Alþingi

Valmynd


Hlusta


Lagasafn.  Íslensk lög 1. september 2026.  Útgáfa 157c.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla1)

1992 nr. 37 27. maí


    1)Lögunum var breytt með l. 85/2026, 45. gr.; breytingin tekur gildi 1. janúar 2027.
Ferill málsins á Alþingi.    Frumvarp til laga.

Tóku gildi 1. september 1992. Breytt með: L. 26/1993 (tóku gildi 7. apríl 1993). L. 146/2003 (tóku gildi 30. des. 2003). L. 163/2006 (tóku gildi 30. des. 2006). L. 88/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009 nema brbákv. VII sem tók gildi 21. júní 2008). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011). L. 82/2013 (tóku gildi 4. júlí 2013). L. 19/2016 (tóku gildi 5. apríl 2016). L. 47/2018 (tóku gildi 26. maí 2018). L. 88/2020 (tóku gildi 22. júlí 2020 nema 14. gr. sem tók gildi 1. jan. 2021). L. 85/2026 (taka gildi 1. jan. 2027; um lagaskil sjá 9. gr. og brbákv.).

Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við atvinnuvegaráðherra eða atvinnuvegaráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði.

Um gjaldtöku.
1. gr.
[Ólögmætur er sá sjávarafli:
    a. sem er umfram það aflamark eða krókaaflamark sem veiðiskip hefur eða umfram hámarksafla sem veiðiskipi er settur með öðrum hætti,
    b. sem fenginn er án þess að tilskilin veiðileyfi hafi verið fyrir hendi,
    c. sem fenginn er utan leyfilegra veiðidaga, nema um eðlilegan meðafla sé að ræða,
    d. sem fenginn er með óleyfilegum veiðarfærum,
    e. sem fenginn er á svæði þar sem viðkomandi veiðar eru bannaðar,
    f. sem 2. mgr. 7. gr. tekur til.] 1)
Greiða skal sérstakt gjald samkvæmt fyrirmælum laga þessara fyrir veiðar, verkun, vinnslu eða viðskipti með ólögmætan sjávarafla.
[[Gjald skv. 2. mgr. skal renna í ríkissjóð. Ráðherra skal á grundvelli fjárheimildar í fjárlögum ákvarða fjárveitingu til sjóðs í vörslu ráðuneytisins, sem nefnist Verkefnasjóður sjávarútvegsins, og skal verja fé úr honum til rannsókna og nýsköpunar á sviði sjávarútvegs og til eftirlits með fiskveiðum.] 2) Ráðherra skal skipa stjórn Verkefnasjóðsins sem skilar tillögum til ráðherra um ráðstöfun fjárins. Ráðherra setur reglur 3) um stjórn sjóðsins og úthlutun úr honum.] 4)
Nú hefur verið lagt hald á afla og hann gerður upptækur eftir ákvæðum annarra laga og kemur þá ekki til greiðslu gjalds skv. 2. mgr.
    1)L. 19/2016, 1. gr. 2)L. 47/2018, 27. gr. 3) Rgl. 809/2006. 4)L. 146/2003, 1. gr.
Um greiðsluskyldu.
2. gr.
Gjald skv. 1. gr. skal að jafnaði lagt á þann sem hefur gert út skip eða bát sem veitt hefur gjaldskyldan afla. Ef uppvíst verður um gjaldskyldan afla án þess að unnt reynist að ákvarða hver hafi veitt hann má þó leggja gjaldið á þann sem hefur tekið við aflanum til verkunar eða vinnslu eða hefur haft milligöngu um sölu hans eða afurða úr honum hvort sem er hér á landi eða erlendis, enda hafi þeir vitað eða mátt vita að um ólögmætan sjávarafla var að ræða.
Gjald skv. 1. gr. verður aðeins lagt á einn þeirra sem taldir eru upp í 1. mgr. Aðrir þeir, sem þar eru taldir og sem uppvíst er að hafi átt þátt í veiðum, verkun, vinnslu eða viðskiptum með gjaldskyldan afla, ábyrgjast þó greiðslu gjaldsins sem eigin skuld með þeim sem gjald er lagt á ef ætla má að þeir hafi vitað eða mátt vita að um ólögmætan sjávarafla var að ræða.
