekjur skal telja til bókfærðrar veltu á því ári sem þær verða til.
Fjarskiptafyrirtæki og póstrekendur skulu skila Póst- og fjarskiptastofnun upplýsingum um gjaldskylda veltu eigi síðar en 30. apríl ár hvert. Berist Póst- og fjarskiptastofnun ekki upplýsingar innan tilskilins tíma er stofnuninni heimilt að áætla veltu viðkomandi aðila.
Álagning rekstrargjalds skv. 4. mgr. skal fara fram eigi síðar en 15. maí ár hvert. Póst- og fjarskiptastofnun skal gera eftirlitsskyldum aðilum grein fyrir álagningunni með bréfi.
Rekstrargjald greiðist með þremur jafnháum greiðslum. Það greiðist þannig að gjalddagi 1. ársþriðjungs er 1. júní og eindagi 15. júní, gjalddagi 2. ársþriðjungs er 1. september og eindagi 15. september og gjalddagi 3. ársþriðjungs er 1. desember og eindagi 15. desember.
Sé rekstrargjald greitt eftir eindaga hverrar greiðslu reiknast dráttarvextir á greiðsluna frá gjalddaga í samræmi við lög um vexti og verðtryggingu.
Vanræki fjarskiptafyrirtæki eða póstrekandi greiðslu rekstrargjalds er Póst- og fjarskiptastofnun heimilt að fella niður starfsheimild viðkomandi fyrirtækis.
Póst- og fjarskiptastofnun er heimilt að ákvarða álagningu rekstrargjalds að nýju fyrir tiltekna aðila reynist álagningarstofn eða aðrar forsendur fyrri álagningar ekki réttar.
Póst- og fjarskiptastofnun getur gert fjarskiptafyrirtæki eða póstrekanda að greiða samkvæmt reikningi útlagðan kostnað, svo sem vegna sérfræðivinnu, við sérstakar kannanir sem stofnunin telur nauðsynlegar vegna eftirlits með starfsemi á þeirra vegum og rekja má sérstakan kostnaðarauka til atvika er varða fyrirtækið.
[[Ráðherra] 2) setur gjaldskrá fyrir aðra þjónustu sem Póst- og fjarskiptastofnun er falið að veita samkvæmt lögum þessum, lögum um fjarskipti og lögum um póstþjónustu. Heimilt er að taka gjald, sem miðast við kostnað, fyrir eftirfarandi þætti: skráningu fyrirtækja, útgáfu leyfisbréfa og skírteina, mælingar, innsiglanir og skoðun fjarskiptabúnaðar. Auk þess er Póst- og fjarskiptastofnun heimilt að taka gjald fyrir aðra þjónustu sem aðilar óska eftir. Við ákvörðun gjalda samkvæmt þessari grein skal leggja til grundvallar kostnað vegna launa og launatengdra gjalda, aksturs, þjálfunar og endurmenntunar, aðkeyptrar sérfræðiþjónustu, húsnæðis, starfsaðstöðu, fjarskipta, búnaðar og tækja, stjórnunar og stoðþjónustu og alþjóðlegrar samvinnu, auk ferða og uppihalds sem af því leiðir.] 3)
[Póst- og fjarskiptastofnun annast innheimtu gjalda samkvæmt þessari grein. Tekjur af gjöldunum renna í ríkissjóð, að undanskildum tekjum skv. 2., 11. og 12. mgr. sem renna til stofnunarinnar. Ráðherra skal á grundvelli fjárheimildar í fjárlögum ákvarða fjárveitingu til reksturs Póst- og fjarskiptastofnunar sem nemur að lágmarki áætlun fjárlaga um tekjur af gjöldum samkvæmt þessari grein.] 4)
1)L. 62/2012, 10. gr. 2)L. 162/2010, 238. gr. 3)L. 172/2006, 2. gr. 4)L. 47/2018, 31. gr.
[14. gr. a. Gjald fyrir tíðninotkun.
Þeir aðilar sem fengið hafa heimild til að nota tíðnir til þráðlausra fjarskipta skulu greiða árlegt gjald til Póst- og fjarskiptastofnunar samkvæmt því sem hér segir:
1. Radíóstöðvar með skipa- og flugtíðnum.
a. Með milli- og stuttbylgju (MF/HF) 6.400 kr.
b. Án milli- og stuttbylgju (aðeins VHF) 4.100 kr.
2. Farstöðvarásir.
a. Fyrir hver 25 kHz á gjaldsvæði 1 63.000 kr.
b. Fyrir hver 25 kHz á gjaldsvæði 2 eða 3 12.600 kr.
c. Fyrir samnýttar rásir greiðist 25% af gjaldi skv. a- og b-lið eftir því sem við á.
d. Aðilar að landssamtökum björgunarsveita greiða 25% af gjaldi skv. a- og b-lið.
3. Jarðstöðvar.
a. Jarðstöðvar með sendiafl meira en 50 dBW 25.100 kr.
b. Jarðstöðvar fyrir almenn fjarskiptanet 25.100 kr.
4. Fastasambönd.
a. Grunngjald fyrir hvert fastasamband 10.000 kr.
b. Að auki fyrir hvert MHz 830 kr.
