1. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 152. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 14. desember 2021
kl. 09:00
Mætt:
Bryndís Haraldsdóttir (BHar) formaður, kl. 09:00Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF) 2. varaformaður, kl. 09:00
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (ArnG), kl. 09:00
Bergþór Ólason (BergÓ), kl. 09:00
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 09:00
Eyjólfur Ármannsson (EÁ), kl. 09:00
Jódís Skúladóttir (JSkúl), kl. 09:00
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir (LRS), kl. 09:00
Logi Einarsson (LE), kl. 09:00
Sigmar Guðmundsson (SGuðm), kl. 09:00
Nefndarritarar:
Inga Valgerður Stefánsdóttir
Steindór Dan Jensen
Bókað:
1) Áheyrnaraðild Kl. 09:00
Formaður tilkynnti að Sigmar Guðmundsson verði áheyrnarfulltrúi í nefndinni fyrir hönd Viðreisnar.
2) Starfið framundan Kl. 09:02
Nefndin ræddi starfið framundan.
3) 151. mál - breyting á ýmsum lögum Kl. 09:03
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Guðmund Bjarna Ragnarsson, Hákon Þorsteinsson, Þorvald Heiðar Þorsteinsson og Magneu Magnúsdóttur frá dómsmálaráðuneytinu. Gestir tóku þátt í fundinum í gegnum fjarfundarbúnað.
Nefndin samþykkti að Bryndís Haraldsdóttir verði framsögumaður málsins.
4) Veiting ríkisborgararéttar Kl. 09:38
Nefndin samþykkti að Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, Birgir Þórarinsson og Jódís Skúladóttir skipi undirnefnd sem fjalli um umsóknir um ríkisborgararétt.
5) Heiðurslaun listamanna Kl. 09:43
Nefndin fjallaði um málið.
6) 16. mál - aðgerðir gegn kynferðisbrotum og aukinn stuðningur við þolendur Kl. 10:05
Frestað.
7) 129. mál - ráðstöfun útvarpsgjalds Kl. 10:05
Frestað.
8) Önnur mál Kl. 10:06
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 10:05