3. gr.
Gjald skv. 1. gr. skal nema andvirði gjaldskylds afla.
Ef ekki verður staðreynt hver sú fjárhæð hefur verið skal gjaldið nema því verði sem fengist hefur fyrir samsvarandi afla á þeim stað og því tímabili sem hann barst að landi. Verði gjaldskyldur afli ekki heimfærður til ákveðins tímabils skal verðleggja hann á grundvelli meðalverðs fyrir samsvarandi afla á viðkomandi fiskveiðiári.
Ef ekki verður staðreynt af fyrirliggjandi gögnum hvert hafi verið magn eða andvirði gjaldskylds afla skal það áætlað eftir því sem segir í 5. gr.
Um eftirlit.
4. gr.
Að því leyti sem fyrirmæli laga fela það ekki öðrum stjórnvöldum hafa eftirlitsmenn Fiskistofu með höndum eftirlit með því hvort sjávarafli er gjaldskyldur samkvæmt lögum þessum. Er [ráðherra] 1) heimilt að kveða nánar á um eftirlit þetta í reglugerð.
[Ráðherra] 1) er heimilt að kveða á í reglugerð um skyldu útgerðarmanna, fiskverkenda og fiskseljenda til að láta af hendi sérstakar skilagreinar um þann sjávarafla sem þeir hafa til umráða hverju sinni.
    1)L. 126/2011, 166. gr.
5. gr.
Fiskistofu er heimilt að krefja útgerðarmenn, skipstjórnarmenn, fiskverkendur, fiskseljendur og þá sem hafa haft milligöngu um viðskipti með sjávarafla eða afurðir um öll nauðsynleg gögn og upplýsingar sem þeir geta látið í té og varða, að mati Fiskistofu, ákvörðun um hvort sjávarafli kunni að vera gjaldskyldur samkvæmt lögum þessum. Er þeim sem krafðir eru upplýsinga skylt að láta þær af hendi endurgjaldslaust og í því formi sem Fiskistofa mælist til. Fiskistofu er enn fremur heimilt í sama skyni að krefjast aðgangs að bókhaldsgögnum þeirra, sem áður er getið, samningum þeirra, verslunarbréfum og öðrum slíkum gögnum, svo og að skrifstofum þeirra, vinnustöðvum, vinnsluhúsum, vörugeymsluhúsum og öðrum slíkum stöðum til birgðakönnunar og annars eftirlits.
Í sama tilgangi er Fiskistofu heimilt að krefjast upplýsinga af félögum og félagasamtökum útgerðarmanna, fiskverkenda, fiskseljenda og af félögum annarra sem hlut geta átt að máli, um viðskipti félagsmanna þeirra og aðra starfsemi sem þau hafa gögn eða upplýsingar um.
Ef Fiskistofa telur fram komin gögn eða upplýsingar ófullnægjandi, óglögg, tortryggileg eða ekki látin í té í umbeðnu formi eða hún telur frekari skýringa þörf á einhverju atriði skal hún skora skriflega á þann sem kann að verða krafinn um gjald skv. 1. gr. að bæta úr því innan ákveðins tíma og láta í té skriflegar skýrslur og þau gögn sem þeir telja þörf á. Ef ekki er bætt úr annmörkum, svar berst ekki innan tiltekins tíma, þau gögn eru ekki send sem óskað er eftir eða fram komin gögn eða upplýsingar eru ófullnægjandi eða tortryggileg að mati Fiskistofu skal hún áætla magn og andvirði sjávarafla eftir þeim gögnum og upplýsingum sem fyrir liggja.
Um úrskurðaraðila.
6. gr. … 1)
    1)L. 88/2020, 23. gr.; um lagaskil sjá 30. gr. s.l.
7. gr.
Ef rökstudd ástæða kemur fram við framkvæmd eftirlits til að ætla að einhver sá, sem fyrirmæli 2. gr. taka til, hafi haft gjaldskyldan sjávarafla til umráða skal Fiskistofa leggja gjald á hlutaðeigandi aðila skv. 1. gr.
Nú sýna starfsmenn Fiskistofu fram á að verkun, vinnsla eða sala tiltekins aðila á sjávarafla eða afurða úr honum sé umfram uppgefin kaup hans eða aðföng og er þá heimilt að leggja á viðkomandi aðila gjald skv. 1. gr. um mismuninn enda þótt sjávaraflinn verði ekki rakinn til ákveðins veiðiskips eða tímabils.