[c. Fyrir hvert MHz við afnot af 64–66, 71–76 og 81–86 GHz 83 kr.] 1)
[Ekki skal taka gjald skv. a- og b-lið þessa töluliðar þegar fastasamband er notað sem heimtaug fyrir heimili og fyrirtæki.] 1)
5. [ Almenn farnet (t.d. GSM, 3G, 4G og 5G).
a. Fyrir hvert MHz undir 2300 MHz 256.500 kr.
b. Fyrir hvert MHz milli 2300 MHz og 10 GHz 128.250 kr.
c. Fyrir hvert MHz yfir 10 GHz 25.650 kr.] 1)
6. TETRA neyðar- og öryggisnet. Fyrir hvert MHz 64.100 kr.
7. Þráðlaus aðgangsnet.
a. Fyrir hvert MHz á gjaldsvæði 1 33.800 kr.
b. Fyrir hvert MHz á gjaldsvæði 2 22.500 kr.
c. Fyrir hvert MHz á gjaldsvæði 3 2.300 kr.
8. Fyrir hverja rás í sjónvarpssendi.
a. Gjaldsvæði 2, sendiafl 1 kW og meira 119.000 kr.
b. Gjaldsvæði 2, sendiafl 100–999 W 89.000 kr.
c. Gjaldsvæði 2, sendiafl minna en 100 W 59.300 kr.
d. Gjaldsvæði 3, sendiafl 1 kW og meira 29.700 kr.
e. Gjaldsvæði 3, sendiafl 100–999 W 22.200 kr.
f. Gjaldsvæði 3, sendiafl minna en 100 W 14.800 kr.
Ef sama rás er notuð í fleiri en einum sendi á sama gjaldsvæði ræður samanlagt sendiafl. Ekki skal taka gjald fyrir starfrækslu sjónvarpssenda með afl minna en 2W sem þjóna svæðum með færri en 100 íbúa.
9. Fyrir hverja rás í hljóðvarpssendi.
a. Gjaldsvæði 2, sendiafl 1 kW og meira 29.600 kr.
b. Gjaldsvæði 2, sendiafl 100–999 W 22.200 kr.
c. Gjaldsvæði 2, sendiafl minna en 100 W 14.800 kr.
d. Gjaldsvæði 3, sendiafl 1 kW og meira 7.400 kr.
e. Gjaldsvæði 3, sendiafl 100–999 W 5.600 kr.
f. Gjaldsvæði 3, sendiafl minna en 100 W 3.700 kr.
Ef sama rás er notuð í fleiri en einum sendi á sama gjaldsvæði ræður samanlagt sendiafl. Ekki skal taka gjald fyrir starfrækslu hljóðvarpssenda með afl minna en 2W sem þjóna svæðum með færri en 100 íbúa.
Gjaldsvæði sem tilgreind eru í 1. mgr. skulu afmörkuð sem hér segir:
a. Gjaldsvæði 1: Allt landið.
b. [Gjaldsvæði 2: Höfuðborgarsvæðið (Hafnarfjörður, Kópavogur, Garðabær, Reykjavík, Seltjarnarnes og Mosfellsbær).] 1)
c. Gjaldsvæði 3: Einstök svæði utan gjaldsvæðis 2.
Gjalddagi gjalda samkvæmt þessari grein er 1. mars ár hvert fyrir notkun tíðna á því sama ári. Handhafi heimildar til tíðninotkunar á gjalddaga er ábyrgur fyrir greiðslunni.
Miða skal greiðslu árlegra tíðnigjalda við þann dag þegar heimild til tíðninotkunar tekur gildi, óháð því hvenær viðkomandi tíðni er tekin í notkun.
Ef heimild til tíðninotkunar er gefin út eftir 1. mars ber að greiða árlegt tíðnigjald við útgáfu heimildarinnar og skal þá greiða í hlutfalli við það sem eftir er af árinu og telst útgáfumánuður heimildarinnar með sem heill mánuður.
Fyrir heimild sem gildir skemur en sex mánuði skal taka hálft árlegt gjald og fyrir heimild til að nota tíðnir til tilrauna greiðast 50.000 kr. Gjöld samkvæmt þessari málsgrein greiðast við útgáfu heimildar.
[Póst- og fjarskiptastofnun annast innheimtu gjalda samkvæmt þessari grein og renna þau í ríkissjóð.] 2)] 3)
1)L. 72/2018, 1. gr. 2)L. 47/2018, 32. gr. 3)L. 172/2006, 3. gr.
15. gr. Skýrsla.
Póst- og fjarskiptastofnun skal árlega birta skýrslu um starfsemi sína. Í skýrslunni skal m.a. birtur listi yfir fjarskiptafyrirtæki og póstrekendur og upplýsingar um kostnað við alþjónustu, [jöfnunargjaldsgreiðslur] 1) og hvaða hag fyrirtæki sem settar hafa verið alþjónustuskyldur hafa haft af því á fjarskiptamarkaðinum.
1)L. 47/2018, 33. gr.
16. gr. Reglugerðir.
[Ráðherra] 1) setur í reglugerð 2) nánari fyrirmæli um framkvæmd laganna.
1)L. 162/2010, 238. gr. 2)Rg. 832/2000. Rg. 1265/2014. Rg. 305/2019.
17. gr. Gildistaka.
Lög þessi öðlast gildi 25. júlí 2003. …