Þingskjölum útbýtt á vef Alþingis föstudaginn 30. nóvember
Eftirfarandi þingskjölum var útbýtt á vef Alþingis föstudaginn 30. nóvember:
- Höfðaborgarsamningurinn um alþjóðleg tryggingarréttindi í hreyfanlegum búnaði og bókun um búnað loftfara – stjórnarfrumvarp dómsmálaráðherra, þingskjal 556.
- Opinber stuðningur við vísindarannsóknir (samfjármögnun alþjóðlegra rannsóknaráætlana og sjálfstæð stjórn Innviðasjóðs) – stjórnarfrumvarp mennta- og menningarmálaráðherra, þingskjal 552.
- Sveitarstjórnarlög (íbúakosningar um einstök mál) – frumvarp, Helgi Hrafn Gunnarsson, þingskjal 551.
- Áætlun fyrir árin 2019--2022 um aðgerðir gegn ofbeldi og afleiðingum þess – stjórnartillaga félags- og jafnréttismálaráðherra, þingskjal 550.
- Bankasýsla ríkisins (starfstími) – stjórnarfrumvarp fjármála- og efnahagsráðherra, þingskjal 553.
- Staðfesting ríkisreiknings 2017 – stjórnarfrumvarp fjármála- og efnahagsráðherra, þingskjal 555.
- Kjararáð (launafyrirkomulag) – stjórnarfrumvarp fjármála- og efnahagsráðherra, þingskjal 554.
- Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs – stjórnarfrumvarp mennta- og menningarmálaráðherra, þingskjal 558.