… 1)
    1)L. 88/2020, 24. gr.
8. gr.
[Nú vill aðili eigi sætta sig við ákvörðun Fiskistofu um álagningu gjalds samkvæmt lögum þessum og getur hann þá skotið henni til ráðherra til úrskurðar, enda geri hann það innan tveggja vikna frá því að hann fékk vitneskju um ákvörðunina.] 1)
    1)L. 88/2020, 25. gr.
9. gr.
… 1) Heimild til álagningar gjalds nær til gjalds vegna afla síðustu fjögurra fiskveiðiára sem næst eru á undan því fiskveiðiári sem álagning Fiskistofu fer fram á.
… 1)
    1)L. 88/2020, 26. gr.
Um innheimtu.
10. gr.
Fiskistofa fer með [álagningu og] 1) innheimtu gjalds skv. 1. gr. [Ráðherra] 2) er þó heimilt að fela innheimtumönnum ríkissjóðs eða öðrum aðilum innheimtu þess.
Gjald skv. 1. gr. fellur í gjalddaga við álagningu. Ber það dráttarvexti samkvæmt ákvæðum vaxtalaga frá því 30 dagar eru liðnir frá gjalddaga þess.
Álagning gjalds eða úrskurður um gjaldtöku skv. 1. gr. eru aðfararhæfar ákvarðanir, bæði gagnvart þeim sem gjald hefur verið lagt á og þeim sem bera ábyrgð á greiðslu þess samkvæmt úrskurði. Má Fiskistofa krefjast fullnustu með fjárnámi þegar liðnir eru 30 dagar frá dagsetningu álagningar eða uppkvaðningu úrskurðar. [Ef gjald, sem lagt hefur verið á útgerð skips sem veitt hefur hinn gjaldskylda afla, hefur ekki verið greitt þegar sá tími er kominn að krefjast má fullnustu þess með fjárnámi skal Fiskistofa svipta hlutaðeigandi skip leyfi til veiða í atvinnuskyni þar til skuldin greiðist eða samið hefur verið um greiðslu hennar. Gildir þetta einnig þótt eigendaskipti hafi orðið á skipi, enda hafi eigendaskiptin ekki orðið við nauðungaruppboð eða gjaldþrotaskipti. Standi útgerð ekki við samning um greiðslu skuldar er Fiskistofu heimilt að svipta skip fyrirvaralaust leyfi til veiða í atvinnuskyni.] 3)
Ágreining um skyldu til greiðslu gjalds skv. 1. gr. eða um ábyrgð á greiðslu þess má bera undir dómstóla sé það gert innan 30 daga frá uppkvaðningu úrskurðar [skv. 8. gr.] 1) Slíkt málskot frestar ekki fullnustu úrskurðar.
    1)L. 88/2020, 27. gr. 2)L. 126/2011, 166. gr. 3)L. 146/2003, 4. gr.
11. gr.
Ef [ráðherra] 1) telur veiðar á gjaldskyldum afla samkvæmt lögum þessum brjóta gegn refsiákvæðum annarra laga er honum rétt að tilkynna það ríkissaksóknara. Slík tilkynning eða … 2) rannsókn eða höfðun [sakamáls] 2) í tilefni hennar raskar því ekki að gjald verði lagt á eftir fyrirmælum þessara laga.
    1)L. 126/2011, 166. gr. 2)L. 88/2008, 234. gr.
Um dagsektir.
12. gr.
Hver sá, sem tregðast við að láta Fiskistofu í té upplýsingar er varða gjaldskyldu annarra eða tregðast við að veita aðgang að aðstöðu eða gögnum, sbr. 5. gr., skal sæta dagsektum. [Ráðherra] 1) kveður á um skyldu til greiðslu dagsekta og mega þær nema allt að 10.000 kr. á dag. Dagsektir má innheimta með fjárnámi.
    1)L. 126/2011, 166. gr.
Um gildistöku o.fl.
13. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. september l992.
… 1)
    1)L. 88/2020, 28. gr.
14. gr.
… 1)
[Ráðherra] 2) setur reglugerð 3) um nánari framkvæmd laga þessara.
    1)L. 88/2020, 29. gr. 2)L. 126/2011, 166. gr. 3)Rg. 470/2012. Rg. 456/2017.
Þú ert hér: Forsíða > Lagasafn > Lög

Lagasafn

  • Kaflar lagasafns
  • Lög samþykkt á Alþingi
  • Brottfallin lög
  • Nýlega samþykkt lög
  • Um lagasafn
  • Leiðbeiningar
  • Hvernig á að tengja í lög?
  • Zip-skrá af lagasafni

  • Þingfundir og mál
    • Tilkynningar
    • Þingmálalistar
      • Laga­frumvörp
      • Þings­ályktunar­tillögur
      • Fyrirspurnir
      • Skýrslur, álit og beiðnir
      • Sérstakar umræður
      • Staða mála
      • Þingmál eftir efnis­flokkum
      • Samantektir um þingmál
    • Leit að þingmálum
      • Leit í málaskrám
      • Ítarleit að þingskjölum
      • Einföld orðaleit í skjala­texta
      • Orðaleit í umsögnum
      • Atkvæðagreiðslur
      • Efnisyfirlit
    • Þingfundir og ræður
      • Fundar­gerðir og upp­tökur
      • Dagskrá þingfundar
      • Nýyfirlesnar ræður
      • Einföld orðaleit í ræðum
      • Ítarleit í ræðum
      • Ræður eftir þingum
      • Reglur um ræðutíma
      • Starfs­áætlun Alþingis
      • Mælendaskrá
    • Yfirlit og úttektir
      • Þingsköp
      • Alþingistíðindi
      • Alþingismál 1845-1913
      • Þingmálaskrá ríkisstjórnar
      • Breytingar á stjórnarskrá frá 1944
      • Leiðbeiningar um þingskjöl
      • Efni um stjórnarskrármál
      • Vantrauststillögur
      • Umsókn um aðild að ESB
      • Efni um Icesave
      • Fjármálastefna, fjármálaáætlun og fjárlög
      • Úttektir rannsókna- og upplýsingaþjónustu
    • Viltu senda umsögn?
    • Lög samþykkt á Alþingi
    • Nýjar þingsályktanir
  • Þingmenn
    • Alþingismenn
      • Alþingismenn
      • Sitjandi aðal- og vara­þing­menn
      • Netföng og símanúmer
      • Heimasíður þingmanna
      • Varamenn sem sitja á Alþingi
      • Varamenn sem hafa tekið sæti
      • Sætaskipun þingmanna
      • Aðstoðarmenn
      • Mögulegir varaþingmenn
    • Þingflokkar
      • Um þingflokka
      • Formenn þingflokka
      • Flokkur fólksins
      • Framsóknarflokkur
      • Miðflokkurinn
      • Samfylkingin
      • Sjálfstæðisflokkur
      • Viðreisn
      • Utan þingflokka
      • Starfsfólk þingflokka
      • Fyrri þingflokkar
    • Kjördæmi
      • Um kjördæmi
      • Reykjavík norður
      • Reykjavík suður
      • Suðvesturkjördæmi
      • Suðurkjördæmi
      • Norðausturkjördæmi
      • Norðvesturkjördæmi
    • Forsetar Alþingis
      • Forseti Alþingis
      • Forsætisnefnd - varaforsetar
      • Forsetatal
    • Ráðherrar - ríkisstjórn
      • Ráðherrar - ríkisstjórn
      • Ráðherrar og ráðuneyti frá 1904
      • Ráðherrar frá 1904
      • Lengstur starfs­aldur í ríkis­stjórn
    • Sögulegur fróðleikur
      • Elstir manna á Alþingi
      • Formenn fastanefnda Alþingis
      • Fulltrúar á Þjóðfundinum 1851
      • Kjörnir fulltrúar sem tóku aldrei sæti á Alþingi
      • Konungsfulltrúar
      • Landshöfðingjar
      • Lengstur starfs­aldur þing­manna á Alþingi
      • Skrifstofustjórar Alþingis
      • Yngstir kjörinna alþingismanna
      • Yngstu vara­menn á Alþingi
      • Fyrsta þing þingmanna
    • Hagsmunaskrá og hátterni
      • Um skráningu hagsmuna
      • Hagsmunaskrá
      • Siðareglur
      • Brot á siðareglum
      • Viðbragðsáætlun gegn einelti og áreitni þingmanna
      • Trúnaðarmenn þingflokka
    • Alþingismannatal
      • Kosningarréttur og konur á Alþingi
      • Æviágrip þingmanna frá 1845
      • Leit í alþingismannatali
      • Ýmsar skammstafanir
      • Félag fyrrverandi alþingismanna
      • Raddsýnishorn
    • Starfskjör alþingismanna
      • Laun og kostnaðargreiðslur þingmanna
      • Starfskjör þingmanna
      • Þingfararkaup - laun þingmanna
      • Þingfararkostnaður
      • Árnessjóðurinn - orlofssjóður
      • Ýmis eyðublöð
      • Aðstoðarfólk þingmanna
    • Þingtímabil
      • Númer löggjafar­þinga og tímabil
      • Kjördagar
      • Þingrof
      • Þing­setu­tími - númer ráð­gjafar­þinga 1845-1873
      • Tími frá alþingiskosningum til stjórnarskipta frá 1946
    • Tilkynningar
    • Alþingiskosningar
      • Almennar upplýsingar
      • Kosningar og kosningaúrslit
  • Nefndir
    • Dagskrá nefndarfunda
    • Viltu senda umsögn?
      • Leiðbeiningar um umsagnir um þingmál
      • RSS-áskrift að málum í umsagnarferli
    • Tilkynningar
    • Fastanefndir
      • Allsherjar- og menntamálanefnd
      • Atvinnuveganefnd
      • Efnahags- og viðskiptanefnd
      • Fjárlaganefnd
      • Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
      • Umhverfis- og samgöngunefnd
      • Utanríkismálanefnd
      • Velferðarnefnd
    • Aðrar nefndir
      • Alþjóðanefndir
      • Forsætisnefnd
      • Framtíðarnefnd 2021–2025
      • Undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kosninga
      • Kjörbréfanefnd
      • Sérnefndir
      • Þingskapanefnd
      • Stjórnir, nefndir og ráð kosin af Alþingi
      • Nefndir skipaðar af forseta og forsætisnefnd Alþingis
      • Endurskoðun kosningalaga
      • Sérnefnd til að íhuga viðbrögð Alþingis við dómi Mannréttindadómstóls Evrópu frá 16. apríl 2024 um alþingiskosningarnar í Norðvesturkjördæmi 25. september 2021
    • Nefndastörf
      • Starfsreglur fastanefnda Alþingis
      • Störf fastanefnda
      • Reglur um meðferð EES-mála
      • Fundargerðir nefnda
      • Upptökur af opnum fundum nefnda
      • Fundartímar fastanefnda
      • Skipan nefnda
      • Sögulegt yfirlit
      • Þingmál til umfjöllunar í þingnefndum
      • EES mál
      • Önnur mál nefnda
    • Rannsóknir
      • Rannsóknarnefndir Alþingis
      • Íbúðalánasjóður
      • Sparisjóðir
      • Fall íslensku bankanna
      • Greinar­gerð um rannsóknar­nefndir
      • Saksóknarnefnd og saksóknari Alþingis
    • Leitarvalmyndir
      • Orðaleit í erindum og umsögnum
      • Orðaleit í fundargerðum nefnda
      • Leit að skipan í nefndum
    • Erindi og umsagnir
      • Leiðbeiningar um ritun umsagna
      • Erindi
      • Viðtakendur umsagnabeiðna
      • Sendendur erinda
  • Alþjóðastarf
    • Íslandsdeildir
      • Alþjóða­þingmanna­sambandið
      • Evrópuráðs­þingið
      • Þingmanna­nefndir EFTA og EES
      • NATO-þingið
      • Norðurlandaráð
      • Vestnorræna ráðið
      • Þingmanna­ráðstefnan um norðurskauts­mál
      • Þing Öryggis- og samvinnu­stofnunar Evrópu
    • Tilkynningar
    • Yfirlit og starfsreglur
      • Markmið alþjóðastarfsins
      • Þátttaka í alþjóðastarfi
      • Frásagnir af alþjóðastarfi
      • Starfsreglur
      • Yfirlit yfir Íslands­deildir
    • Annað alþjóðastarf
      • Alþjóðastarf forseta Alþingis
      • Annað alþjóðastarf sem heyrir undir forseta Alþingis
      • Sameiginleg þingmanna­nefnd Íslands og Evrópu­sambandsins
  • Lagasafn
    • Kaflar lagasafns
    • Lög samþykkt á Alþingi
    • Brottfallin lög
      • 1990-1995
    • Nýlega samþykkt lög
    • Um lagasafn
    • Leiðbeiningar
    • Hvernig á að tengja í lög?
    • Zip-skrá af lagasafni
  • Ályktanir Alþingis
    • Ályktanir eftir efnisflokkum
    • Skýrslur vegna ályktana
  • Um Alþingi
    • Skrifstofa Alþingis
      • Skipurit og hlutverk
      • Netföng og símanúmer
      • Mannauðsmál
      • Laus störf
      • Rekstraryfirlit
      • Jafnlaunavottun
    • Upplýsingar um Alþingi
      • Um hlutverk Alþingis
      • Hvernig getur þú haft áhrif?
      • Þingsköp
      • Reglur settar af forsætis­nefnd
      • Upplýs­ingar um þing­störfin
      • Áskrift að efni á vef Alþingis
      • Um vef Alþingis
      • Alþingi á samfélagsmiðlum
      • Rannsóknaþjónusta
      • Merki Alþingis og hönnunarstaðall
    • Fræðslu- og kynningarefni
      • Um Alþingis­húsið
      • Nýbygging á Alþingisreit
      • Skólaþing
      • Ungmennavefur
      • Kynning og saga
      • 100 ára fullveldi 2018
      • Alþingi kynningar­bæklingur
      • Háttvirtur þingmaður - handbók
      • Orðskýringar
    • Stofnanir, stjórnir og nefndir
      • Stjórnir, nefndir og ráð kosin af Alþingi
      • Nefndir skipaðar af forseta og forsætisnefnd Alþingis
      • Ríkis­endurskoðun
      • Umboðs­maður Alþingis
      • Jónshús
      • Rannsóknar­nefndir Alþingis
      • Mannréttindastofnun Íslands
    • Útgefið efni
      • Handbækur Alþingis
      • Ársskýrslur Alþingis
      • Skýrsla um eftirlit Alþingis með framkvæmdar­valdinu
      • Skýrsla um traust til Alþingis
      • Með leyfi forseta
    • Heimsóknir í Alþingishúsið
      • Heimsóknir hópa
      • Aðgengi að Alþingishúsi og Smiðju
      • Fjölmiðlafólk í Alþingis­húsinu
      • Útiþrautaleikur um Alþingishúsið

  • Dansk
  • English

Leita á vefnum


  • Veftré
  • Orðskýringar
  • Alþingistíðindi
  • Skólaþing
  • Ungmennavefur

  • Rafrænir reikningar
  • Umsagnagátt
  • Hakið
  • Vefpóstur
  • Þingmannagátt

Skrifstofa Alþingis - Hafa samband, 101 Reykjavík, Sjá á korti , Kt. 420169-3889 ,[email protected]
Sími 563 0500, Skiptiborðið er opið kl. 9–16 mánudaga til föstudaga.

Persónuverndarstefna


Þetta vefsvæði byggir á Eplica